laugardagur, 31. maí 2008

Eiginmaður minn brennuvargurinn


Það er víst frægt í fjölskyldunni hans Helga hve hann kann illa að fara með eld....sögur herma að sem drengur hafi hann kveikt í heilum sófa og skrifborði afa síns...og síðan ég kynntist honum hefur hann kveikt aftur í því sama skrifborði, auk tölvuskjás og fleiri muna.....
Segja má að því hafi það e.t.v. verið að bjóða hættunni heim þegar Helga var treyst fyrir að kveikja upp í garðrusli hérna fyrir utan. Eins og sjá má af myndinni hér að ofan fór allt samt vel fram, þó innbú okkar og annarra í götunni angi reyndar eins og hangikjötskofi. Brennan er hluti af átaki Helga til að gera garðinn hæfann í sumarbjórdrykkju, og fer nú að líða að því að hann geti sest þar út og notið góðra veiga. Verst er spáð er rigningu á allra næstu dögum.

PS Vert er að bæta því við að Helgi er búinn að standa sig eins og hetja í allri garðvinnunni - röskur, vandvirkur og duglegur að drífa sig áfram - hann er greinilega súpereiginmaðurinn!

föstudagur, 30. maí 2008

Litli þróunarfræðingurinn


Hér að ofan má sjá Iðunni velta fyrir sér líkani af Homo habilis og sýna um leið sterkt nákvæmnistak, sem er eitt af einkennum mannapa. Eitt er víst að Iðunn er eflaust fróðari um veröldina, uppruna mannsins, almenna skynsemi o.s.frv. en aularnir sem setið hafa prófið í "Human Origins and Diversity" sem ég hef verið að fara yfir. Fyrsta árs nemar í Durham háskóla virðast upp til hópa vera heimskir, illa læsir, illa skrifandi, og algjörlega vanhæfir um að svara einföldustu spurningum á skýran og skiljanlegan hátt. Arg og garg...púst púst púst... ekki nema 30 próf eftir.

Í dag prófuðum við svo í fyrsta sinn að gera matarinnkaupinn okkar á netinu. Pössuðum okkur á að kaupa sem mest af þungum vörum sem okkur leiðist að burðast með úr hillu á kassa, útí bíl, og inní hús. Til dæmis pantaði húsbóndinn sér 20 lítra af freyðivatni (eða sparivatni, eins og hún Solveig vinkona kallar það), því árvatnið úr Tees sem rennur í kranana hérna í Barnard Castle er honum ekki að skapi. Tilraunin tókst með ágætum og hingað kom afskaplega kurteis maður með 8 (!) bakka af matvöru og fleiru, allt rétt afgreitt og í góðu ástandi. Þvílíkur lúxus. Ég skil ekkert í því hvers vegna ég hef ekki prófað þetta fyrr. Svo er ég viss um að það hljóti að vera vistvænna að einn maður keyri vörur til 20 neytenda, en að hver og einn bruni í búðina á sitt hvorum bílnum.
Annars er svo sem ekkert að frétta, netið er komið í lag eftir að fiktarinn Helgi kippti út forritinu sem sá um þráðlausu tenginguna, og var svo settur í bjórbann þar til hann hafði komið því í samt lag aftur. Þarf vart að taka fram hvað hann var fljótur að forgangsraða þeirri viðgerð á topp framkvæmdalistans.....
Toodiloo!

Góða ferð!!!


Í dag mun Diljá allra besta frænka halda í heimsreisu um a.m.k 4 heimsálfur (Evrópu, Ástralíu, Eyjaálfu, og Ameríku) og kemur ekki aftur fyrr en í desember. Æ hvað við eigum nú eftir að sakna hennar. Við erum hrædd um að amma í turninum verði svoldið einmana líka og sendum við henni því risa stórt knús!!
Góða ferð Diljá, og vertu nú dugleg að blogga svo við getum séð hvar þú ert niður komin.
Passaðu þig á ljótu köllunum, og muna að vera alltaf í hreinum nærfatnaði!
Una varamamma

miðvikudagur, 28. maí 2008

Singing in the rain...

Óskaplega er veðrið orðið leiðinlegt - suddarigning í allan dag og svo þoka núna í kvöld. Það skipti mig svo sem ekki svo miklu máli þar sem ég er enn föst yfir prófunum, en Iðunn litla varð að grafa fram Janus gallann áður en þau feðginin fóru í bleyjuinnkaup fyrr í dag. Hún er samt alltaf jafn sæl, sama hvernig viðrar.
Annars gerðist í raun ekkert fréttnæmt, annað en að söngglaði píparinn kom og gerði við sírennslið í klósettinu sem Nonni frændi réði ekki við og var að gera húsfreyju geðveika - það er nóg að eiga erfitt með að sofna eftir næturgjafir, enn verra ef maður liggur svo endalaust vakandi að hlusta á rennandi vatns hljóð - það hafa verið ófár klósettferðir hér að næturlagi að undanförnu!......we are not amused!
Farin í rúmið að njóta kyrrðarinnar.

þriðjudagur, 27. maí 2008

...og allir komu þeir aftur....


