sunnudagur, 30. maí 2010

Viðburðarík helgi


Helgin hófst vel hjá Iðunni - sveitaferð með Grænuborg og Diljá uppáhaldsmóðursystur (að öllum öðrum ólöstuðum - hún var amk uppáhalds þann daginn). Mikið stuð, grillað í sól og sumarskapi og Iðunn sópaði hvolp. Myndir eru á myndasíðu. Svo á laugardag var farið á róló með pabba og blómadagur tekinn með trompi á Skólavörðustig. Einnig myndir af þeim herlegheitum. Að lokum fékk hún svo að gista í allra fyrsta sinn heima hjá ömmu Gobbu á meðan pabbi var í Júrópartíi með klikkaða liðinu (systkynum Unu mömmu og co.), og allt gekk ofsalega vel. Iðunn átti góða stund með ömmu, sofnaði tímanlega, svaf í bangsarúminu, vaknaði seinna en vejulega (ömmu til mikillar gleði), fékk að fara í stóra baðið, og talaði við mömmu sína í símann. Skemmtileg helgi sem endar svo með ferð í Sævang eftir hádegi í dag.
Kosningar og Júró voru víst líka á döfinni....
Mamman situr í Barnard Castle og fer yfir próf.

mánudagur, 24. maí 2010

Mamma ekki lengur vinnunni


Mamman var heima hjá Iðunni og Helga um helgina....áttum svo yndislega daga saman. Hittum ömmur, pössuðu kisu, fengum Kötu í heimsókn. Hápunkturinn var samt sumarbústaðaferð með Ásdísi Maríu og Tómasi, ásamt foreldrum, í alveg hreint yndislegu veðri. Hlýtt fyrri daginn, hlýtt og skínandi sól þann seinni. Myndir komnar inn á picasa síðuna. Kíktum svo við í Siggubústað á Þingvöllum á leið í bæinn og kíktum á framkvæmdir þar. Verst er að samveran var allt of stutt, og Iðunn talaði alla helgina um að "Nú mamma ekki lengur vinnunni, nú mamma heima hjá Iðunni". Mamman sem labbaði sér út á BSÍ klukkan 5 í morgun var með ansi mikið samviskubit að yfirgefa stelpuna sína enn og aftur.

sunnudagur, 16. maí 2010

Heimilislíf eplanna




Eplabloggið og myndasíðan eru í lægð þessa dagana, þar sem aðal bloggarinn og myndasmiðurinn er allt of mikið í burtu. Heimilislífið er einkennilegt - Helgi og Iðunn á Íslandi, eplamamma í Englandi, ferðalög til Íslands taka marga sólarhringa vegna öskuláta, og yfirleitt eru samskiptin eins og sést hér að ofan - í gegnum hökktandi myndavél á skypinu. Einkennilegt líf....

laugardagur, 8. maí 2010

miðvikudagur, 21. apríl 2010

Á faraldsfæti


Loksins loksins lítur út fyrir að við séum að komast til Bretlands. Ég hef samt aldrei lent í öðru eins og að reyna að ná í flugfélagið og bóka flug...ætli ég hafi ekki verið í símanum í ca. 4 tíma. Þá var ekkert flug að fá....svo var hringt í okkur og sagt að við gætum öll flogið í sitt hvoru lagi....ekki var nú séns að fá okkur til að samþykkja það. Eina flugið sem við komumst öll í var til London og vildu Cimber Sterling að við redduðum okkur sjálf þaðan. Eftir mikið stapp fengust þeir loks til að endurgreiða okkur ferðakostnaðinn frá London til Newcastle....við eigum eftir að sjá hvernig það reynist í framkvæmd.
En á morgun fljúgum við sem sagt til London City og reynum að fá lestarferð þaðan. Við látum svo vita hvernig gengur.
Sendið okkur góða ferðastrauma!

laugardagur, 17. apríl 2010

Enn í Sverige


Eplin eru enn í Sverige, enda allt lokað á Kaupmannahafnarflugvelli sem stendur. Við tökum bara lífinu með ró, og gleðjumst yfir því að vera hér hjá afa Viðari, en ekki sofandi undir teppi á Schiphol eins og sumir sem við sáum í fréttunum. Mamman kvíðir nú samt svoldið kaósinu sem verður á vellinum þegar loks verður opnað á ný.

