sunnudagur, 31. maí 2009

Helgarhamingja!!




Helgin er búin að vera ólýsanlega yndisleg í Victoria Road. Endalaust sólskin, sumar, hiti, og skemmtilegur félagsskapur. Á föstudagskvöldið sótti ég ömmu Gee á flugvöllinn - vélin lenti uppúr 9 um kvöldið, og þá var enn 20 stiga hiti. Laugardagurinn var letidagur. Nutum þess bara að vera saman, löbbuðum niðri bæ (Iðunn labbaði alveg sjálf, tók "bara" 2 tíma) með viðkomu á tveimur róluvöllum. Sátum svo úti í garði og fengum hundinn Henry í heimsókn, og síðar meir aðra granna. kjúklingasalat í kvöldmat, og G og T í garðinum. Í dag tókum við því næstum jafn rólega en afrekuðum þó að skreppa til Darlington að versla, og skoða nýja tröppugosbrunninn - Iðunn og Helgi busluðu i honum lengi vel við mikla kátínu litlu dömunnar og annarra viðstaddra.
Lífið er yndislegt!

fimmtudagur, 28. maí 2009

Sommar, sommar , sommar!




Sumarið er komið - a.m.k. í bili. Samkvæmt veðurspá verður hlýrra hér en í París á morgun, og veðurspá helgarinnar (þegar turnamman verður í heimsókn) er "Warm and Sunny" fyrir bæði laugardag og sunnudag. Í tilefni þessa tókum við Iðunn okkur til og plöntuðum sumarblómum í potta í kvöld, vökvuðum og snyrtum, og gerðum garðinn ömmuvænann. Nú er bara eftir að bæta í gin og tonic byrgðirnar!

Svo viljum við biðja fólk að hugsa fallegar hugsanir til Maríu Dísar vinkonu Iðunnar, og foreldra hennar, smá bakslag í dag, og önnur aðgerð líkleg, en vonandi verða þau komin heim til Kristins stóra bróður eftir rúma viku.

miðvikudagur, 27. maí 2009

Bók!

Bók, Mamma, Bóóóók!!!!!
Litla stelpan er hugfangin af bókum, og þó sérstaklega þeirri stóru, með myndinni af skónum og jarðaberjunum og stráknum sem fer í bað. Það má leggja mikið á sig fyrir bókina - því hún er stór og þung og varla hægt að sjá yfir hana þegar maður staulast til mömmu með skemmtilegheitin,
Bók, mamma, bók!!!!



mánudagur, 25. maí 2009

Gleðiblogg!


Er nokkuð til betra en þriggja daga helgi sem ber alla upp á góðviðrisdaga, þegar allur mánuðurinn á undan var kaldur og hráslagalegur?  Yndislegt!  Hér var 20C í dag, logn, sól og svona sumarlykt í loftinu.  Við áttum góðan dag í garðinum, fylgdumst með skemmtilegri skrúðgöngu og Iðunnin gekk alla leiðina heim úr bænum.  Einnig rákumst við á Lellu Eden sem eitt sinn bjó hér í næsta húsi.  Hún er komin hátt á tíræðisaldur og nýflutt aftur í bæinn eftir nokkur ár hjá dóttur sinni í Leeds.  Við kynntum hana fyrir Iðunni, og það var svo gaman að sjá tvær kjarnakonur fagna hver annarri. Við keyptum okkur tvo stóla og borð í garðinn till að bæta ömmuaðstöðuna, og borðuðum nýbakað brauð í hádegismat við nýja borðið.  


Undir kvöldið kíktum við til Barböru, og rétt þegar sólin hvarf, Iðunn var sofnuð og lungamjúk hlý rigning féll í Victoria Road, grillaði Helgi Pétur gourmet borgara til að taka helgina með trompi.  
Vinnudagur á morgun, en allir endurnærðir eftir helgina.
Að lokum ber að geta þess að María Dís vinkona Iðunnar, sem fór í stóra hjartaaðgerð fyrir hálfum mánuðui, er nú orðin svo hress að hún verður líklega komin til Íslands fyrir helgi - frábærar fréttir!


sunnudagur, 24. maí 2009

Yndislegur sumardagur

Hér er loksins komið sumarveður - sól og blíða og yndislegt.  Ekki spillir fyrir að þetta er þriggja daga helgi, svo við getum notið hennar enn betur en ella.  Þessa helgi er alltaf margt um að vera í Barnard Castle, enda haldið svo kallað Barnard Castle Meet.  Í fyrra fórum við á árlegu gufuvélasýninguna, og í dag fórum við á útitónleika niðri við ána, og á morgun ætlum við að fylgjast með skrúðgöngunni um bæinn.  Inn á milli skemmtiatriða tókum við til úti í garði og heimsóttum Donnu.  Mikið stuð Í Barnard Castle!  Litla daman sofnaði um leið og höfuðið seig á koddann eftir endalaust stuð og mikla útiveru.