Nonni, Guðrún, Einar, Pálín og Steiney kíktu hingað til Barnard Castle á leið sinni heim frá Skotlandi, og urðu þar með fyrstu íslensku gestirnir til að sækja þriggja manna fjölskylduna heim. Eins og alltaf var voða gaman að sjá þau öll: litlu stelpurnar vöktu þangað til kominn var kveldúlfur í þær báðar, og fullorðna fólkið snæddi Fish and Chips beint úr(óáprentuðum) dagblaðapappírnum. Húsfrúin kveikti í borðdúk og fyllti allt af brunalykt og kettirnir voru lokaðir inni þar til síðasta arðan af fiskinum var uppétin. Svo var öllu liðinu ásamt pinklum og töskum pakkað inn í bílinn aftur og brunað til Bradford. Þar með sannast það að heimsóknir þurfa ekki að vera langar til að vera skemmtilegar.

PS Borðdúkurinn er í furðu góðu ástandi eftir meðferðina!

mánudagur, 26. maí 2008

Sælir eru kettirnir...


....sem fundu þrjár kjúklingabringur á glámbekk.
Vansælt er mannfólkið: grænmetispasta eina ferðina enn!

Þriggja daga helgin


Við erum á því, eins og margir aðrir, að allar helgar ættu að vera þriggja daga helgar. Svo heppilega vill til að þennan fyrsta mánuð okkar í UK hafa verið tvær slíkar helgar. Þessa helgi var sem áður greindi frá svo kallað Barnard Castle Meet, og alls kyns húllumhæ því tengt. Í dag var heljarinnar skrúðganga í gegnum bæinn, og við fórum náttúrulega til að bera hana augum. Veðrið var gott en ansi mikið rok og gífurlegur mannfjöldi. Skrúðgangan samanstóð af a.m.k. 6 lúðra/klukkuspils/sekkjapípusveitum, ásamt þó nokkrum fjölda svokallaðra "floats" sem eru vagnar, yfirleitt dregnir af jeppum eða dráttarvélum, skreyttir eftir hinum ýmsu þemum. Alls kyns hópar, allt frá leikskólum til björgunarsveita höfðu útbúið svona float, og var gaman að sjá hversu mikið hafði verið lagt í undirbúninginn. Að skrúðgöngunni lokinni fórum við fyrst á Tívolí sem búið er að koma fyrir í bænum og enduðum svo í sólbaði í garðinum hennar Donnu. Yndislegur dagur, og bara 4 daga vinnuvika fram undan!

Nanos gigantum humeris insidentes


Iðunn á stóran frænda sem heitir Dagur.... hann er skemmtilegur og yndislegur og verður á sama skólaári og hún, þó hann sé 8 mánuðum eldri....því er líklegt að í framtíðinni muni Iðunn vilja gera allt sem Dagur gerir og geta allt sem Dagur getur. Gott eitt er um það að segja því ekki er þar leiðum að líkjast. Eitt af því sem Dagur gerir vel, og mikið af, er að borða. Hann sækir það reyndar ekki langt því mikil matargleði hefur einkennt föður hans alla tíð. Iðunn vill náttúrulega alls ekki vera síðri og hamast nú við að læra að borða sem fjölbreyttasta fæðu og nóg af henni. Í augnablikinu eru það sætu kartöflurnar sem eru nýjastar á matseðlinum, og nammi namm þvílíkt lostæti! Við ætlum samt ekki ganga eins langt í þessu og hjón sem við sáum í sjónvarpinu um daginn í einhverjum þætti um sjúklega offitu sjúklinga - þau voru að tala um hvað þau legðu mikla áherslu á að börn þeirra og barnabörn lentu ekki í sama vítahring.....um leið og þau mötuðu 5 mánaða gamla barnabarnið á hamborgurum frá McDonalds. Nei, enn sem komið er er hér mauk á matseðlinum og ef mamman fær einhverju um það ráðið verður aldrei stigið fæti inn fyrir dyrnar á McDonalds!

sunnudagur, 25. maí 2008

Gufugeim

Þessi helgi er svo kölluð Whit Bank Holiday, þriggja daga helgi sem alltaf er siðustu helgina í maí mánuði og kemur í stað Hvítasunnunnar. Á ári hverju gerist tvennt um þessa helgi hér í B.C.: annars vegar er svo kölluð Barnard Castle Meet hátíð með hljómsveitum, skrúðgöngum osfrv., og hins vegar Gufuvélasýning Barnard Castle. Þar mætast gufudráttarvélar, gufuvegheflar, gufuvélsagir, gufuvaltarar, og allar aðrar vélar sem hugsanlega geta gengið fyrir kolum og gufu. Fjölskyldan í Victoria Road ákvað að skella sér á þessa kynjasýningu, ásamt skötuhjúunum Daníel og Angelu. Hátíðin er á túni hérna rétt utan við bæinn þar sem áður stóðu hermannabraggar. Það sem kom okkur mest á óvart var hve þetta var stór sýning og hve margmennið var mikið. Auk gufuvélanna var fólk mætt með gamla bíla, slökkvibíla, reiðhjól, mótorhjól, Landróvera osfrv...ja í raun bara öll farartæki sem nöfnum tjáir að nefna. Helgi var hrifnastur af pínulitlum gufudráttarvélum, sem iðullega var ekið af gríðarstórum mönnum, svoldið svipað og þegar fullorðinn maður sest á þríhjól: hnén komin upp að höku. Svo var einnig gaman að skoða týpurnar á sýningunni: nánast hver einasti maður var í bláum fjósagalla og með sixpensara, margir hverjir makaðir kolaryki, fríðleiks- og fatasmekksgenin virtust hafa yfirgefið flesta sem stunda svona gufuvélanördisma. En hvað um það, þetta var bara hin ágætasta skemmtan fyrir alla fjölskylduna, og gaman að hafa upplifað svona sér-enskt fyrirbæri.