Sunnudagsöppdeit.......Við erum hér enn.....

mánudagur, 12. apríl 2010

Svenska applen


Jæja þá er eplafamilían komin til Sverige að heimsækja afa Viðar og ömmu Titti, og þó sérstaklega nýja fjölskyldumeðliminn: köttinn Doris (hún hét víst þessu nafni áður en hún flutti hingað - en við flissum samt þegar afi Viðar fer út í bakdyrnar og kallar Dooooooooris, Doooooooria - við erum alveg viss um að grannarnir haldi að kerlingin sé hlaupin frá honum).
Síðan við komum höfum við brallað margt smátt, og haft það ansi gott. Við höfum rólað og mokað og dúkkuvagnast; við höfum hitt Emmu og Erik og foreldra þeirra og Iðunn fór í þriggja manna baðferð með krökkunum og lærði að það getur verið gaman að láta hella vatni yfir hausinn á sér; við höfum leikið við Doris og Iðunn hefur haldið á henni yfir alla stofuna og Doris hefur lært að sofa á bakvið bækurnar í bókaherberginu hans afa Viðars þar sem Iðunn finnur hana ekki; við sáum dádýr og villisvín; og síðast en ekki síst áttum við yndislegan dag í Köben með ömmu Fanneyju, Höllu stóru og Siggu "fairygodmother". Myndir á myndasíðu. Að lokum ber að nefna að mamman fór í bæjarferð án hinna tveggja og fataði upp dömuna fyrir sumarið. Vegna fyrirspurna frá ömmu Gee verður sérstaklega bent á ný föt þar sem þau sjást!

mánudagur, 5. apríl 2010

Páskadagsmorgunn


Svona er mikið fjör að kítla og purra og njóta lífsins í náttfötunum langt fram eftir morgni!

sunnudagur, 4. apríl 2010

Laugardagur Dymbilviku

Síðasti dagur dymbilviku, og eplafamilían leggur leið sína í bæinn.


Iðunn vill vera með trefil eins og mamma. Hún stillir sér upp í Ingólfsstræti.
Iðunn gengur sjálf um allan bæ....borðar snjó sem féll í páskahretinu. Loks endar ferð á Skólavörðuholti.


Þar skoðum við Leif Eiríksson, og setjumst á stallinn hans.


Hlýðum á tónverk fyrir kirkjuklukkur og blástur úr turni séra Hallgríms. Eyrnanna vegna er þó hlustað úti. Tveir spila á flautur utan dyra.


Mamma og Iðunn tromma á stöllunum fyrir utan kirkjuna...svo er haldið á kaffihús með ömmu Gee og drukkið heitt kakó í fyrsta sinn.
Góður dagur.

miðvikudagur, 31. mars 2010

Stórfréttir!


Nú er Iðunn kominn á þann aldur þar sem börn eru yfirleitt vanin af bleijum. Oft er þannig farið að að börn eru látin vera ber á botninum heima við og svo smellt á koppinn þegar þay gera sig líkleg til að geta framleitt eitthvað í hann. Hins vegar er Iðunnin okkar haldin hálfgerðri bleijuhysteríu sem upphófst út frá hægðavandamálum í fyrra sumar, og lýsir sér þannig að hún hefur verið hrædd við að vera bleijulaus, og grætur og skelfur við skipti þar til komin er ný bleija á botninn. Vegna þessa h0fum við ekkert verið að ýta á hana að emð bleijurnar, en hins vegar talað ansi mikið um koppa og piss og kúk, og fylgst grant með salernisferðum fjölskyldumeðlima og barnanna á leikskólanum.
Í dag gerðust þó þau undur og stórmerki að Iðunnin gleymdi sér við að púsla berbotna eftir baðið...eftir dágóða stund sýndist mömmu hún vera farin að vera svoldið pissuleg....og stakk upp á koppaferð, og benti á að vel væri hægt að púsla á koppnum. Okkur til mikillar furðu rauk hún af stað og sótti koppinn inn á bað, og settist á hann. Allt í einu kom á hana furðusvipur, hún rýkur á fætur og gónir ofaní koppinn, og viti menn, komnir heilir 3 dropar! Mikið hrós, mikið klapp, allir skoða, svo er sest niður og 5 dropar til viðbótar!! Aftur hrós, aftur klapp, aftur skoðað en í þetta sinn (enn meira spennandi) er koppurinn tæmdur og skolaður. Eftir þetta bendir mamman á að það megi alveg láta allt pissið koma í einu og viti menn - risa gusa og enn meira hrós og klapp!! Fyrsti koppasigurinn!!


