sunnudagur, 13. apríl 2008

Þetta ætluðum við aldrei að láta hafa okkur útí!

Aldrei ætluðum við að stunda bloggfærslur......
en nú er svo komið að Iðunn og foreldraeplin hafa ákveðið að halda til Bretlands á ný og dvelja þar í svo sem eins og 12 mánuði. Okkur varð fljótlega ljóst að ef við ætluðum að halda skyldmennum Iðunnar glöðum yrðum við að setja upp einhvers konar fréttastofu og eftir nokkra umhugsun urðum við að viðurkenna að hið illræmda bloggform hentaði fréttastofunni nokkuð vel.
Svo hér er það komið. Við stefnum á að vera virk í fréttaflutningnum, en gerum á móti þá kröfu að vinir og vandamenn séu duglegir að láta í sér heyra í kommentum.....engum þykir gaman að tjá sig í tóminu.
Við höldum utan 4. mai 2008 - frekari bloggfærslur bíða því fram yfir þá dagsetningu.