Góðir gestir


Eins og sjá má á niðurtalningunni hér til hliðar áttum, og eigum, við von á Nonna frænda hennar Iðunnar og Guðrúnu Ástu konu hans í næstu viku. Í gær fengum við þó þann óvænta glaðning að þau hringdu í okkur og sögðust vera á leiðinni í dagsferð til Durham á ferð sinni um Bretaveldi, svo við settumst upp í bílinn og brunuðum þangað til að drekka kaffisopa með þeim. Það var voða gaman. Einar Örn bróðir Guðrúnar Ástu, Pálín kona hans og dóttirin Steiney Lilja voru líka með í för svo þetta var ansi fjörug kaffihúsaferð. Einar hefur verið í fjarnámi í Durham í vetur á meðan konan hans var í Mastersnámi við háskólann í Bradford.....skilst mér á þeim að þó skólinn sé góður séu 8 mánuðir í Bradford nokkuð langur tími, enda ekki hægt að segja að borgin sé sérlega sjarmerandi, þó hægt sé að kaupa þar gott karrí.


Um kvöldið kom svo Daníel vinur okkar í heimsókn ásamt nýju kærustunni sinni, Angelu, sem við höfðum ekki hitt fyrr. Einhverra hluta vegna þótti honum bráðnauðsynlegt að hún fengi að kynnast Eurovision brjálæði Íslendinga af eigin raun, og boðaði þau því hingað í Júróhorf. Angela reyndist hin indælasta stúlka og Iðunni fannst hún sérlega skemmtileg, sjarmeraði hana alveg uppúr skónum. Daníel virtist svoldið áhyggjufullur yfir því hve mikið eggjahljóð kom í Angelu í návist Iðunnar, hann er víst ekki alveg tilbúin í barneignir....kannski er það afleiðing 8 daga kúkasprengjunnar sem Iðunn bjó til sérstaklega fyrir hann þegar hann var hjá okkur á Íslandi í febrúar. Allir voru sammála um að Rekina og Freidrich hefðu staðið sig vel, og Iðunn fékk að vaka inni í stofu með sængina sína þangað til þau höfðu lokið söngnum. A good time was had by all, eins og þeir segja hér í Englalandinu.

laugardagur, 24. maí 2008

Margfaldur merkisdagur


Í dag verður hún Diljá Rudolfsdóttir, allra besta frænka Iðunnar, og litlasta systir mömmunnar, stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Diljá er náttúrulega skarpgáfuð eins og allt hennar heimafólk og hefur sigrast á eldamennsku, stjarnfræði, japönsku með meiru til að ná þessum merka áfanga. Einnig ber að geta þess að hún hefur verið valin til að flytja ræðu fyrir hönd árgangsins á útskriftarhátíðinni. Til hamingju Diljá, við hugsum mikið til þín hér í Barnard Castle og vildum að við værum heima til að samgleðjast þér.

Á þessum degi í fyrra fór svo fram fyrsti hluti þrefalds brúðkaups okkar hjóna og eigum við því "fyrsta-í-brúðkaupsafmæli" í dag. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá urðum við Helgi að gifta okkur hjá fógeta á Íslandi til að brúðkaup okkar í Durham yrði tekið gilt fyrir mönnum, ef ekki Guði.

Á þeim sama degi sama ár, nokkrum stundum áður en við fórum til fógeta, fékk Helgi að sjá Iðunni í fyrsta sinn í gegnum lítinn skjá á Kvennadeild Landspitala.

OG svona til að safna saman merkisatburðum, þó þessi sé e.t.v. ekki í sama stærðarflokki (þ.e. ansi mikið minni), þá keppir Ísland í Júróvisjón í kvöld í fyrsta sinn síðan krafist var staðfestingar á áhorfendastuðningi. Við munum horfa á þau "Friedrich and Rekina" í kvöld, vonandi í einhverju sambandi við öllu stærra Júróvisjón partí í litlu Belgröð, a.k.a. Hamrahlíð.

föstudagur, 23. maí 2008

"Ef ég sé með hattinn"