Mamma og pabbi eru í sjöunda himni yfir stelpunni sinni sem sigraðist á hræðslunni....og Iðunnin er enn ánægðari með þetta nýja ritúal sem bæst hefur við heimilisvenjurar á Grundarstíg.

mánudagur, 29. mars 2010

Kalt úti, stuð inni


Hér hefur verið ansi kalt undanfarna daga og vesalings vorblómin vita eflaust ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Hins vegar er hlýtt og notalegt á Grundarstíg og hægt að glensast og grínast léttklæddur í morgunsárið.

föstudagur, 26. mars 2010

Rólóferð


Hér er komið vor - í bili a.m.k. og við höfum nýtt tímann vel, og farið á róló með góðu fólki. Komnar eru inn myndir á myndasíðuna. Annars vegar myndir frá síðustu helgi þegar við skruppum á Tjarnarborgarróló með Tómasi, Ásdísi Maríu, Siggu og Ásu; hins vegar frá gærdeginum þegar við skruppum á Freyjugöturóló með ömmu Fanneyju, Huldu og Hafsteini. Mikið stuð í bæði skiptin!

þriðjudagur, 23. mars 2010

Afsakið hlé


Eplabloggið er í smá fríi, en nýjar myndir eru settar inn á myndasíðu Iðunnar reglulega. Blogg verður tekið upp á ný í april þegar við höldum til Sverige og þaðan til Barnard Castle....nema eitthvað bloggvert gerist í millitíðinni.

þriðjudagur, 9. mars 2010

Mamma í Ameríku



Það er ekki auðvelt að vera mamma og þurfa að dvelja fjarri Iðunninni sinni í 19 daga. Ekki var það skárra að Iðunnin var lasin alla fyrstu vikuna sem ég var í burtu. Ég veit að það er vel hugsað um hana, pabbi, ömmurnar, leikskólinn - allir leggjast á eitt...en það er samt erfitt að vita af stelpunni sinni svona langt í burtu.
Allt gengur vel í Ameríkunni, þó ég sé orðin svoldið leið á stúdentunum í svona miklu návigi svona lengi. Reyndar hefur mikið ræst úr hlutunum eftir að ég kom til New York - ég gisti hér hjá Grétu og Susan í ró og næði með kisunum tveimur - hef hitt Mary Ann vinkonu mína tvisvar um helgina, og fer í mat til skólasystur minnar, Ástu Sóllilju annað kvöld.
Heimferð á föstudag, og lendi heima á laugardag..hlakka svooooo mikið til.

mánudagur, 8. mars 2010

föstudagur, 5. mars 2010

Myndir

Kjúklingur.

Amma fanney kom með nýjar bækur.

Vettlingur á ísskáp.

Gulur, rauður, grænn.

þriðjudagur, 2. mars 2010

Labba bæinn

Iðunn er búin að vera lasin undanfarna daga en virðist nú vera að ná sér og fer líklega aftur á leikskólann í fyrramálið.
Við feðginin löbbuðum í bæinn í dag og skoðuðum endurnar.



Takið eftir náunganum í bakgrunninum sem heldur á dúfu meðan hann gefur henni brauð.
Mér fannst þetta merkilegt en var að reyna að vera ekki of áberandi þegar ég tók myndina.

jamm

þriðjudagur, 23. febrúar 2010

Fjarvera



Lítið hefur verið bloggað eftir heimkomuna, en þó örskeyti svona af og til. Nú er líklegt að lítið verður um blogg á næstunni því aðal bloggarinn verður fjarri góðu gamni. Ég fer til Durham í fyrramálið (vekjaraklukkan stillt á 04.00) og verð þar á endalausum fundum í tvo daga. Á laugardagsmorgun (enn fyrr!) fer ég frá Newcastle til London og þaðan til Chicago þar sem ég verð við svínabeinamælingar í viku ásamt doktorsnemum mínum og öðru samstarfsfólki. Þá fer ég til NY að eyða annari viku við mælingar á svínum. Stuð!! Flýg svo heim via Heathrow (ójá, ansi fáránleg leið) og kem loksins loksins til Keflavíkur upp úr hádegi laugardaginn 12.mars.
Ég ætla ekki einu sinni að minnast á hve mig verkjar í mömmuhjartað þó ég viti að Iðunn verði í góðum höndum.Úff!

Svo ber að minnast á að amma Gee, sem nú gengur undir heitinu amma Bogga (endurnefnd af heimasætunni í óþökk ömmunnar) á afmæli á morgun og viljum við senda henni kossa og knús í tilefni dagsins!!

sunnudagur, 21. febrúar 2010

Af konum og afmælum



Eplamamma átti afmæli og eplapabbi bakaði svo yndislega góða köku í tilefni dagsins. Iðunn var himinsæl - og þurrkaði sér sposk um hendurnar á peysunni sinni! (sjá klippivídjó ef ýtt er á play)

miðvikudagur, 17. febrúar 2010

Iðunnarspeki dagsins


"Mamma, Grænaborg er langt langt í buttu"

"Æ mamma ég er kúka baunir!"

