mánudagur, 29. september 2008

Húskuldi


Húskuldar eru ansi slæmir í Bretaveldi, og þá sérstaklega um nætur þegar enginn hefur efni á að kynda. Ég hef haft smá áhyggjur af Iðunni sem aldrei vill sofa undir sænginni sinni, en hingað til hefur sumar"hitinn" bjargað okkur. Í nótt vaknaði ég hins vegar til að gefa Iðunni og uppgötvaði að litlar hendur og fætur voru sem mini klakar....ekki gott fyrir stelpuna, og ekkert sérstaklega þægilegt fyrir mömmuna heldur. Myndin hér að ofan er af Iðunni þegar hún fór að sofa í kvöld. Fulldúðuð í vörum frá 66N - gallinn er reyndar alltof alltof stór en þetta var eina lausnin sem mér datt í hug í flýti til að halda hita á tásunum. Takk elsku Dagur frændi fyrir afnotin af þessum fína galla, þó hann hafi etv ekki verið ætlaður sem náttklæðnaður!

Covergirl!


Iðunn hefur tekið fyrsta skrefið í átt að frægð og frama með forsíðumynd á frægu tímariti. Nei, nei, ekkert jafn lágkúrulegt og Vogue, Cosmo eða Marie Claire fyrir dömuna okkar. Hún mun prýða forsíðu vísindaritsins Human Nature í December, og að ofan má sjá hve vel hún tekur sig út. Byrjuð í vísindunum strax á fyrsta ári - geri aðrir betur!

sunnudagur, 28. september 2008

Spes fyrir ömmur: Iðunn felur sig og spjallar

Ömmurnar virðast hafa horft svo oft á hin vídjóin að þær hljóta að þurfa eitthvað nýtt að skoða, hér kemur það:

Pennine Way og Tan Hill


Hér var allt á hvolfi þegar við komum heim - ekki hafði gefist tími til að ganga frá þvotti eða skipta á rúmum áður en farið var til Barcelóna, og það varð að koma öllu í lag áður en allir byrja í nýrri vinnu, leikskóla og gamalli vinnu í næstu viku. Hins vegar kom á móti að aldrei þessu vant er yndislegt haustveður, sól og blíða, og bara engin leið að hanga innivið. Við ákváðum því að slá þessu upp í kæruleysi og fara bara í göngu upp á heiði. Við gengum lítinn hluta af mikilli gönguleið sem heitir Pennine Way og nær eftir Bretlandi endilöngu. Best er við hlutann sem við völdum að hann endar á pöbb sem heitir Tan Hill og er víst sá pöbbur sem hæst stendur í Englandi. Þangað er gott að koma enda ófáir gestirnir sem ég hef dregið þangað í gegnum tíðina. Gangan var skemmtileg, útsýnið stórkostlegt í fallegu veðri og Iðunn naut að vera úti í náttúrunni. Hægt er að sjá nokkrar myndir í septemberalbúminu. Eini gallinn er að burðarpokinn sem við eigum er ekki mjög góður í erfiðari og lengri göngur (húsmóðir kom heim ansi bakveik), en nú erum við búin að panta annan poka betri og berst hann vonandi hingað í næstu viku svo við getum haldið áfram að skoða landið.