Helgi Pétur hefur stundað knattspyrnu með vinum sínum úr MR/verkfræðinni í ansi mörg ár og haft gaman af. Eftir hálfan mánuð af knattspyrnulausri bjórdrykkju bauð húsfrúin hann fram í fótboltaklúbb fornleifafræðideildarinnar í Durham, sem gengur undir nafninu "Bad football". Í dag fórum við svo öll til Durham: fyrri hluta dagsins undu feðginin sér saman, og kl. 17.00 fór Helgi í boltann. Ég held að honum hafi bara líkað vel, og hinir gaurarnir í Bad Football voru a.m.k nógu hrifnir (eða nógu desperat) til að bjóða honum að koma aftur. Við Iðunn fórum í langan göngutúr á meðan og sátum svo í grasinu dágóða stund að dást að pabbanum sem var vitanlega laaaaaang bestur. Því miður var heimasætan orðin of þreytt til að Helgi gæti ílenst með hinum á öldurhúsi, en hann fær vonandi tækifæri til þess innan skamms. Alltaf gott að kynnast nýju fólki.
Svona "by the by" eins og þeir segja hér í Bretlandi, þá ber að nefna að hatturinn sem daman er með á myndinni er síðbúin fæðingargjöf frá Emmu og Megan sem vinna með mömmunni hérna í Durham. Við erum að vona að veðrið í sumar muni bjóða upp á mörg tækifæri til að ganga með hann.

fimmtudagur, 22. maí 2008

7,48kg!

Í dag fór Iðunn í sína fyrstu ungbarnaskoðun í Bretlandi og mældist hún 7,48kg, orðin 5 mánaða og 11 daga gömul - hafði þyngst um 400g síðan í síðustu mælingu fyrir mánuði heima á Íslandi. Engar upplýsingar fengum við um lengdina, því samkvæmt breskum sérfræðingum er víst stórhættulegt að mæla lengd á börnum innan eins árs. Jahá! Við ollum miklu fjaðrafoki á heilsugæslunni því okkur skorti víst einhverja rauða bók sem allir fá á fæðingardeildinni og engin leið virðist vera að framkvæma skoðun án. Ekki virtist neinn vita hvar hægt væri að nálgast slíka bók fyrir börn sem fædd eru annars staðar heldur - enda er víst lítið um innflytjendur/nýbúa hér í Barnard Castle. Eftir mikla leit fannst eitthvert rykugt sýnishorn af bókinni góðu inní skáp sem við fengum náðasamlegast, og erum nú loks gjaldgeng í NHS.
Iðunni fannst rosa gaman í skoðuninni, brosti framan í alla hina krakkana.....og ekki spillti fyrir að við hittum þennan líka fína hund á leiðinni heim sem hnusaði af henni allri.

In the jungle...the mighty jungle, the lion sleeps tonight....


Í fjarveru okkar, og í raun eftir allar rigningarnar í fyrra sumar, hefur litli garðurinn okkar breyst í frumskóg, þar sem hvorki er hægt að njóta sólar né grilla sumarmat. Í dag tók Helgi sig til og réðst til fyrstu atlögu við gróðurinn, með ansi hreint ágætum árangri. Hér að ofan ber að líta hann vígalegan - Guð hjálpi hverju því arfatetri sem verður á vegi hans!
Á meðan situr húsfreyja inni og fer yfir próf og barnið sefur svefni hinna réttlátu á hjónarúminu, með sumarhatt og alles, eins og sjá má í eplamyndunum.

mánudagur, 19. maí 2008

Matur og kroppatamningar


Í dag var matarheimur Iðunnar víkkaður eilítið og henni gefinn banani með grautnum. Henni fannst hann nú ekkert spes svona einn sér en aftur á móti mesta sælgæti saman við grautinn. Stefnir hún nú á að verða eins mikið matargat og Dagur frændi sinn. Henni þykir reyndar allur matur mjög spennandi og reynir að ná í allt matar- og drykkjarkyns, þó mamma sé alltaf að stoppa hana. Samanber mynd af þeim feðginum að bjórdrykkju sem finna má í eplamyndum hér til hliðar. No children were harmed in the making of this picture.
Ekkert er í raun annað í fréttum nema að Iðunn og Helgi hafa verið að kanna Flatt´s Wood á meðan ég þjáðist heimavið yfir prófunum, og að ég fór í gamla leikfimihópinn minn í dag í fyrsta sinn í 2 ár, og gat glaðst yfir því að hann var nú orðinn of léttur fyrir mig.....þetta mömmu bootcamp dæmi borgaði sig greinilega.

Próf, próf, próf...

Hér að ofan ber að líta ca. 1/5 af prófunum sem ég á enn eftir að fara yfir....enough said....
Geisp

sunnudagur, 18. maí 2008

Donna "amma"


