laugardagur, 28. febrúar 2009

Vorið er komið


Þó febrúar sé bara rétt að fara að kveðja er vor í lofti hér í Barnard Castle. Krókusar og snjódropar spretta uppúr moldinni og komnir knúppar og pínulítil laufblöð á marga runna og tré....yndislegt! Enn betra er að nú er orðið albjart kl 07.15 þegar við Iðunn brunum af stað í vinnu og leikskóla á morgnanna. Nú bíðum við bara eftir að sjá fyrstu lömbin....
Gaman núna!

Afmæli, afmæli!!


Diljá okkar á afmæli í dag, orðin tuttuguogeinsárs! Í tilefni þessa, og afmæli ömmu Gee fyrr í vikunni er haldið fjölskyldumatarboð í turnhúsinu í kvöld. Okkur finnst voða leiðinlegt að missa af þessu skemmtilega boði, enda ekkert betra en góður matur og skemmtilegt kompaní, sem eflaust verður hvort tveggja að finna á Tryggvagötunni.
Knús a þig elsku Diljá og til hamingju með daginn þinn!!!

miðvikudagur, 25. febrúar 2009

XXX


Víð bíðum og bíðum eftir hlaupabólunni...Iðunn er nú orðin eina barnið uppistandandi á ungbarnadeildinni á Stígvélabæ. Nú er víst komin bæði gin og klaufaveiki og kossageit á leikskólann líka - það virðist líkindafræðilega útilokað í öllum þessu veikindaárasum að Iðunn verði hress og hraust þegar amma Gee kemur. Ég reyni bara að líta á þetta Pollýönnuaugum...það verður þá alltaf amma til að létta undir með foreldrunum! Við héldum að nú væri ástandið að versna í gærkvöldi þegar Iðunn rauk upp í hita (einungis annað sinn á lífsleiðinni), en allt var komið í lag í morgun og hún átti góðan dag á leikskólanum, enda ein um athyglina. So far so good.
Í framkvæmdafréttum er það helst að Helgi er búinn að mála herbergi Iðunnar....hann er málarameistari OG uberforritari - Húrra fyrir honum!!

þriðjudagur, 24. febrúar 2009

Subbudagurinn


Sprengidagurinn er erfiður viðureignar fyrir rúmlega eins árs gamlar stúlkur...súpan á það til að sleppa alltaf úr skeiðinni og erfitt að vinna á kjötinu með framtönnunum einum saman - en þrátt fyrir það eru allir í Victoria Road sammála um að ekkert jafnast á við heimatilbúna baunasúpu (í þetta sinn með beikoni í stað saltkjöts). Nammi namm!!

Ömmuafmæli.


Hún elsku amma Gee í turninum á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið, elsku amma okkar, við hlökkum svo til að fá þig í heimsókn eftir hálfan mánuð - þá verður sko aldeilis fjör á Victoria Road!! Iðunn sendir stóra kossa og fullt af knúsi til þín!!
Láttu nú Diljá og alla aðra fjölskyldumeðlimi dekra við þig í tilefni dagins....

PS Amma Gee er nú samt svakalega ung í anda því hún er gengin á fésbók!! Við erum afskaplega stolt af henni!!

mánudagur, 23. febrúar 2009

Gúrkutímabil


Héðan er svo lítið að frétta að jafnvel húsmóðirin getur ekki týnt saman nægilegar fréttir í blogg. Helgi er þó byrjaður að mála nýju herbergin og Iðunn er farin að ganga með á annarri. Fleira er ekki í fréttum.

föstudagur, 20. febrúar 2009

Afmælisdagur


Ég átti alveg hreint yndislegan afmælisdag...þrátt fyrir að hafa þurft að mæta í vinnuna sem ætti náttúrulega að vera bannað þegar maður á afmæli. Fyrst fékk ég kaffi áður en ég fór í vinnuna, og ávísun á nudd og andlitsdekur í afmælisgjöf frá Helga og Iðunni. Þau eru yndisleg. Svo þegar ég kom heim úr vinnu tók enn betra við því Helgi hafði bakað handa mér dýrindis franska súkkulaðiköku og skreytt með hindberjum og bjartsýnisskilaboðum (alltaf að yngjast!).