laugardagur, 27. september 2008

Barcelona


Jæja þá erum við komin aftur eftir vel heppnaða ferð til Barcelona - 9 1/2 dagur fjarri skarkala hversdagslífsins og ansi ljúft allt saman.
Ferðin byrjaði reyndar ekki vel: Samkvæmt gömlum sið Unu voru sætisfélagar ekki hinir bestu - fullir tattúeraðir slömm gaurar (með fjsk.) allt í kringum okkur á leið á Costa Brava ...að stæra sig af að hafa drukkið 8 bjóra í 2 1/2 tíma flugi sem segir ansi margt um gæðin á þeim ferðafélögum. Ekki tók betra við þegar til Barcelona var komið. Við hringdum í leigusalann og mættum á svæðið á tilsettum tíma, en leigusalinn mætti hins vegar ekki fyrr en rúmum tveimur tímum seinna, eftir að hafa hringt endalaust og lofað að vera á leiðinni, og við staðið eins og sígaunar á götuhorni með allt okkar hafurtask allan þennan tíma. Reyndar sýndi sig manngæskan þar eins og annars staðar, að eftir tæpra tveggja tíma bið, þegar farið var að dimma, kom kona út úr húsinu á móti og bauð okkur Iðunni inn til sín í sæti þar til leigusalinn kæmi - hafði hún verið að fylgjast með okkur út um glugga sinn á 4. hæð í dágóðan tíma. Hún talaði ekkert nema spænsku og við enga, en hún bauð mér ólívur, ost og brauð, og dóttir hennar ca. 8 ára bar endalaust af leikföngum í Iðunni og skemmti henni af mikilli þolinmæði.
Eftir að í hús var loks komið var allt í lukkunnar velstandi hjá litlu fjölskyldunni okkar það sem eftir var dvalarinnar. Iðunn undi sér vel í hitanum og var hrókur alls fagnaðar, enda er maður ansi vinsæll á suðrænum slóðum með risastór djúpblá augu. Hvert sem við komum kepptust gamlar konur, túristar og sérstaklega veitingafólk við að dást að Iðunni, fá að halda á henni og knúsa og kjassa. Iðunn brosti náttúrulega framan í alla og sýndi þeim litlu tönnina sína og var bara yndislegust og fallegust eins og alltaf.
En hvað var gert í ferðinni: Við eyddum reyndar megninu af tímanum í að skoða fólk, ganga um götur og sitja á kaffihúsum að virða fyrir okkur mannlífið. Lögðum mikið upp úr að heimsækja öll helstu hverfin og fá góða tilfinningu fyrir þeim. Það rigndi aðeins á okkur af og til og einn dag var algjört úrhelli sem var samt ansi fyndið á súrrealistískann hátt - Helgi og Iðunn eignuðust bæði nýja regnjakka eftir þann dag! Meðan við vorum þarna stóð yfir Merce - aðalhátíð barcelónabúa, - með flugeldasýningum, vínkynningum, leiksýningum osfrv og nutum við góðs af. Við fórum með barnið í funicular yfir höfnina og hugsuðum til ömmu Gee sem er svo lofthrædd. Við skoðuðum Míró safnið og fundum þar sýningu eftir Ólaf Elíasson. Við hugsuðum til afa Braga einbúa þegar við sáum svefnherbergi Gaudi í Gaudísafninu. Við kenndum stelpunni okkar að borða tortilla, smokkfisk, jamon, ólívur og annað góðgæti. Við uppgötvuðum að með litla stelpu með í ferð verður maður að borða meginmáltíðina í hádeginu og láta sér nægja snarl á kvöldin. Við keyptum Campers skó þrátt fyrir dvínandi gengi krónunnar. Við fórum á vínkynningu Katalóníumanna og fundum besta vín í heimi sem samt kostaði bara 3,7 evrur. Sem sagt allt of langt að telja saman, en ofsalega vel heppnuð ferð.
Við lentum í Durham Tees Valley Airport í yndislegu sólskini og 16 stiga hita, sem er ansi gott í lok september. Góður endir á yndislegri brúðkaupsferð - 14 mánuðum og einu barni of seint!

miðvikudagur, 24. september 2008

Amma Fanney á afmæli í dag!!