Við hófum daginn með morgunkaffi á tröppunum....

Heimsóttum Donnu og lékum okkur í garðinum...

Æfðum skrefin í allan heila dag....

Fórum á útitónleika á Demesnes túninu í Barnard Castle og hittum krakka....

....og eftir langan og skemmtilegan dag, spagettí og kjötbollur í kvöldmatinn!

laugardagur, 23. maí 2009

Louis Louis Louis!



Louis vinur hennar Iðunnar átti þriggja ára afmæli í dag og okkur boðið í heimsókn - þykir kannski ekki fréttnæmt nema vegna þess að þetta er fyrsta barnaafmælið sem okkur er boðið í síðan við komum til Englands. Veðrið var ekki alveg eins gott og spáð hafði verið, en nógu gott samt, og það var grillað og svo var sjóræningjakaka, og mikið fjör. Iðunn var reyndar svoldið smeyk við stóru krakkana, enda margir hávaðaseggir samankomnir í litlu rými, en hún náði sér fljótt og naut sín við leik úti jafnt sem inni, þó hún hafi reyndar verið svoldið óheppin að krakkarnir voru allir annað hvort þó nokkuð yngri eða eldri. Kom þó ekki að sök því Louis átti svo margt skemmtilegt dót til að leika sér að, t.d. fullt að hávaða-batteríis leikföngum sem pabbi hleypir ekki inn fyrir hússins dyr hér í Victoria Road.
Heimadagur á morgun enda allir lúnir.

föstudagur, 22. maí 2009

The Great Escape!




Uppáhaldsorð og iðja Iðunnar þessa dagana er LABBA! Það er varla hægt að fara útí búð án þess að daman heimti að fá að komast úr kerrunni og ganga sjálf. Yfirleitt sækist þá heimferðin frekar seint, enda leggirnir stuttir og gangan löng. Eina skiptið sem Iðunn fer hart er þegar hún er með Brio vagninn á undan sér. Í gær vorum við pabbi hennar að stússast með rusl í garðinum og daman nýtti tækifærið og labbaði með vagninn sinn út í bakgarðinn, þaðan lá leiðin upp bakgötuna, inn næstu bakgötu og þaðan út á Victoria Road með mömmu í humátt á eftir. Litla pæjan fékkst ekki til að snúa við fyrr en hún var komin hálfa leið niðrí bæ, eftir að hafa hitt hundinn Henry, fullt af nágrönnum, heilsað öllum sem leið áttu um götuna með hressu Halllóóóó og drottningarveifi, og skemmt sér stórkostlega vel. Það er stuð að vera 17 1/2 mánaða!

miðvikudagur, 20. maí 2009

Tannburstun


Munnurinn á Iðunni hýsir hvorki Karíus né Baktus, því daman veit fátt skemmtilegra en að bursta tennurnar. Ef hún mætti mundi hún bursta þær 10 sinnum á dag. Myndirnar að ofan voru teknar við burstunina í kvöld.
Hér gerist fátt fréttnæmt, en þó það að hér er næsta helgi þriggja daga helgi, og í tilefni þessa er verið að setja upp tívolí í miðbæ Barnard Castle, og eins verður skrúðganga og hin árlega gufuvélahátíð, svo það ætti að verða óvenjulega mannmargt í bænum. Það er spáð góðu veðri eftir margra vikna rigningar, sem er eins gott því okkur er boðið í barnaafmælisgrill í Durham í hádeginu á laugardag. Sem sagt skemmtileg helgi fram undan, verst að það skuli bara vera miðvikudagur!

mánudagur, 18. maí 2009

Nina


Hér gleymdist að segja sögu úr júrópartíinu. Iðunn er voða áhugasöm um fólk og þá sérstaklega önnur börn. Ég hef reyndar tekið eftir að hún hefur samt lítinn áhuga á pínulitlum ungabörnum. Þetta skýrðist aðeins í partíinu um helgina. Iðunn sýndi Nínu litlu lítinn áhuga fram eftir kvöldi, en þegar hún loks kom auga á hana skoðaði hún hana lengi vel þangað til hún var alveg viss hvers konar skepna væri þar komin. Loks dettur upp úr minni: Kisa! Mjááá mjááá!! ...og svo teygði hún sig til að strjúka henni eins og köttunum hérna heima - Sniðug stelpa hún Iðunn okkar.