Iðunn fékk að smakka á kökunni og við mæðgur vorum sammála um að hún væri hið mesta hnossgæti og við einstaklega heppnar að eiga svona flinkann eiginmann og pabba. Nammi namm!
Rétt fyrir átta um kvöldið kom svo Donna og sat hjá Iðunni á meðan við skruppum út að fá okkur indverskan mat - risarækjur í balti sósu mmmmmmmmmmmmmm.........
Yndislegur dagur í alla staði!
Hér er svo ein crazy fjölskyldumynd í tilefni dagsins!


PS Iðunnarfréttir: Iðunn er komin með bílaæði og vill helst leika sér með bíla allan daginn. Við eigum enga bíla og þurftum að fá einn að (bráðabirgða)láni hjá leikskólanum....

fimmtudagur, 19. febrúar 2009

ammælis


Sætasti mannfræðikennarinn og besta mamman og eiginkonan á afmæli í dag.

Til hamingju með daginn.

miðvikudagur, 18. febrúar 2009

Prjónaamma


Hingað barst skemmtileg sending í dag. Pakki stílaður á Iðunni Helgadóttur frá ömmu Fanneyju


Hvað skyldi nú leynast í þessum flotta pakka?




Nei sko!!!!! Heilt dress og flottast af öllu lopakjóllinn sem amma er búin að dunda sér við að prjóna í Iðunnarleysinu. Líka mynd af ömmu og Iðunni með Hafsteini og Huldu - gaman gaman!



Hér er Iðunn komin í kjólinn, en reyndar ekki allt dressið - orðið var aðeins of áliðið að fá hana í heilgallaskipti - sjáið þið bara hvað þetta er flott! Nú er um að gera að læra að ganga því ekki er hægt að skríða í svona fínum kjól.
Takk takk elsku amma Fanney fyrir þennan fína pakka, þú ert náttúrulega bara prjónasnillingur!

Veðurfréttir


Í gærkvöldi skildum við ekkert í því hve Iðunn sem yfirlett hefur lítinn áhuga á sjónvarpinu horfði hugfangin á veðurfréttirnar og baðaði út öllum öngum. Loks rann upp fyrir okkur ljós að hún var alltaf að herma eftir hreifingum veðurfræðingsins. Þegar hann benti, benti hún líka, og þegar hann veifaði örmunum yfir veðurkortinu gerði hún slíkt hið sama. Æ, stundum er ekkert skemmtilegra og fyndnara en að fylgjast með stelpunni okkar uppgötva heiminn í kringum sig!

mánudagur, 16. febrúar 2009

Óvenjulega góður dagur


Það er ekki oft sem sögur af bílaviðgerðum enda vel...en í dag gerðist einmitt sá óvenjulegi atburður. Bíllinn okkar var eitthvað óhress, og reyndar búinn að vera þannig síðan um jól. Átti til að missa allan kraft og jafnvel drepa á sér á fullri ferð, sem gerir ökuferðir ekkert sérstaklega afslappandi fyrir bílstjórann. Í dag gat ég loksins tekið mér frí úr vinnunni svo við brunuðum til Masham á verkstæðið "okkar" sem alltaf reynist okkur svo vel. Við bjuggumst við að vera lengi að bíða og fórum því vel klædd, og með kaffi á brúsa . Fengum okkur kaffi og morgunmat (morgungraut) á bekk á torginu í þessum litla bæ....(Helgi hafði á orði að einhverjir myndu kannski halda okkur þýska túrista....) Eftir klukkutíma snérum við aftur til að fá fregnir af hvað þyrfti nú að gera og hversu langan tíma það tæki, og þá var viðgerðin bara búin. Kom í ljós að eitthvað kolvetnisgrugg eða klístur var fast í eldsneytisgjafanum...það var hreinsað og allt komið í lag. Og enn betra: við þurftum ekkert að borga, því við erum svo góðir kúnnar! Jibbíjei!
Þar sem við höfðum gert ráð fyrir að viðgerðin yrði bæði tímafrekari og kostnaðarsamari slógum við bara deginum upp í kæruleysi, og héldum til Harrogate að skoða allar fínu búðirnar þar. Helgi fékk nýja boli í Gap, Una nýja boli og nýtt pils...og litla daman fékk yndislega sæt gammeldags flónelnáttföt (sjá neðan) á útsölu í snobbbúð Cath Kidston. Frábær dagur í alla staði, og ágætis framlenging á helginni.

laugardagur, 14. febrúar 2009

Da Goo!