Í dag á amma Fanney afmæli, orðin hmmmmmmmm ára. Amma Fanney er súperflínk, búin að hekla hatta og prjóna peysur og vesti til að hlýja okkur öllum í enska vetrarkuldanum. Svo bakar hún líka bestu kransakökurnar! Til hamingju með daginn amma Fanney - vonandi komumst við heim sem allra fyrst til að gefa þér Iðunnarknús!

miðvikudagur, 17. september 2008

Góðir gestir


Í kvöld kom hingað Daníel vinur okkar allra, og með í för var enn mikilvægari gestur: Chloe stjúpdóttir hans, 10 ára. Iðunni finnst Chloe æðisleg og ég held að aðdáunin sé gagnkvæm. A.m.k. var mjög gott fyrir foreldrana að fá að slappa af og tala við Daníel, vitandi að Iðunn undi sér vel að leik við Chloe. Yndislegt! Annað er helst að frétta að ráðningarsamningur Helga kom í dag og við gengum í að opna fyrir hann bankareikning, og allt gekk furðu vel.
Barcelona á morgun!!

Iðunn hoppar

Hitt vídjóið vakti svo mikla lukku að við reynum aftur - í þetta sinn Iðunn í hoppurólu...aðeins verri lýsing, en jafn mikið fjör!

þriðjudagur, 16. september 2008

Half a brain......


Augljóst er að vídjóblogg er málið, enda hafa aldrei borist jafn mörg komment við neinni færslu og þeirri síðustu, þó Hildur hafi aðeins hjálpað til með að nýta vikuskammtinn sinn á einum degi.
Annars er það helst að frétta að Iðunnin er búin að vera ansi óvær á nóttunni...skríða í svefni og svo framvegis (sem væri alveg rosalega fyndið ef maður væri ekki svona þreyttur!), og halda þannig vöku fyrir móður sinni - pabbinn sefur allt af sér eins að venju. Þetta er orðið ansi þreytandi, og erfitt þegar mæta þarf í vinnu daginn eftir. Í fyrrinótt lagði ég mig kl 22.20, náði loks að sofna kl. 02 og var vakin í 3 skipti til viðbótar áður en skvísan vaknaði endanlega um sjöleytið. Úff! Afleiðingin er algjört bloggandleysi......svo lesendur verða bara að hafa mig afsakaða í dag. Tomorrow is another day.....og svo Barcelona daginn þar á eftir!!

mánudagur, 15. september 2008

Iðunn rólar!

Felutönn


Enn sem komið er er Iðunn bara með eina tönn. Mamman og pabbinn voru nú samt svo ánægð með tönnina að þau vildu endilega sjá hana og allra helst að fá að sýna hana öðrum, en Iðunn er ekki á sama máli....ég held að tönnin hafi verið vikugömul þegar ég fékk að sjá hana fyrst. Allar götur síðan hef ég nýtt hvert tækifæri til að reyna að ná af henni mynd til að sýna Iðunnarömmum og öðrum aðdáendum, en allt kom fyrir ekki, aldrei sást tönnin! En loksins loksins er komin mynd af tönninni, ef vel er að gáð! Og að neðan má sjá heimasætuna nota þessa fínu tönn til að skafa innan úr epli - Nammi namm!

sunnudagur, 14. september 2008

Letilíf


Hér er búið að vera ansi rólegt í dag. Við mæðgur dunduðum okkur við lestur fram eftir degi á meðan Helgi skoðaði framboð á fartölvum á netinu. Seinni partinn fórum við svo í smá göngu og litum við hjá Donnu. Á leiðinni heim var rólað af miklum krafti á Demesnes rólónum sem alltaf gerir mikla lukku hjá Iðunni. Annars erum við bara í því að undirbúa Barcelonaferð - þvo föt og skipuleggja hitting við leigusala osfrv. Á morgun er svo fyrsti vinnudagurinn á nýju skrifstofunni og vonast ég til að geta nýtt hann vel.
Takk takk fyrir kommentin á síðustu færslu....alltaf gaman að fá sem flest...hint hint!

föstudagur, 12. september 2008

Flutningar á föstudegi


Föstudagur runninn upp og loksins kominn tími til að flytja skrifstofuna. Iðunn hjálpaði okkur Helga að taka allt upp úr kössunum og ganga frá, og þó ég segi það sjálf er þetta hin huggulegasta skrifstofa og verður vonandi gott vinnuumhverfi. Verst er þó að glugginn er svo hátt uppi að það er engin leið að sjá út um hann án þess að koma sér upp einhverju speglasystemi. Jæja, maður freistast þá ekki til að góna út um hann langtímum saman heldur.
Fleiri flutningar voru í gangi í dag, því afi Viðar og amma Titti hafa fengið nýja húsið sitt afhent - við óskum þeim til innilega til hamingju með það og hlökkum til að koma til þeirra sem allra allra fyrst til að skoða herlegheitin.