Skömmu eftir að ég fluttist til Barnard Castle birtist lítil auglýsing í háskólanum þar sem leitað var að einhverjum sem vildi taka með sér farþega frá Barnard Castle til Durham gegn þátttöku í bensínkostnaði. Ég svaraði auglýsingunni, og þannig kynntist ég fyrst Donnu sem þá vann sem ritari í félagsfræðideild háskólans. Skömmu síðar hætti hún að vinna í Durham og sagan hefði getað endað þar. Hins vegar náðum við svo vel saman að við höfum verið perluvinkonur alla tíð síðan. Donna er einstaklega skemmtileg kona og ein af þeim sem er enn í afslappaða stílnum síðan á hippaárunum, bjó t.d. lengi vel með fyrrverandi manni sínum og 3 dætrum í húsvagni og ferðaðist milli staða meðan hann sinnti starfi sínu sem skógarhöggsmaður. Hún er algjör perla, hefur t.d. alltaf hugsað um kisurnar mínar þegar ég er á ferðalögum og hélt brúðkaupsveisluna okkar í garðinum og húsinu sínu í fyrrasumar. Þegar von var á Iðunni var Donna jafn áköf að fylgjast með og hinar ömmurnar (þó hún væri orðin fjórföld amma sjálf), og prjónaði m.a. 3(!) teppi handa henni. Það er því eilítil huggun harmi gegn þegar við neyddumst til að yfirgefa hinar ömmurnar á Íslandi að Donna "amma" er hér í Barnard Castle til að knúsa og spilla Iðunni. Iðunn fann það strax á sér að þarna væri komin "ekta" amma, og hefur heillað Donnu algjörlega uppúr skónum eins og hennar er von og vísa. Það er gott að eiga svona góða að í útlegðinni. Í sumar ætlarDonna svo að koma með okkur heim til Íslands og fara með okkur hringveginn og skoða landið.
Litlar stelpur sem eiga margar góðar ömmur hljóta ansi gott vegarnesti í lífinu.

laugardagur, 17. maí 2008

Rallývagn

Í dag áskotnaðist Iðunni nýtt faratæki - stór og stæðilegur Silver Cross vagn í lit sem heitir British Racing Green - ekki er samt útséð um hvort slíkir vagnar fari hraðar yfir en vagnar í öðrum litum.
Það stóð alltaf til að fjárfesta í svokölluðum svalavagni þegar við kæmum til Englands svo Iðunn gæti sofið lúrana sína útí garði að íslenskum sið. Rauða kerran er súpergóð og sú flottasta, liprasta og handhægasta sem við höfum séð en hún er ekki kannski svo skjólgóð ef sofa á í henni í miklum vetrarhörkum. Við skoðuðum því ýmsa möguleika og enduðum með að fjárfesta í þessum á Ebay, kostaði okkur 70 pund með beislum, flugna- og kattanetum, dýnu, sólhlíf osfrv. Við þurftum að sækja farkostinn til indælla hjóna í Whitley Bay, og nýttum því tækifærið í smá strandferð þó veðrið væri heldur hráslagalegt.
Nokkrar myndir er að finna á eplamyndasíðunni.

Þambara vambara....

Hér á heimilinu eru ekki einungis við Helgi Pétur og Iðunn heldur búa hér einnig tveir kettir: Tala hin gulbröndótta og Beamish sem er svart og hvít skjöldóttur, ef kettir geta þá verið skjöldóttir. Þeim líst nú ekkert meira en svo á þetta "aðskotadýr" sem ég kom með frá Íslandi. Beamish má ekki sjá Iðunni, þá setur hann skottið milli lappanna og hrökklast burt, Tala er aðeins hugaðri en reynir þó að halda sig í hæfilegri fjarlægð. Iðunn er hins vegar ofsalega hrifin af sambýlingunum og finnst allt svo spennandi og skemmtilegt sem kisurnar aðhafast. Ég býð ekki í hvernig þetta verður allt saman þegar hún fer að skríða!

fimmtudagur, 15. maí 2008

Fyrstu dagarnir án mömmu


Óskaplega finnst mér fyrirsögnin hérna sorgleg.... ég er samt líklega ein um það því hér heima gekk allt bara ágætlega. Ég hefði e.t.v. frekar átt að skrifa "fyrstu dagarnir án Iðunnar" því missir móðurinnar virðist meiri en barnsins. En sem sagt, ég fór í vinnu bæði í gær og í dag, ca. 6 tíma í hvort skipti og allt gekk vonum framar hjá þeim feðginunum. Iðunn fékkst til að drekka úr pela, reyndar takmarkað magn (en meira í dag en í gær svo það stendur til bóta), og borðaði líka smá graut, fékk svo bara ofsalega góðan sopa þegar mamma koma heim. Þau feðginin dunduðu sér saman, fóru í göngutúra og léku sér á teppi o.s.frv. Allt sem sagt bara í lukkunnar velstandi hér í Victoria Road. Ekki spillti fyrir að þegar ég kom heim úr vinnu báða dagana var allt tiltekið og uppvaskað - hann Helgi er nú alveg yndislegur!

þriðjudagur, 13. maí 2008

Fyrsta grautarsmakkið




Fyrst mamman er farin að vinna var ákveðið að prófa að gefa Iðunni smá graut að smakka, til að sjá hvernig hann færi í hana. Hún er líka orðin svo áhugasöm um allt sem aðrir eru að borða og drekka. Grauturinn bragðaðist bara vel. Stelpan smjattaði og sleikti útum og borðaði þó nokkrar teskeiðar. Sjáum svo til hvernig líkaminn litli bregst við. Sjálfstæðið virðist vera ansi sterkt í dömunni og vildi hún því helst fá að grípa skeiðina og stinga henni uppí sig sjálf sem er ekki á dagskrá alveg strax.

mánudagur, 12. maí 2008

Hálsbólgusinkrónía

Á nákvæmlega sama tíma í gærkveldi fengum við Helgi hálsbólgu.....kom bara allt í einu og virðist ekkert vilja fara aftur....ábyggilega súrloftinu í heimsveldinu að kenna.....