14.febrúar...valentínusarmessa.
Eins og allir vita er stefnan að ala upp snilling hér á Victoria Road. Hingað til gengur allt samkvæmt áætlun og manngangurinn og tegrun alveg á næsta leyti. Daman hefur síðan í október verið fullfær um að segja takk þegar henni eru réttir hlutir (Taaaa, Taaaaaa), en allt í einu fór hún að tönglast á einhverju Da Gooooo.... Foreldrarnir skildu ekki neitt í þessari afturför fyrr en mætt var í leikskólann og fóstran tilkynnti þeim að eftir að hafa tjáð sig með einhverju óskiljanlegu Taaa í marga mánuði væri barnið loks farið að segja Thank you. Sem sagt alls engin afturför, heldur færði hún sig einfaldlega á lægra plan og tók upp enskuslettu fyrir dömurnar á leikskólanum...
Snillingsþjálfunin enn á áætlun!

föstudagur, 13. febrúar 2009

Áframhaldandi sjálfstæðisbarátta


Stelpan okkar tekur daglegum framförum, og allt vill hún gera sjálf. Hún getur klætt sig í húfuna, hún getur klifrað upp næstum allan stigann í einni ferð (með pabba á eftir sér...), hún getur borðað sjálf, drukkið sjálf, og í gær sýndi hún okkur að hún getur staðið sjálf ein og óstudd í dágóða stund. Hins vegar er hún líka "sjálf" fyllilega fær um að klemma fingur í skúffum, stíma á öll horn og kanta, reka höfuðið í gluggakistuna, og detta niður úr sófanum og festast þar. Erfitt að vera sjálfstæður grallaraspói!

Að neðan má sjá að grallarasvipurinn er ekki nýtilkominn - Iðunn fyrir ári síðan

miðvikudagur, 11. febrúar 2009

Bzzzzzzzzzzzzzzzzz.....................


Í dag kom aldeilis skemmtileg sending með póstinum. Iðunn hafði fengið peninga til að kaupa sér bæði afmælis- og jólagjöf frá afa Viðari og ömmu Titti. Foreldrarnir voru eitthvað lengi að koma því í verk að nota peningana, en í dag kom loksins gjöfin: fínasta rúllubífluga!!! Þessi bífluga rúllar í allar áttir og festist því ekki í hornum....svo spillir ekki fyrir að hún er ansi smart! Iðunn er stórhrifin og þau pabbi hennar eiga eflaust eftir að skemmta sér vel heima á morgun í bífluguleik.
Í öðrum fréttum er það helst að Iðunn er að fá tvær framtennur til viðbótar sem eru aðeins að ergja hana, svo næturnar hafa verið svoldið erfiðar...ekki bætir úr að mamman er með þrálátan hósta sem heldur fyrir henni vöku þá sjaldan barnið sefur. Svo er komin upp hlaupabóla á Stígvélabæ (leikskóla Iðunnar) svo við megum víst eiga von á bólunni í heimsókn líka.
Kveðjur úr snjónum í Barnard Castle.

sunnudagur, 8. febrúar 2009

Framkvæmda"gleði"