PS 100. pósturinn á blogginu - kommentið nú í tilefni dagsins svo ég viti að ég sé ekki bara að blogga fyrir ömmu Gee (þó kommentin hennar séu náttúrulega alltaf jafn skemmtileg og velkomin!)

fimmtudagur, 11. september 2008

Nóg að gera á fimmtudegi


Þrennt gerðist markvert í dag: Una náði loksins loksins að klára að pakka niður allri skrifstofunni sinni, Helgi sat sinn fyrsta vinnufund sem MC Fellow, og kórstarf í ellismellakórnum hófst að nýju.

Skrifstofupökkunin var alveg ótrúlega mikið og leiðinlegt verk. Sýndi mér samt hve fljótt hlutir sem maður sankar að sér breytast í drasl......og hversvegna í ósköpunum hef ég verið að geyma gamlar fundargerðir frá 1999 og óteljandi prófarkir af doktorsritgerðinni minni? Hins vegar fann ég líka ýmislegt sem gaman var að sjá aftur, svo sem eins og myndina sem sjá má hér neðanmáls og sannar það sem mamma mín er alltaf að segja: að Iðunn sé ansi lík mömmu sinni! En sem sagt búin að pakka öllu, og 25 sekkir af drasli eru farnir á haugana - góður undirbúning undir heimfluttning að ári.

Helgi fór á Skype fund hérna heima með mönnum í Seattle, Vín og Hull. Allt gekk vel og leggst starfið vel í hann. Nú er búið að stimpla alla pappíra hjá Evrópusambandinu og hann því endanlega kominn í starfið. Húrra fyrir því!
Kórinn var samur við sig - falskar nótur og mæmarar, en bara nokkuð gaman að hitta suma, og enn meira gaman að fá að þjálfa raddböndin aðeins. Verð samt að játa að ég er farin að hlakka til að komast til Íslands og í betri kór.

Iðunn er yndisleg eins og alltaf og búin að vera í bananastuði í allan dag. Hún kom með mér í smá skrepp að skila afmæliskorti til Lucy, dóttur Barböru vinkonu minnar, og skreið þar um alla stofu og skildi við allt á tjá og tundri...ég er búin að sjá að hún heldur mér í ansi góðu formi með að þurfa alltaf að vera að hlaupa á fætur til að forða henni frá slysum, eða brothættum munum.

miðvikudagur, 10. september 2008

Klaufabárður


Það erfiðasta við að læra að skríða, standa upp og almennt færa sig úr stað í veröldinni, er að allt í einu fara alls kyns dauðir hlutir að ráðast á mann! Það sem af er þessari viku hafa bæði gólf og stólar ráðist til atlögu gegn Iðunni og er hún orðin ansi krambúleruð í framan, með tvo stóra marbletti á enninu og rispu á nefinu. Við vonum bara að engir fari að kæra okkur til barnaverndaryfirvalda fyrir 111. meðferð á ungabörnum!

þriðjudagur, 9. september 2008

Nýr stóll


Þegar lítlar stelpur eru komnar með tennur og orðnar mikil matargöt er náttúrulega nauðsynlegt að eignast sinn eigin stól, og þó fyrr hefði verið. Í morgun var bankað upp á í Victoria Road, og þar kominn maður með þennan fína hárauða stól sem foreldrarnir höfðu pantað handa Iðunni. Þvílík lukka! Aldrei aftur að þurfa að þola þá niðurlægingu að láta beisla sig í kerru eða bílstól til að borða kvöldmatinn! Og ekki skemmir fyrir hve vel hann passar við fílanáttfötin úr Lindex, sem Iðunn er loks vaxin uppí, einungis 6 mánuðum eftir ferð okkar til Svíþjóðar.


