miðvikudagur, 21. apríl 2010

Á faraldsfæti


Loksins loksins lítur út fyrir að við séum að komast til Bretlands. Ég hef samt aldrei lent í öðru eins og að reyna að ná í flugfélagið og bóka flug...ætli ég hafi ekki verið í símanum í ca. 4 tíma. Þá var ekkert flug að fá....svo var hringt í okkur og sagt að við gætum öll flogið í sitt hvoru lagi....ekki var nú séns að fá okkur til að samþykkja það. Eina flugið sem við komumst öll í var til London og vildu Cimber Sterling að við redduðum okkur sjálf þaðan. Eftir mikið stapp fengust þeir loks til að endurgreiða okkur ferðakostnaðinn frá London til Newcastle....við eigum eftir að sjá hvernig það reynist í framkvæmd.
En á morgun fljúgum við sem sagt til London City og reynum að fá lestarferð þaðan. Við látum svo vita hvernig gengur.
Sendið okkur góða ferðastrauma!

laugardagur, 17. apríl 2010

Enn í Sverige


Eplin eru enn í Sverige, enda allt lokað á Kaupmannahafnarflugvelli sem stendur. Við tökum bara lífinu með ró, og gleðjumst yfir því að vera hér hjá afa Viðari, en ekki sofandi undir teppi á Schiphol eins og sumir sem við sáum í fréttunum. Mamman kvíðir nú samt svoldið kaósinu sem verður á vellinum þegar loks verður opnað á ný.

Sunnudagsöppdeit.......Við erum hér enn.....

mánudagur, 12. apríl 2010

Svenska applen


Jæja þá er eplafamilían komin til Sverige að heimsækja afa Viðar og ömmu Titti, og þó sérstaklega nýja fjölskyldumeðliminn: köttinn Doris (hún hét víst þessu nafni áður en hún flutti hingað - en við flissum samt þegar afi Viðar fer út í bakdyrnar og kallar Dooooooooris, Doooooooria - við erum alveg viss um að grannarnir haldi að kerlingin sé hlaupin frá honum).
Síðan við komum höfum við brallað margt smátt, og haft það ansi gott. Við höfum rólað og mokað og dúkkuvagnast; við höfum hitt Emmu og Erik og foreldra þeirra og Iðunn fór í þriggja manna baðferð með krökkunum og lærði að það getur verið gaman að láta hella vatni yfir hausinn á sér; við höfum leikið við Doris og Iðunn hefur haldið á henni yfir alla stofuna og Doris hefur lært að sofa á bakvið bækurnar í bókaherberginu hans afa Viðars þar sem Iðunn finnur hana ekki; við sáum dádýr og villisvín; og síðast en ekki síst áttum við yndislegan dag í Köben með ömmu Fanneyju, Höllu stóru og Siggu "fairygodmother". Myndir á myndasíðu. Að lokum ber að nefna að mamman fór í bæjarferð án hinna tveggja og fataði upp dömuna fyrir sumarið. Vegna fyrirspurna frá ömmu Gee verður sérstaklega bent á ný föt þar sem þau sjást!

mánudagur, 5. apríl 2010

Páskadagsmorgunn


Svona er mikið fjör að kítla og purra og njóta lífsins í náttfötunum langt fram eftir morgni!

sunnudagur, 4. apríl 2010

Laugardagur Dymbilviku

Síðasti dagur dymbilviku, og eplafamilían leggur leið sína í bæinn.


Iðunn vill vera með trefil eins og mamma. Hún stillir sér upp í Ingólfsstræti.
Iðunn gengur sjálf um allan bæ....borðar snjó sem féll í páskahretinu. Loks endar ferð á Skólavörðuholti.


Þar skoðum við Leif Eiríksson, og setjumst á stallinn hans.


Hlýðum á tónverk fyrir kirkjuklukkur og blástur úr turni séra Hallgríms. Eyrnanna vegna er þó hlustað úti. Tveir spila á flautur utan dyra.


Mamma og Iðunn tromma á stöllunum fyrir utan kirkjuna...svo er haldið á kaffihús með ömmu Gee og drukkið heitt kakó í fyrsta sinn.
Góður dagur.