Hér hefur nú ekki mikið verið gert í húsinu um helgina, nema við drifum okkur þó í Homebase og versluðum málningu í bæði nýju herbergin, svo allt sé nú tilbúið þegar við tökum framkvæmdagleðina á ný. Ekki er hægt að segja að framkvæmdagleðin skíni úr augum heimasætunnar á þessari mynd. Henni fannst nú samt voða gaman að reyna að rífa til sín hluti úr hillunum á meðan mamma og pabbi skeggræddu málningarliti og penslaval. Eftir málningarkaupin fórum við að gefa öndunum brauð, en því miður fengu máfarnir allt brauðið okkar því endurnar höfðu bara engan áhuga. Iðunni þóttu nú máfarnir samt bara ansi skemmtilegir, enda rifust þeir mikið um brauðmolana.
Nú er aftur farið að snjóa, og við erum að elda karrílinsubaunasúpu - corianderlykt er farið að leggja um allt hús. Mmmmmm...... Rólegt kvöld fram undan hjá fjölskyldunni í Victoria Road, og svo snemma í háttinn.

laugardagur, 7. febrúar 2009

Rólegheit


Við tókum lífinu með ró í dag. Hér er enn snjór og ísakuldi..rok og raki gerir það ekki betra. Við Iðunn skruppum nú samt aðeins á róló og róluðum lengi, lengi, en gáfumst loks upp og fórum heim þegar gerði ískaldan blindbyl á rólónum. Eyddum svo eftirmiðdeginum í að leika okkur og horfa á rugby með öðru auganu. Við Helgi erum búin að vera að skipuleggja hvernig við ætlum að hafa húsgögnin í nýju herbergjaskipaninni..erum ekki alveg viss enn, en þetta er alveg að koma. Við erum búin að velja liti á nýju herbergin svo nú er bara að drífa sig í framkvæmdagírinn..verst er að framkvæmdagírkassinn virðist eitthvað tregur!

Annars er svo gaman núna að skoða gamlar myndir. Ég merki alltaf myndaalbúmin eftir deginum sem myndirnar voru teknar svo það er auðvelt að fylgjast með þroska dömunnar. Myndin að ofan var tekin í dag....sú neðanmáls var tekin þennan sama dag fyrir ári síðan. Gaman að þessu.

Skrafað saman


Það er svo gaman að skrafa við ömmu á skypinu! Iðunn bendir á ömmunebba og veifar og sýnir allar sínar kúnstir. Verst að það eru alltaf einhverjir skruðningar að trufla okkur. En amman fær þó að sjá stelpuna og stelpan sér ömmuna og það er nú fyrir mestu. Ekki samt viss um að amma þakki mér fyrir að setja þetta á netið.

föstudagur, 6. febrúar 2009

Andlaus vikulok


Loksins kominn föstudagur og langri vinnuviku lokið. Við erum öll lúin og hálf illa upplögð, svo ég læt nægja að skella inn einni mynd af Iðunni að tala í símann.
Helstu fréttir eru þær að nýju herbergin uppi eru að verða tilbúin í málningu, svo ef við finnum einhvers staðar orku um helgina verður hún nýtt í málningarvinnu. Ólíklegt að það verði fyrr en á sunnudag þó.

þriðjudagur, 3. febrúar 2009

Tvíburar? Þríburar?


Við Íslendingar erum ansi hrifin af lopapeysum....og í Victoria Road erum við svo heppin að eiga öll fallegar lopapeysur sem amma Fanney hefur prjónað. Sökum vetrarveðurs töldum við gott að mæta til Durham í þessum peysum í dag...hins vegar hafði okkur láðst að athuga að í augum utanaðkomandi eru allar peysur eins, og við hjónin, og í raun fjölskyldan öll klædd í íslenskan einkennisbúning. Are you twins? Oh you are very matching today? Ooooh look at you all stylish and matching! Look at that, two peas in a pod! En sá hlær best sem síðast hlær - Bretarnir skjálfa í snjónum...en eplafamilíunni er hlýtt í fallegu peysunum frá ömmu.
Kærar kveðjur frá snjólandi.

mánudagur, 2. febrúar 2009

Úti er alltaf að snjóa....