Að öðru leyti er allt gott að frétta - Iðunn er með smá nasakvef en ekkert sem háir henni, og mamman komin langleiðina með að pakka niður skrifstofunni sinni.

mánudagur, 8. september 2008

Myndataka


Eplafjölskyldan dreif sig í myndatöku á dögunum og má sjá afraksturinn hér að ofan. Við erum afskaplega ánægð með útkomuna og getum loksins séð hve lík Iðunn er okkur báðum.
Við erum ansi meðvituð um hve mikið amma Gobba saknar okkar allra, enda skrifar hún mörg einsömul og vængbrotin komment á síðuna. Því ákváðum við að best væri að taka myndir sem vísa í hennar "comfort zone", og þar sem hún sæi svip með okkur öllum og gömlum myndum af sjálfri sér. Má sjá afraksturinn hér:



Fyrir alla aðra sem vilja fínar myndir af sjálfum sér má benda á: http://yearbookyourself.com/

og að lokum....amma G (Amma Gee!) komin aftur í sixtísgírinn:

sunnudagur, 7. september 2008

Sunnudagur


Afslöppunin hélt áfram í dag með heldur tíðindalitlum sunnudegi. Við fórum þó í gönguferð til að virða fyrir okkur vatnavexti í ánni Tees, sem voru ansi miklir, a.m.k. meiri en Helgi hefur áður séð. Veðrið var enn og aftur hálf leiðinlegt og engin leið til að vita hvernig manni ber að klæða sig - sól og hitastækja á milli langra ískaldra regnskúra. Gengum meðfram ánni upp í sveit og sáum þar m.a. hegra, og fáránlegar kindur með langa dindla (hálfgerða hala!). Bókuðum svo loks íbúð í Barceloneta fyrir brúðkaupsferðina langþráðu - ekki nema 11 dagar þangað til!
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur Iðunni tekist að klóra sig til blóðs á nefinu þrátt fyrir endalausar naglasnyrtingar, og er hún því ansi fyndin í framan þessa dagana. Tanntakan er líka að valda henni smá óþægindum, a.m.k. þykir okkur hún óvenjulega óvær. Ofan á allt þetta leggjast sífelldar byltur, enda stefnir hugurinn oft í meiri langferðir og hærri hæðir en líkaminn er fær um, hvað þá jafnvægisskynið. En hún er náttúrulega alltaf flottust, sætust og yndislegust!

laugardagur, 6. september 2008

Matargat


Anna Lilja var að falast eftir matarbloggi. Þeir sem ekki hafa áhuga á matarvenjum ungbarna geta því hætt að lesa núna.
Nú, 9 mánaða, með 2mm af einni framtönn er Iðunn farin að borða ansi margt. Uppistaðan er nú kannski að mestu leyti grautar, mauk og brjóstamjólk, en hún vill ólm smakka allt sem foreldrarnir borða, og svo fremi sem það er ekki of salt eða sætt fær hún það. Þannig hefur hún smakkað og borðað ansi vel af reyktum laxi, sauerkraut, brauði, osti, melónum, ananas, grænmeti, pasta með ýmsum sósum, (sykurskerta versjón af) kartöflumús a la Lína, hrískökum og svo framvegis. Enn er lítið af mjólkurvörum á dagskrá, nema ostur og svo fékk hún skyr heima og jafnvel smakk af Brynjuís á Akureyri. Hún farin að fá maukaðar versjónir af kvöldmatnum og borðaði hún í kvöld hvorki meira né minna (sammaukað) en heilt kjúklingalæri, 1/2 ofnbakaða sæta kartöflu, og smá sneið af rauðlauk. Henni er nokk sama hvort kekkir séu í matnum svo fremi sem hún ráði við að koma matnum ofan í sig. Sem sagt, lítið matargat sem enn sem komið er er ánægð með flest sem henni býðst. Við erum voða fegin!