Fyrsti vinnudagurinn, á hvítasunnu :-(


Í dag var fyrsti vinnudagurinn minn eftir 6 mánaða fjarveru. Í öllum öðrum löndum er þó guðstrúin til þess nýt að gefið sé frí á annan í Hvítasunnu, en svo er ekki í Bretaveldi...... jafnvel trúleysinginn ég sé eftir þessum ágæta frídegi.
Við fórum öll í vinnuna í þetta sinn því ég var ekki alveg viss hvað þetta yrði langur dagur, og svo vissi ég að vinnufélögunum langaði til að sjá skvísuna. Hún gerði náttúrulega mikla lukku, á tímabili voru 6 kerlingar að geifla sig framan í hana í einu. Hún brosti bara við öllum þrátt fyrir að ganga endalaust á milli manna, jafnt karla sem kvenna, sem vildu prófa að fá hana í fangið. Svo var rosa fjör að láta deildarhundinn Evie hnusa af litlum tásum. Ég get ekki sagt að mér hafi þótt eins gaman, enda kom ég heim með stafla af prófum sem ég þarf að fara yfir á næstu dögum, og sat þar að auki hræðilega leiðinlegan og tilgangslausan fund. Úff, mig langar aftur í fæðingarorlof!

sunnudagur, 11. maí 2008

Dagur í Durham


Enn er hér mikil veðurblíða og hitin hefur haldist yfir 20 stigum og vel það alveg síðan við komum. Það á víst að kólna aðeins á morgun - niður í svona 17 stig, en annars spáð sól og góðu veðri út næstu viku líka. Það virðist reyndar oft fara saman að veðrið verður yndislegt þegar allir liggja í próflestri, en er svo kannski hundleiðinlegt það sem eftir er af sumrinu.

Í gær nutu Iðunn og pabbi hennar veðursins í Durham meðan mamman fór á kóræfingu í dómkirkjunni. Allar kerlingarnar í kórnum vildu skoða Iðunni og bar auðvitað saman um að hún væri undurfríð og sæt og yndisleg. "Such a happy little thing". Þau feðginin fóru m.a. í Marks og Spencer til að finna lausn á sokkavanda Helga Péturs. Helgi á nefnilega einungis einstæða sokka, því hann er ansi gjarn að henda sokkum sem komið er gat á og gleyma þá að henda líka hinum sokknum sem passar við. Nú keypti hann sér stóran pakka af sokkum, öllum eins svo alltaf verður hægt að finna einhverja sem passa saman. Hann er sérlega ánægður með að sokkapakkinn stærir sig af því að innihaldið sé "The most comfortable socks in the world", og heldur því nú fram að engir sokkar jafnist á við þessa í þægindum.

Um kvöldið fór Una svo aftur til Durham og söng á tónleikunum sem tókust bara furðu vel miðað við fyrri reynslu af kórnum. Helgi og Iðunn höfðu það bara náðugt heima á meðan. Þar með lýkur fréttaflutningnum af þeim degi.....

laugardagur, 10. maí 2008

Yndislegur vinnustaður

Það eru ekki allir vinnustaðir eins. Hér í Bretlandi hefur t.d. verið mjög erfitt fyrir konur að fara að vinna eftir barneignir vegna skilningsleysis vinnuveitenda og rándýrra leikskóla (niðurgreiddi leikskólinn í Durham háskóla kostar t.d. 750 pund á mánuði og þarf samt að koma með nesti). Í gær hringdi deildarstjórinn minn í mig til að athuga hvort ég kæmi nú ekki örugglega aftur, og lagði mikla áherslu á að ég gæti bara haft mína hentisemi með viðveru eftir því sem passar inní brjóstagjöfina. Eins að láta hann vita um leið og mér fyndist álagið of mikið svo hann gæti hjálpað mér - bauðst meira að segja til að fara yfir einhver af prófunum mínum fyrir mig, eða borga öðrum fyrir að taka það að sér.....ekki amalegt boð það.
Allt í einu varð ég miklu jákvæðari.

föstudagur, 9. maí 2008

Allt í stakasta lagi

Hér í County Durham er alltaf sama blíðan. Í dag fórum við til Masham, sem er lítið þorp í N. Yorkshire, sem státar af tveimur brugghúsum: Theakston´s og Black Sheep Brewery. Hið síðarnefnda er víst hugarfóstur yngsta meðlims Theakstons fjölskyldunnar, sem sagði skilið við fjölskyldufyrirtækið og tók að brugga sinn eiginn bjór undir nafninu svarti sauðurinn. Helgi Pétur er mjööög hrifinn af Masham, og er alltaf til í að styðja framtak svarta sauðarins því hann bruggar einstaklega góðan bjór. Í þetta sinn fórum við þó eiginlega til að láta yndislegu mennina í Wensleydale Garage kíkja á bílinn okkar, og tókst þeim að kippa honum í lag á klukkustund og fyrir einungis 45 pund svo við vorum sátt. Einnig skoðuðum við kirkjuna og kirkjugarðinn í þorpinu, og Iðunn fékk að láta grasið kítla tærnar - myndir að því er að finna í eplamyndunum sem linkað er hérna hægra megin. Þannig að nú er allt í fínasta lagi, bíllinn kominn í lag, veðurspáin góð og allt í lukkunnar velstandi

Suits you, sir.

