þriðjudagur, 22. maí 2012

Það er komið sumar!

Hér var skítkalt í gær, og svo bara allt í einu: SUMAR!!
Stelpurnar og Helgi höfðu það gott í dag úti í sólinni allan daginn - svo grilluðum við og blésum sápukúlur þegar ég kom heim.  Hér eru nokkrar myndir til að koma öllum í sumarfíling.







Yndislegt!

mánudagur, 21. maí 2012

210512

Loksins loksins fékkst hún til að sofa í sínu herbergi!

200512

Vor

190512

Iðunn horfir á pabba fjarlægja dauðann fugl undan bílnum

180512

Ekki margar myndir þennan daginn - þessi er þó ágæt

170512

Nýja taskan

160512

Fer kannski bráðum að koma sumar?

150512

Hundurinn viðraður

140512

Svona stór!

130512


120512

Iðunn og Pétur granni

110512

Prinsessa

100512


090512

Í pabbafangi

laugardagur, 19. maí 2012

Ævintýraferð til Yarm

Hér er enn kalt og grátt (á samt að skána í næstu viku, og vera fínasta veður þegar við höldum til Edinborgar).  Við ákváðum því að skreppa til Yarm til að hressa okkur við og breyta aðeins um umhverfi.  Yarm er yndislegur lítill bær hinum megin við Darlington.  Þar eru krúttlegar búðir sem er reyndar erfitt að skoða með Iðunni...og allir búnir að skreyta gluggana með breskum fánum til að undirbúa hátíðahöld vegna 60 ára setu Betu gömlu.

Við fengum yndislegt kaffi og hádegismat á ítölskum delicatessen sem við höfum komið á áður.  Una mamma mátaði frábæran kjól á frábæru verði, sem því miður hafði verið sniðinn fyrir brjóstalausar konur (spöruðum nokkrar krónur þar).  Iðunn fékk sápukúlur sem vöktu mikla lukku hjá litlu systur.


En svo hófst mikið ævintýri.  Á leiðinni heim flýgur fyrir okkur stór kráka...og endar þar með daga sína.  En við sáum hana ekki á veginum svo ákváðum að stoppa í Gainford til að athuga hvort hún væri nokkuð föst undir bílnum.  Viti menn, helvísk krákan hafði komist inn um loftgrindina að framanverðu og sat þar dauð og blikkföst með vængina hangandi yfir stuðarann - smart!! Iðunni þótti þetta mjög merkilegt og mikið spurningaflóð fylgdi um afdrif krákunnar og af hverju hún væri þarna og hvort hún fyndi til osfrv.


Við ákváðum að halda áfram heim og ná henni út þegar við værum komin, en áður en við leggjum af stað sjáum við mann koma gangandi framhjá með lamb undir arminum....náðum því miður ekki mynd af honum....svo sáum við ástæðuna þegar við keyrðum af stað - hann var greinilega að leita að flökkukind, sem við vorum búin að finna fyrir hann...hún hljóp nefnilega hálf brjáluð fyrir framan bílinn okkar og að lokum inn í garð á húsi þarna í grenndinni.


Annað merkilegt gerðist svo sem ekki....nema að Helgi þurfti spýtu og tvo poka til að ná fjandans fiðurfénu innan úr stuðaranum....Iðunni þótti það líka ansi spennandi!

fimmtudagur, 17. maí 2012

Ekki alveg að standa mig

Æ, ég er ekki alveg að standa mig í blogginu þessa dagana.  Mér gengur illa að ná jafnvægi - alltof mikið að gera í vinnunni og ekki næg orka til að vinna,  sinna börnunum og elda matinn og setjast svo niður að blogga.  Ég reyni þó alltaf að setja myndir inná myndasíðuna fyrir ömmur með aðskilnaðarkvíða.  Afsakanir, afsakanir.


Helst er í fréttum að Iðunn er aðeins ánægðari á leikskólanum.  Maturinn er þó enn vondur.  Það er alveg að bjarga henni að hafa Alice á deildinni - þær leika sér saman allan daginn, og Alice segir mömmu sinni að Iðunn sé besta vinkona hennar á Yellow Wellies.  .  Hún er voða dugleg að syngja á leikskólanum, er búin að læra "The wheels on the bus go round and round" og "If you´re happy and you know it clap your hands" og margt annað.  Svo kann hún að segja Wriggly worm og ladybird, og wash your hands og annað lífs nausynlegt.

Litla skotta var lasin um helgina með háan hita en er nú aftur orðin hress.  Hún hefur tekið upp á því að sofa vel í vagninum sínum bæði fyrir og eftir hádegi þegar hún er heima hjá pabba - það er aldeilis munur eftir 20 min blundana sem hún tók á Íslandi....heppinn Helgi...reyndar er hún líka farin að reyna að skríða svo þá ætti pabbinn að fá nóg að gera!