Nýju fötin feðginanna

Hér að ofan má sjá Helga Pétur (a.k.a. Blue Steel) í nýju peysunni sem keypt var á hann í bæjarferð. Iðunn sýnir nýjar sokkabuxur frá Marks & Spencer. Mig grunar að þrátt fyrir að Iðunn eigi svo sem nóg af fötum í sinni stærð verði ég að fara að kaupa fleiri þunn og lipur ullar- og flísföt til að bæta fyrir vetrar rakann hér í UK - hér er þegar orðið svo hráslagalegt inni sem úti að Iðunn fer í Janusgalla eða flíspeysu utan yfir náttfötin þegar hún fer fram úr fyrst á morgnana. Brrr.... ég er farin að sjá enn betur kostina við að búa á Íslandi - húsin heit og um fram allt þurr!

föstudagur, 5. september 2008

Gul stígvél í mígandi rigningu


Hér rekur hver merkisdagurinn annan. Helgi er orðinn Marie Curie Fellow, og nú er komið að Iðunni að takast á við miklar breytingar. Eftir símhringingar og pælingar fundum við pláss fyrir hana á leikskóla sem heitir því ágæta nafni Yellow Wellies. Það var því viðeigandi að þegar við fórum að skoða leikskólann í dag var dæmigert stígvélaveður og gott betur......hér er varað við stórflóðum og Arkarsmíð í undirbúningi. Okkur leist öllum vel á skólann. Hann er í stóru gömlu húsi í Durham sem áður hýsti geðsjúklinga (tengsl okkar við læknastéttina haldast sterk að venju). Það er smá útivistarsvæði og krakkarnir hvattir til að vera úti í öllum veðrum (yfirleitt er útivera ekki á stundaskránni í breskum leikskólum), matur allur vistvænn og ekki ein einasta frönsk kartafla á matseðlinum. Einn starfsmaður á hverja þrjá krakka, og aðstaðan í alla staði góð. Lítur því allt út fyrir að Iðunn fari í þriggja daga aðlögun þegar við komum frá Barcelóna.
Helgi fór og fékk sér nýjan síma með ensku númeri...síminn hans nú er því (+44-7810080398). Öllu brösulegar gekk að fá sér bankareikning, þar sem engin önnur plögg eru tekin gild um búsetu en reikningar, sem hér eru allir í mínu nafni, svo nú er bara að ganga í að fá Helga á þá svo hægt sé að opna bankabók.
Annars allt bara fínt að frétta, allir lúnir eftir langa viku og tími til kominn að skríða í bælið.
Toodiloo...

fimmtudagur, 4. september 2008

Hvað er að gerast? Gaflinn fer hækkandi!


Eygló eldri frænka (til aðgreiningar frá Eygló yngri frænku, sem er 8 ára..bara svo að Eygló eldri móðgist nú ekki) getur varpað öndinni léttar því búið er að lækka rúmbotninn og koma upp fangelsi fyrir Iðunni. Henni þykir þetta allt óskaplega spennandi eins og er, en mig grunar að ljóminn fari af nýunginni um leið og rennur upp fyrir henni hve rýmið er lítið innan rimlanna.
Annars er lítið að frétta, nema að Donna bauð okkur í mat í kvöld til að skoða myndir úr Íslandsferðinni og hitta okkur öll á ný. Hún er enn jafn ánægð með ferðina þrátt fyrir að hafa hitt alla fjölskyldumeðlimi okkar...sem líklegast gefur til kynna hve hún er stabíl manneskja og jákvæð. Á morgun er svo fótbolti hjá Helga í fyrsta sinn í 6 vikur...mig grunar að hann verði ansi lúinn annað kvöld :-)