Mr Gunnarsson er nú orðinn sannur Breti, í nærklæðum frá Marks og Spencer. Engin mynd fylgir þessari frétt.

fimmtudagur, 8. maí 2008

Nýtt rúm og gamall söngur


Síðan við komum til UK hefur Iðunn sofið milli pabba síns og mömmu í óskaplega kósí hreiðri.....eða a.m.k. kósí fyrir Iðunni sem alltaf sefur með armana útrétta eins og Kristur á krossinum, og pabba hennar, sem eins og allir vita getur sofið allt af sér. Mamma hennar er hins vegar ekki eins ánægð. Rúmið er fallegt franskt járnrúm frá 19.öld, rosalega flott, en því miður sniðið að franskri stærðargráðu - ca.140cm breitt og 180cm langt. Húsfrúin sefur laust og er lengi að sofna, og þegar nóttinni er þar að auki eytt í að reyna að halda jafnvægi á ysta kanti rúmskararinnar er lítið um nætursvefn milli brjóstagjafa. Í dag hélt því fjölskyldan af stað til að kaupa nýtt rúm handa Iðunni, svo hjónin gætu endurheimt rúmið sitt. Engu var til sparað svo haldið var í gula og bláa höll kapitalismans - IKEA í Gateshead.... þar sem fjárfest var í hinu ágætasta rimlarúm handa dömunni. So far so good. Eeeeeeeeen því miður þegar sest var upp í bílinn var hann alltí einu búinn að muna eftir því að eitthvað ætti að vera að rafkerfinu, svo hann tók engum sönsum og við urðum að hökta heim með klikkaðan bíl sem gat drepið á sér við hvert tækifæri....hér ber að geta að milli IKEA og Barnard Castle eru t.d. 25 hringtorg. Þeir sem þekkja Unu geta ímyndað sér hve glöð og róleg hún var að keyra heim (60km) við þessar aðstæður. Bretarnir kalla víst ástandið "Sense of Humour Failure". ....og auðvitað fékk Iðunn litla svona sense of humour failure líka sem gerði ferðina enn ánægjulegri.
En hvað sem þessu leið þá komumst við heim að lokum, og pabbinn setti upp rúmið af mikilli snilld, og Iðunn sefur nú vært í því, og vonandi mun mamma hennar líka sofa betur í nótt.
Hð eina annað fréttnæma sem gerst hefur hér á bæ er að mamman fór á kóræfingu með Barnard Castle Choral Society...eða Geriatric-Sing-Along-Society eins og hún kýs að kalla það. Þetta er kórinn sem er svo lélegur að stjórnandinn er hrifnari af mæmurunum (þ.e þeim sem opna bara munninn og þykjast syngja) en þeim sem reyna að koma upp hljóði (sem margir hverjir syngja alltaf sömu nótuna, já eða lækka allt um sjöund.....ein konan er t.d. rosalega klár að lesa nótur, og mjög lagviss...en syngur alltaf kvarttón fyrir neðan alla aðra).....það voru gleðilegir endurfundir, og hún sannfærð um að syngja á tónleikum á laugardaginn í Durham Cathedral eftir einungis eina æfingju. Það er þó lýsandi um þennan kór að einungis 4 höfðu tekið eftir að Iðunn væri á leiðinni, þó hún hefði verið komn 35 vikur á leið þegar síðast var mætt á æfingu!
Nóg í bili.