þriðjudagur, 16. febrúar 2010

Fréttaleysa


Héðan er nú ekki mikið að frétta, en þó er alltaf skellt inn myndum á myndasíðuna sem vísað er á hér til hægri. Lífið gengur sinn vanagang. Helst er kannski fréttnæmt að afi og amma í Sævangi eru komin heim frá Indlandi og fórum við þangað í bollukaffi um helgina ásamt ömmu Gee. Það voru fagnaðarfundir, og ekki verra að heimasætan fór þaðan með nýja bleika skó og fallegt veski sem amma og afi höfðu verslað í úlöndum.


Annars var leiðinlegt veður alla síðustu helgi (það er helst að eitthvað fréttnæmt gerist um helgar), svo við vorum mest inni við leik og störf, og skruppum aðeins á bókasafn. Þar fór ekki betur en svo að Iðunn tók sig til og beit stelpu sem var eitthvað að grípa fram fyrir hendurnar á henni, og fékk náttúrulega skömm í hattinn. Bitvargurinn litli veit vel að svona má ekki gera, en því miður á hún þetta til, og þurfti þrisvar í skammarkrókinn á Dropadeild í gær vegna þessa....úff mömmunni líst ekki vel á þessa hegðun!

mánudagur, 8. febrúar 2010

Sunnudagur


Á sunnudögum setja fínar frýr upp húfur og setjast á kaffihús og skála tebollum.

laugardagur, 6. febrúar 2010

Ljúfur laugardagur


Laugardagurinn var ljúfur. Fyrst slakað á í bælinu fram að hádegi, skiptum okkur upp svo Helgi slakaði í stofunni, Una í svefnherberginu, og þannig hægt að fylgjast með Iðunni leika sér, teikna, lesa osfrv án þess að fara undan sænginni. Kaffi og nýbakað brauð úr Bernhöfts, heitt bað í rólegheitum meðan Iðunn lagði sig, og loks Laugavegslabb og kaffihúsaseta með Ömmu Gee. Matarmikil súpa í kvöldmatinn.

þriðjudagur, 2. febrúar 2010

Lítill spekingur


Ka´hetta mamma?
Salat...
Mamma hetta laufblöð úti?
(borðaði nú samt rúkkólasalatið með bros á vör)

sunnudagur, 24. janúar 2010

Sleeping beauty - 25 months apart



Í fréttum er þetta helst:


Löngu er orðið tímabært að tina hér til helstu fréttir af Grundarstígsgenginu.

Iðunn er nú búin að vera eina aðlögunarviku, og tvær heilar vikur á nýja leikskólanum sínum: Grænuborg, Hún er á Dropadeild, sem er hálfgerð strákadeild - þar eru 5 stelpur og 15 drengir! Þó ekki séu stelpurnar nema 5 eru þær tvær Iðunnir, sem er ansi ruglingslegt, en hin heitir reyndar Iðunn Ólöf svo hægt er að greina á milli. Iðunn lenti í skammarkrók einn daginn fyrir að bíta frá sér, og hefur mikið rætt það síðan, að það sé alveg bannað að bíta og krakkarnir fari að gráta...hún hefur greinilega séð að sér og þetta hefur ekki endurtekið sig, sem betur fer. Hún var orðin svoldið erfið við önnur börn í byrjun janúar, enda hafði lífið verið ansi rótlaust hjá fjölskyldunni fyrir jól; fyrst pabbi í Vín, svo við til Vín, svo mamma til Hanoi, mamma á spítala og loks flutningur heim til Íslands. En aginn á nýja leikskólanum hentar henni vel, og hún er nú orðin miklu auðveldari í samskiptum við krakka.

Í gær fór Iðunn í leikhús í fyrsta sinn. Við skelltum okkur á Sindra silfurfisk í Þjóðleikhúsinu með Ásdísi Maríu, Tómasi, og Siggu mömmu þeirra. Iðunn var alveg hugfangin af fiskunum og leikritið var alveg mátulega langt, ekki nema hálftími. Ekki spillti fyrir að fá plakat af Sindra, og fara svo á kaffihús með krökkunum á eftir.



