Aldrei ætluðum við að stunda bloggfærslur......
en nú er svo komið að Iðunn og foreldraeplin hafa ákveðið að halda til Bretlands á ný og dvelja þar í svo sem eins og 12 mánuði. Okkur varð fljótlega ljóst að ef við ætluðum að halda skyldmennum Iðunnar glöðum yrðum við að setja upp einhvers konar fréttastofu og eftir nokkra umhugsun urðum við að viðurkenna að hið illræmda bloggform hentaði fréttastofunni nokkuð vel.
Svo hér er það komið. Við stefnum á að vera virk í fréttaflutningnum, en gerum á móti þá kröfu að vinir og vandamenn séu duglegir að láta í sér heyra í kommentum.....engum þykir gaman að tjá sig í tóminu.
Við höldum utan 4. mai 2008 - frekari bloggfærslur bíða því fram yfir þá dagsetningu.
8 ummæli:
hlakka til að halda upp á utanferðina með Bollywood partýi þann 30. apríl. Mun sú litla mæta?
Jújú gerum ráð fyrir því. Ekki víst samt hve lengi foreldrarnir endast!
...vonandi verður hún örlítið minna drukkin en frændur hennar og frænkur við það tilefni...
Ja hérna, stendur til fyllerí hjá Eygló, Sunnu, Braga og Degi?
það byrja allir ungir í þessari fjölskyldu! Er ennþá að jafna mig eftir "eplasafann" a.k.a. fíflavínið sem einhvernvegin var alltaf óvart inn í ísskáp á Suðurgötunni.
En gaman að fá að fylgjast aðeins með. Amman verður tryggur lesandi. Verið svo bara dugleg að skrifa um afrek ykkar allra.
Hæ hæ.
Gaman að fá fréttir af ykkur.
Værum alveg til í að hitta ykkur skötuhjúin áður en þið haldið til Durham. Ef ykkur vantar hvíld (rosa góður svefnsófi + ferðarúm fyrir litla prinsessu) eða bara kaffi þá eru þið innilega og afskaplega velkomin.
Við erum líka alveg til í að gera okkur ferð inní stórborgina.
Kær kveðja
Gerða og Co.
Frábært að fá að fylgjast með ykkur, á eftir að rata hér oft inn.....
Skrifa ummæli