miðvikudagur, 3. september 2008

Rólegheit


Eftir mikið span síðustu vikur fékk litla skvísan loks dag í rólegheitum heima með pabba sínum. Við vonum að hún nái ansi mörgum slíkum áður en við skellum okkur til Barcelona í síðbúna brúðkaupsferð um miðjan mánuðinn - einungis 14 mánuðum og einu barni of seint! Vel þess virði samt því nú höfum við fengið skemmtilegasta ferðafélagann í Iðunni. Á meðan feðginin dóluðu sér heima fór ég í vinnuna og vann af kappi...fór svo og skoðaði nýju skrifstofuna mína (deildin flytur eftir 2 vikur), og uppgötvaði að þar eru ekki nema 6 heilar og 3 stuttar hillur.....u.þ.b. 75% minna hillupláss en ég er með sem stendur. Einnig að húsgögnin passa ekki inn á skrifstofuna - ég sé fyrir mér að það verður mikið púsl að flytja þarna inn. Ég þori samt ekki að kvarta því margir hafa þurft að vera saman í herbergi, og ég hef þó þessi herlegheit alveg fyrir mig.
Nú er klukkan orðin 19.30 og litla skutlan sofnuð, rólegheitakvöld framundan með Helga svo fremi sem nýja tönnin valdi ekki svefnvandræðum hjá heimasætunni.
Ég býð góða nótt.....

þriðjudagur, 2. september 2008

Ofurframapotarinn


Merkur dagur í dag. Með eins dags fyrirvara tókst Helga að koma saman prýðis fyrirlestri, finna straujaða skyrtu, bruna til Hull og fara í mjööööööög langt viðtal.
Allt gekk vel og er hann nú orðinn Marie Curie Early Stage Research Fellow í tölvunarfræði. Mæting næsta mánudag. Húrra fyrir Evrópusambandinu og rannsóknarpeningunum þeirra!
Þá er næst að finna leikskóla fyrir Iðunni........

mánudagur, 1. september 2008

Loks komnar myndir


Þá eru loks komnar nýjar myndir af hringferðinni - enn er eitthvað eftir að setja inn í júlí og ágústalbúm næstu daga.

Þýskalandsferð

Engin myndavél fór með í ferð okkar um Þýskaland, þó ýmsir hafi tekið myndir af Iðunni meðan á henni stóð - m.a. túristar sem sáu hana og vildu mynda.
Þegar við komum á tannaráðstefnuna voru allir að spyrja hvernig gengi með tannmyndun Iðunnar, en þar sem engar voru tennurnar fengum við endalaus komment um að barnið væri nú aðeins á eftir áætlun í þessum efnum. Iðunn ætlaði nú ekki að láta hafa eftir sér að hún væri sein til neins og dreif sig því í að koma upp fyrstu tönninni LRDI1 (neðri framtönnin fyrir okkur hin) meðan á ráðstefnunni stóð. Enginn grátur eða verkir virðast fylgja þessari enn sem komið er, við vonumst bara til að góða skapið haldist áfram.
Að öðru leyti gekk allt vel - Iðunn fór í móttökur og matarveislur fram eftir öllum kvöldum; við skoðuðum húsdýragarðinn í Greifswald; og Iðunn heillaði alla uppúr skónum að venju.

Íslandsmyndir koma síðar í dag

Staðið í ströngu


Iðunn litla Helgadóttir er loksins komin heim til Barnard Castle eftir Íslandsdvöl með hringferð og fyrirlestraferð um Þýskaland. Margt hefur gerst á þessum tíma sem tekið verður saman i næsta pósti, en nýjustu fréttir eru þær að Iðunn hóf septembermánuð með upprisu - þ.e að reisa sig upp við rúmkantinn til að teygja sig í geisladisk ofan á kommóðunni sem henni leist vel á. Mér sýnist þessi dama ekki ætla að bíða með göngu til 18 mánaða aldurs.