Nýja leikfangið hans Helga


Hér gefur að líta sjónvarpið sem Helgi keypti sér - ætti að vera nógu stórt fyrir hann jafnt sem ömmurnar. Iðunn er alveg hissa á þessu ferlíki - starir stóreyg á barnatímann. Nú er næsta verkefnið fyrir eplamömmuna að kenna Helga að slökkva á sjónvarpinu og koma aftur á sjónvarpsbanni fyrir kl 18 sem reynst hafði ágætlega á dögum litlaskjás.
Aðrar fréttir eru þær að Iðunn er að fá tvo jaxla sem hafa aðeins verið að pirra hana, og að brauðvélin nýja bakar hreint ágætis brauð, og það er ekki nærri því eins erfitt að vakna þegar ilmandi brauðlykt leggur um allt húsið kl. 06.45.

sunnudagur, 17. maí 2009

Helgarblogg


Skemmtileg helgi hjá eplafjölskyldunni! Í gær var okkur boðið í júrópartí til Gregers sem vinnur með eplamömmu...ég held að það sé óþarfi að benda á hve langt er síðan okkur var síðast boðið í partí í UK...grunar að það séu a.m.k. 9 mánuðir síðan. Þetta þótti í það minnsta svo merkilegt tilefni að mamman hætti við að syngja Mendelssohn á tónleikum og fór í júrófíling í staðin. Við mættum með sæng og graut og búið var að útbúa áningarstað fyrir litla fólkið í gestaherberginu, en það var bara svo mikið stuð í partíinu að Iðunn var hrókur alls fagnaðar þangað til við fórum heim um hálf ellefu (hlustuðum samt á lok lýsingar, og annað sæti Íslands í útvarpinu alla leiðina heim). Iðunn sver sig greinilega í ættina, því henni fannst Júró æðislegt. Hún dillaði sér í takt við Tyrki jafnt sem Moldóvubúa og klappaði eftir hvert lag. Ekki var verra að komast í súkkulaðiköku og kornflögur...slíkt er sjaldséð í Victoria Road. Við komum heim um hálf tólf, Iðunnin beint í rúmið, en foreldrarnir sem hefðu átt að vita betur vöktu til hálf tvö í nótt við að setja upp nýja flatskjáinn og góna á hann. Ekki gaman þegar Iðunn vaknaði kl 7 í morgun! Það bætti þó stöðuna að við höfðum sett nýju brauðvélina af stað (á tæmer) í gærkvöldi og í morgun klukkan hálf níu var tilbúið ilmandi ljúft nýbakað rúsínubrauð. Mmmmmmm.....
Í dag höfum við svo bara haft það rólegt enda allir þreyttir. Skruppum til Donnu, tókum til, róluðum hátt hátt upp í loft og elduðum góðan mat. Iðunni tókst reyndar að detta á hausinn og fá smá kúlu og mar, en að öðru leyti góður dagur.
Túdilú og til hamingju með Y(sic)óhönnu.

föstudagur, 15. maí 2009

Tæknivæðingin mikla


Verkfræðingurinn er lúmskur. Hann kemur sér fyrir, bíður átekta, og um leið og færi gefst ræðst hann á garðinn þar sem hann er lægstur og innrás tæknivæðingarinnar er hafin! Um daginn bilaði ískápurinn í Victoria Road. Verkfræðingurinn gekk í málið og hálfum mánuði síðar, eftir bestun og gæðakönnun er kominn nýr ísskápur í húsið.....hann kom á mánudag. Nokkrum dögum eftir að ísskápurinn var keyptur var komin ný kaffivél. Í dag föstudag kom svo önnur sending: brauðrist og brauðgerðarvel.....og á morgun skilst mér að von sé á manni með flatskjá! Ég þori varla að spá í hvað muni birtast í næstu viku!
Annars er það helst að frétta að hér er hundleiðinlegt veður...endalaus rigning....en það kemur á móti að á meðan rignir hér er sól á Íslandi svo einhver nýtur þó góðs af!
Allir hraustir, allir glaðir, og Helgi strax farinn að hlakka til að fikta í flatskjánum....