Iðunn er orðin ofsalega dugleg að spjalla...sækir þá hlið skapgerðar sinnar augljóslega til móðurfóksins....hún talar stanslaust frá morgni til kvölds, og veltir ýmsu fyrir sér. Uppáhaldsorðið þessa vikuna er Dáðu! (Sjáðu!). Hún er dugleg að setja saman margra orða setningar, og farin að tala um sjálfa sig í fyrstu persónu af og til. Sum orð eru þó enn hálf viðsnúin og eru það þá aðallega S-in sem fara á rangan stað. Þannig er Ijumm jáss Iðunn sjálf, og smekkinn kallar hún mess.
Hún er einnig farin að þekkja marga bókstafi, I (Ijumma dafur) D (Dillá dafur) M (mömmu dafur) P (pabba dafur) A (ömmu afa dafur), og þar fram eftir götunum, T, Æ, U, Ö, og bætist við á hverjum degi. Hún verður alltaf voðalega upprifin þegar hún rekst á þessa stafi, hvort sem það er í barnabókum eða fullorðinsreifurum.

Annað sem mikið er spáð í eru flugvélar. Þær eru ansi margar sem fljúga hér yfir, og það þarf náttúrulega að benda á og spjalla um hverja einustu. Eins er merkilegt hve margir sveima endalaust um himinhvolfin í þessum vélum. Sem stendur er Iðunn alveg á því að Diljá (í Edinborg), afi og amma (í fríi á Indlandi) og Hulda og Hafsteinn (í Danm0rku) séu öll í flugvélum , og búin að svífa um í þeim í ansi marga daga..... Þegar fólk fer til útlanda er það bara í flugvélinni þar til maður hittir það aftur!

Nóg í bili. Litla daman lasin með hita og niðurgang í dag og mamman ætlar að fara að slaka á eftir allan þvottinn!

þriðjudagur, 19. janúar 2010

Amma Stína



Hún amma Stína hefði orðið níræð í dag. Við minnumst yndislegrar konu, óstöðvandi hláturs og endalausrar umhyggju. Hennar er sárt saknað af okkur öllum.



Í tilefni dagsins hittust 3 kynslóðir í beinan kvennlegg, afkomendur ömmu Stínu, og borðuðu súkkulaðiköku og skáluðu fyrir ömmu og ástinni.

laugardagur, 16. janúar 2010

Vasaveldi


Vasar eru sjaldgæfir á Iðunnarfötum og þar af leiðandi afar spennandi. Í vösum má geyma fjársjóði, eins og lopapeysuló, snuð og kreditkortið sem maður stal af pabba....eins má ganga um með hendur í vösum, eins og karlarnir á bryggjunni eða unglingarnir á Hallærisplaninu. Og ekki er verra ef maður má vera í stígvélum við vasakjólinn.

sunnudagur, 10. janúar 2010

2. og 3. í afmæli



Eins og margir vita þurftu eplamamma og eplapabbi að gifta sig þrisvar árið 2007. Eins var Iðunn stór á því og hélt þrisvar upp á afmælið sitt. Fyrst var náttúrulega dagurinn sjálfur, 11.des, þá var farið með köku í skólann og afi Viðar var í heimsókn, ansi rólegur afmælisdagur. Nú um helgina var það sko aldeilis bætt upp með tveimur mannmörgum og fjörugum afmælisveislum. Herlegheitin hófust á föstudag eftir vinnu, þá mættu hingað afar og ömmur, frændur og frænkur, um 25 manns. Rosa stuð! Næsta dag var svo vinaboð með enn fleiri börnum og enn meira stuði. Mamma fékk mikla hjálp við bakstur frá Diljá og ömmu Fanneyju, og amma Gee mætti einnig í seinna boðið og jós súpu af mikilli list. Ofsalega gaman, en mikið er fjölskyldan lúin nú á sunnudagsmorgni.

Annars er helst í fréttum að Iðunn er orðin leikskóladama á ný. Hún hóf skólagöngu á Grænuborg, í skugga helgihúss Hallgríms, í síðustu viku, og næsta vika verður fyrsta vikan þar sem hún er í fullri vist alla dagana. Okkur líst öllum vel á - starfsfólkið gott, aðstaðan öll hin besta, námsskráin góð, og það sem mestu skiptir er að stelpan er glöð og hlakkar til að mæta.

Á morgun fer mamman svo í stutt skrepp til UK og kemur aftur á föstudag svo þau feðginin verða ein eftir á Grundarstíg. Það ætti nu samt bara að ganga vel, enda hafa þau reynslu af sliku frá fyrra ári, og nú eru náttúrulega ömmur og aðrir ættingjar og vinir til taks sem aldrei var í UK.

Nóg í bili...