Hér er komið ekta vetrarveður. Snjóaði í alla nótt og spáð mun meiri snjó á morgun. Mamman ákvað að vera bara heima í dag, og hugsa að ekki verði farið í vinnuna fyrr en um miðjan daginn á morgun. Í staðin áttum við rólegan dag, lögðum okkur öll saman í tvo tíma fyrir hádegi, og fórum svo í göngutúr í snjónum eftir hádegi. Við fórum í garðinn hennar Donnu og byggðum þar snjókarl..reyndar svoldið prímitívann. Hituðum svo súkkulaði þegar heim var komið og nutum þess að vera saman. Yndislegt að fá svona bónusdag!

sunnudagur, 1. febrúar 2009

Hásæti heimasætunnar


1. febrúar er dagur nýrrar ríkisstjórnar á Íslandi. Fyrsti kvenkyns forsætisráðherrann, og óskum við henni góðs gengis, því eitt er víst að Jóhanna þarf á öllum góðum straumum að halda. En það er önnur dama, öllu merkilegri, sem líka sest í nýjan stól: Iðunn skipti loks úr ungbarnastólnum yfir í stóru-stelpu-bílsstól. Gripurinn heitir Recaro Young Sport og er í flokki I-III, og ætti því að endast nokkuð lengi. Pabbinn var líka sérlega ánægður með merkið, því Recaro framleiðir víst annars sæti í kappakstursbíla og önnur rallífarartæki, þó hvorugt okkar keyri reyndar svo að nauðsyn sé á rallakstursgræjum. Mestu máli skiptir að stúlkan sjálf er ánægð með gripinn - hún sér loks út um gluggann, og er því í meira sambandi við umheiminn. Eins er hann augljóslega þægilegur því hún sofnaði um leið og við keyrðum út af bílasöluplaninu.
Við fórum í smá bíltúr til Richmond í dag að prófa stólinn. Þar var nístingskuldi og rok....brrrrrrrr.....eins og reyndar hér í Barnard Castle. Við skelltum okkur í gönguferð um bæinn, enda vel varin öllum veðrum í íslenskri og norskri ull, og Iðunn ofan í gærupokanum sínum. Hins vegar þótti okkur skynsamlegt að halda heim á leið um leið og byrjaði að snjóa, svo gönguferðin varð ekkert sérlega löng...en nógu löng þó. Þegar heim var komið hitaði ég handa okkur ekta súkkulaði að hætti ömmu Stínu. Iðunn smakkaði slíkt góðgæti í fyrsta sinn (með kaldri mjólk saman við), og þótti hið mesta sælgæti. Hér er svo spáð miklu fannfergi í nótt og á morgun, 20cm og skafrenningi, svo það er alsendis óvíst hvort ég komist í vinnuna, eða hvenær Iðunn kemst næst í stólinn góða. Veðurstofan varar við óþarfa akstri svo ég verð heima ef mér líst illa á útlitið - er sem betur fer ekki með neina kennslu á morgun.

PS Setti inn jólamyndir í albúmið frá Íslandi..takk Diljá fyrir myndirnar

Vetrarhörkur


Nú er hafinn undirbúningur fyrir vetrarhörkurnar miklu sem spáð er að gangi yfir okkur næstu vikuna - er víst von á lofti sem hefur setið helst til lengi yfir meginlandi Rússlands. Þegar er orðið ansi svalt, og eins og þeir vita sem hingað hafa komið er hvergi eins kalt og á Englandi á veturna. Rakinn smýgur inn að beini og kælir mann mun meira en hitastigið segir til um, og húsin eru óeinangruð, varla vindheld, og upphitunarkostnaður stjarnfræðilega hár. Hér í Victoria Road búum við reyndar svo vel að eiga lopapeysur og sokka frá ömmu FK..... hér má sjá feðginin taka því rólega á sunnudagsmorgni - hitastig mældist ca. 14 stig inni þrátt fyrir að kyndingin væri á fullu, þegar við fórum á fætur voru það reyndar bara ca. 10 stig - veit ekki alveg hverju við eigum að klæðast þegar kólnar enn meira - úlpum inni kannski? Það er augljóst að lopapeysusending Íslendinga til gamalmennanna í Hull kom ekki degi of snemma. Verst að ég skyldi ekki hafa sent Helga að næla sér í peysur og teppi úr gámnum þegar hann var í Hull í vikunni....