mánudagur, 11. maí 2009


Að ofan má sjá mómentið þegar Iðunn pæja uppgötvaði loks að hún kynni alveg að ganga. Hún stóð við sófaborðið, gekk til mömmu, aftur tilbaka, aftur til mömmu (mamman búin að grípa myndavélina og farin að smella!) og hélt svo bara áfram út úr stofunni og fram á gang og þaðan inn í borðstofu! Litla daman er nákvæmlega 17 mánaða í dag svo hún slær mömmu sinni við um einn mánuð - það virðist seint ætla að taka af mér þetta met! Ég hef þó unnið það upp því ég hef varla stoppað síðan!
Kveðja frá montnu eplafjölskyldunni.

sunnudagur, 10. maí 2009

Sunnudagur til sælu!



Ekki var nú mikið afrekað í dag, en góður dagur engu að síður. Við nutum samverunnar, tókum því rólega fram undir hádegi, róluðum, gáfum öndunum, heimsóttum Donnu og fórum í góðan göngutúr um bæinn. Borðuðum chilli í kvöldmatinn og eyddum kvöldinu í letilíf - svona eiga sunnudagar að vera!

laugardagur, 9. maí 2009

Loksins blogg!


Hér hefur ríkt bloggleti, enda nóg að gera í Victoria Road þessa dagana, við erum nefnilega með ömmu Fanneyju í heimsókn. Iðunn var rosa ánægð að fá ömmu sína og var ekkert feimin - búin að sýna henni leikskólann sinn og allt dótið í herberginu sínu. Við Helgi erum á því að við þyrftum helst að hafa ömmurnar hérna til skiptis til að skemmta heimasætunni - í dag fengum við til dæmis að kúra fram eftir og lesa blaðið í rúminu yfir kaffibolla algjörlega óáreitt meðan amman hélt uppi standandi skemmtidagskrá. Ansi ljúft! Amma kom færandi hendi með nýja lopapeysu og fallega bók með geisladiski sem heitir "Ef væri ég söngvari" handa Iðunni, og marga kaffipakka handa foreldrunum. Í tilefni þessa fjárfestum við loks í nýrri kaffivél eftir að hafa þurft að nota pressukönnu síðan gamla vélin gaf sig fyrir rúmu ári. Kaffidrykkjan í rúminu var því enn betri fyrir vikið!
Túdilú!

mánudagur, 4. maí 2009

Eygló afmælisfrænka!


Hún Eygló frænka Iðunnar verður 9 ára í dag. Eygló er algjör Ronja, óhrædd við flest og þar af leiðandi best í fimleikum. Hún er líka voða dugleg að passa Iðunni og dröslast með hana þegar við hittumst heima á Íslandi. Til hamingju með afmælið elsku Eygló okkar, og til hamingju með stelpuna ykkar Æsa og Jói!

sunnudagur, 3. maí 2009

Á eftir sjö kemur átta....


Þá eru komnar átta tennur þar sem áður voru sjö....um að gera að halda munninum samhverfum. Annars er lítið að frétta héðan. Mamman er búin að vera með einhverja lumbru sem skýrir bloggleysi undanfarinna daga, en er nú að ná sér. Við erum búin að vera eins mikið úti og hægt er síðustu daga, förum á róló, skoðum bæinn okkar, njótum garðsins nýja og æfum stelpuna í göngulistinni. Við erum líka búin að taka fram grillið og notuðum það í fyrsta sinn í gærkvöldi, þó Iðunn hafi reyndar verið sofnuð þegar maturinn var tilbúinn. Eini gallinn við alla þessa útiveru er að enn er ekki búið að taka til fyrir heimsókn ömmu Fanneyjar í næstu viku...en það eru enn nokkrir dagar til stefnu!

Að lokum viljum við minnast á að Iðunn var að eignast nýjan frænda Orrason á sjálfan 1.maí. Afi Bragi hefði nú aldeilis verið hrifinn af því! Til hamingju Þórdís, Orri, Eyja, Kári og Flóki með nýja fjölskyldumeðliminn!