þriðjudagur, 6. maí 2008

Sumarsæla




Síðustu daga hefur hér verið hið yndislegasta sumarveður, þó mai sé einungis rétt byrjaður.....við vonum að það boði gott fyrir sumarið, en veðrið getur reyndar alls ekki orðið verra en það var hér í fyrrasumar. Við höfum aðallega bara tekið því rólega og notið þess að vera í fríi, enda strembin prófyfirferðartörn fram undan hjá húsfreyjunni. Keyptur var sólaráburður á alla fjölskylduna, Iðunn setti upp sólhattinn frá ömmu Titti, og Helgi dró fram U2 sólgleraugun sem ég er svo rosalega "hrifin" af.
Hið eina frásagnarverða sem á daga okkar hefur drifið er bílaævintýrið litla. Við sóttum bílinn okkar til Keith (samstarfsmanns míns) sem hafði geymt hann í hlöðunni sinni síðustu mánuði, og kom þá í ljós að hann var ekki bara rafmagnslaus, heldur var rafhlaðan gersamlega ónýt, svo fyrst þurftum við af stað að kaupa nýja. Svo var aftur reynt að halda af stað - mamma og Iðunn í broddi fylkingar á bílaleigubílnum, og pabbinn á eftir á okkar bíl. Allt í einu tökum við Iðunn eftir að pabbi er bara ekki lengur með okkur....við bíðum smá stund og loks sjáum við hann koma á 5km hraða eftir veginum. Hafði þá rafmagnsleysið leitt til einhvers galla í rafkerfinu sem varð til þess að bensíngjöfin hætti að virka. Eftir mikla mæðu tókst okkur þó að sigrast tímabundið á þeim vanda...en þá sáum við að ekki var nægt bensín á bílnum...svo við af stað á næstu bensínstöð, fengum lánaðan dunk og fengum 5 lítra af bensíní (sem by the way er dýrara hér en heima, svona ef Sturla langferðarbílstjóri slysast inn á þetta blogg), keyrðum aftur tilbaka, sóttum bílinn.......og aftur á bensínstöðina að skila dunknum og kaupa meira bensín. Þegar hér er komið sögu er Iðunn komin með ógeð á að sitja í bílnum, búin að óhreinka bleyjuna og móðirin ekki með aðra með sér, og allar búðir lokaðar því hér var frídagur. Ég keyrði því til Teesside airport (með viðkomu á enn einni bensínstöðinni)....og svo aftur tilbaka - samtals um klst akstur með barnið organdi í bílnum, bílinn hálf höktandi vegna rafmagnsvandans, og meiri hlutann af leiðinni var Helgi á öðrum bíl og barnið því aleitt og óhamingjusamt afturí. Vart þarf að taka það fram að við höfum ekki hreyft bílinn síðan!
Ofan á allar þessar svaðilfarir náði Iðunn svo í einhverja magapest í ferðinni sem veldur allt of tíðum hægðum með tilheyrandi roða og eymslum, svo ferðin sem ofan var lýst var enn verri en ella fyrir botninn. Við vonum bara að Weleda kremið góða hrífi á þessi eymsl eins og önnur og að maginn jafni sig fljótt aftur.
Donna kíkti aðeins til okkar í dag og leist henni sérlega vel á Iðunni - ég held að Iðunni hafi litist vel á hana líka, þó hún reki alltaf upp stór augu þegar fólk talar við hana á ensku sem hún skilur ekki bofs í...það er fyndið að hún gerir augljósan mun á ensku og íslensku....horfir undrunaraugum á mömmu sína þegar hún fer að buna einhverju út út sér á þessu hrognamáli.
Nóg í bili - Toodiloo frá okkur hér í Bretaveldi

mánudagur, 5. maí 2008

Komin á leiðarenda

Eftir ansi langt ferðalag erum við komin til Barnard Castle. Allt gekk vel en við erum öll svoldið lúin. Komum í hús um korter yfir tólf í nótt eftir 2 tíma flug og 3 tíma keyrslu, og Iðunn svaf sem betur fer af sér alla bílferðina því ekki var nægt pláss til að pabbinn gæti setið afturí með henni. Hér tóku kisurnar á móti okkur, og ekki er enn ljóst hvernig þeim mun semja við Iðunni, en henni líst að minnsta kosti ansi vel á þær.
Meiri skrif síðar

Afmælið hans afa

Í dag, 5. mai á afi Viðar afmæli og fær hann hér með risa knús frá okkur öllum og stóra slef kossa frá Iðunni. Afi Viðar er áhugamaður um skák, tölvur og stærðfræði rétt eins og Iðunn og nutu þau þess að skrafa saman um sameiginleg áhugamál þegar við heimsóttum Svedalabúana um páskana. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að við hittum þau aftur.
Pussar och kramar fran oss allihopa.

sunnudagur, 4. maí 2008

Eygló árþúsundagella er orðin 8 ára!!!!


Í dag verður 8 ára, Eygló Strand Jóhannesdóttir....fimleikastjarna, hjólhestaeigandi, með meiru og sést hún hér að ofan (fyrir miðju).
Til hamingju með afmælið elsku Eygló - sjáðu hvað við erum sætar saman!
Þín allra minnsta frænka Iðunn (mamma þurfti aðeins að hjálpa mér að vélrita)

laugardagur, 3. maí 2008

Eplið fellur sjaldan langt frá eikinni....


Hér má sjá Iðunni og eplamóðurina fylgjast með ræðuhöldum á Fischers-hátíð Reykjavík Open skákmótsins sem haldið var fyrr á árinu. Iðunn drekkur í sig hvert orð Spasskís og félaga og ætlar sér augljóslega að komast langt í skáklistinni.....tekið af vef Skáksambandsins þar sem ég rakst á myndina þegar ég var að reyna að komast hjá því að setja ofan í töskur.
OK OK nú er ég hætt að blogga þangað til að við erum komin í Durhamsýslu.

Niðurpökkunarblús

Það er einkennilegt hve mikið drasl tvær miðlungsstórar og ein lítil manneskja þurfa að fara með milli landa...... Eins er einkennilegt hvernig sú sem er langminnst og hefur akkúrat enga farangursheimild virðist vera með langmesta dótið!