Annars er fátt að frétta - erum þó búin að panta okkur gistingu í Edinborg eftir rúma viku - ætlum að horfa á Diljá hlaupa og hver veit nema við hittum tengdaforeldrana líka.  Svo kann að vera að við skoðum einhver dýr, en það á að koma Iðunni á óvart svo við biðjum alla um að þegja um það í bili.
 Góða nótt!
Þreytta mamman, a.k.a. Una

PS Ég er svo þreytt að ég sé að ég endurtók mig ansi mikið síðan síðast - ja hérna.....men det er tanken som teller, eins og þar stendur!




fimmtudagur, 10. maí 2012

Öppdeit


Mamman er hálf andlaus en vildi bara skrá að leikskólavist Iðunnar gengur nú aðeins betur.  Hún var bara sátt þegar ég sótti hana í dag, þó maturinn sé reyndar enn vondur.  Alice vinkona hennar er búin að reynast henni vel - leikur við hana allan daginn og er alveg sama um tungumálaörðuleika.  Iðunn er reyndar búin að reyna að segja henni að "My name is not Ídúnn, my name is Iðunn" en þessi skilaboð eru ekki að ná í gegn, hvorki hjá Alice né leikskólastarfsfólkinu.

Helgi stendur sig vel hér heima, setur saman rúm, vaskar upp og þvær þvott, og hugsar um stelpuna okkar.  Gerður verður samt alltaf voða glöð þegar mamma og Iðunn koma heim - sopinn og skemmtikrafturinn!


Litlir sigrar


Í dag lærði Gerður loksins að gera "Svona stór!" - vildi bara að einhver hefði tekið upp á vídjó alla fjölskylduna standa í kringum hana kyrjandi "Hvað er Gerður stór?, Svoooooooona stór!" með tilheyrandi hreyfingum!

þriðjudagur, 8. maí 2012

080512

Systurnar

070512

Helki Ptur

sunnudagur, 6. maí 2012

060512

Nýr stóll

050512

Helgi og vorið

040512

Angist!

fimmtudagur, 3. maí 2012

Long time no see

Nú er orðið langt síðan var bloggað síðast - engar haldbærar afsakanir til reiðu nema algjör þreyta Unu og enginn annar sem tekur verkið að sér.
Lífið er farið að komast í aðeins fastari skorður.  Iðunn byrjaði á leikskólanum fyrir alvöru í vikunni, og Helgi er orðinn heimavinnandi húsfaðir af bestu sort.  Vikuleg gin+spjallkvöld okkar Barböru eru byrjuð aftur, og Helgi er farinn að mæta í boltann á föstudögum.



Iðunn var í fyrsta sinn heilan dag á Yellow Wellies í gær.  Það var erfiður dagur fyrir okkur mæðgurnar.  Grátið þegar mamma fór, ágætt inná milli þegar ég hringdi til að athuga stöðuna um hádegi, en svo var hún alveg búin á því þegar ég kom að sækja: vildi aldrei fara þangað aftur, krakkarnir leiðinlegir og ljótir, maturinn óætur.  Eftir miklar fortölur og loforð um nýja litabók ef hún héldi út fram á föstudag (hún á pláss miðvikudaga, fimmtudaga og föstudag), fékkst hún loks til að fara í dag, ef mamma kæmi snemma að sækja.  Hún var þar frá 08 til 14.45 og þrátt fyrir vesen þegar ég fór var hún miklu glaðari í dag.  Fékk að vera úti mest allan daginn, setja niður grænmeti og vökva það, og söng vist með í öllum lögunum í söngstundinni.  Að auki sagði hún mér í óspurðum fréttum að hún hefði sagt við Alice "Alice, you want play with me?" og að Alice hefði sagt "yes".  Duglega stelpan okkar!  Svo er hún farin að geta spurt "what ´s this" og segir endalaust "Thank you very much", "yes" og "no" við okkur hér heima.


Við skruppum til Donnu á þriðjudaginn - hún hefur verið að heiman þangað til núna.  Það voru miklir fagnaðarfundir.  Donna er svo yndisleg og áttaði sig alveg á því að fagna Iðunni áður enhún fór að skoða Gerði. Svo fékk Iðunn að leika sér, og Donna fékk að knúsa Gerði, og allir nutu þess að vera saman á ný.  Það er gott að eiga svona aukaömmu í útlandinu.

Helgi er flottur í pabbahlutverkinu og fæðingarorlofinu.  Þegar við mæðgurnar komum heim eftir erfiða daginn í gær mætti okkur yndislegur matarilmur - heilsteiktur kjúklingur með hvítlauk, sítrónu og timian í ofninum og þvottur á snúrunni.  Geri aðrir betur!


Og litla stelpan varð 8 mánaða á mánudaginn var...tíminn flýgur!





030512

Pabbi les The Jolly Postman

020512

Frústrerandi þessi kubbur

010512

Gerður hittir Donnu

300412

8 mánaða yndi

290412

Rigning

280412

Burknarnir vakna til lífsins

270412

Iðunn veltir fyrir sér krikketinu