mánudagur, 28. desember 2009

Loksins loksins kom jólasnjórinn!




Mikil var gleðin á Grundarstígnum í morgun þegar við litum út um gluggann og sáum jólasnjóinn. Betra seint en aldrei, enda margir jóladagar eftir enn! Iðunn fór í fyrsta sinn á snjóþotu og fannst það rosalega mikið sport. Enn betra var svo þegar mamma og pabbi fóru með hana á Arnarhól og renndu sér þar niður brekkur - þvílíkt stuð! Meija njó meija njó söng heimasætan og hámaði í sig snjóinn!

föstudagur, 25. desember 2009

Gleðileg Íslandsjól!


Við óskum öllum lesendum Iðunnarbloggsins gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Mikið er yndislegt að vera komin heim til Íslands!

sunnudagur, 20. desember 2009

Bloggleysi


Hér hafa veikindi hamlað bloggskrifum. Eplamamma hefur verið lasin og lenti á spítala í fjóra daga, eftir ansi marga veikindadaga heimavið. Iðunn og pabbi hafa því þurft að bjarga sér sjálf síðasta hálfa mánuðinn - Helgi stóð sig auðvitað vel i heimilisstörfunum, en lýsti því yfir í dag hve hann er feginn að vera ekki einstæður faðir!
Á tímabili virtist sem við kæmumst ekki heim fyrir jól, en sem betur fer fór mamma gamla að skríða saman um helgina og er nú komin heim í Victoria Road, daginn fyrir heimferðina. Morgundagurinn verður eflaust strembinn, en mikið held ég að við verðum fegin þegar við lendum loks á Keflavík annað kvöld!

föstudagur, 11. desember 2009

Iðunn tveggja ára!



Elsku yndislega Iðunninn okkar á tveggja ára afmæli í dag. Fallega stelpan okkar sem veitir okkur svo ómælda gleði og kemur okkur stöðugt á óvart með skemmtilegheitum og endalausum gáfum (eins og hún á náttúrulega kyn til í báðar ættir). Dagurinn byrjaði á leikskólanum - pabbi hafði bakað fína súkkulaðiköku sem allir fengu að smakka, og það voru ansi margir súkkulaðiklístraðir munnar á Bangsadeildinni þegar við komum að sækja dömuna eftir hádegismatinn. Mamman er nefnilega lasin með mikinn hita og treysti sér ekki til að vinna lengur eftir að hún var búin með kennslu dagsins.
Þegar heim var komið voru opnaðir pakkar - Iðunn fékk fínan kjól og bangsa frá afa og ömmu í Sólskinsgötu, inniskó frá ömmu Fanneyju, og dúkku frá Donnu. Mamma og pabbi höfðu pantað gjöf á netinu en því miður tókst ekki betur til en svo að gjöfin kom ekki í tæka tíð. En kannski er bara meira gaman að dreifa pakkaopnuninni á fleiri daga!

Að neðan má sjá Iðunni þennan sama dag í fyrra, og í hitteðfyrra - aðeins minni, en alltaf jafn yndisleg!


mánudagur, 7. desember 2009

Komin frá Hanoi


Eplamamma er komin frá Hanoi eftir langa og strembna, en jafnframt skemmtilega ráðstefnu. Hanoi var skemmtileg borg og mannlífið ansi áhugavert. Sérstaklega var umferðarmenningin framandi - ég sá flest 5 manns á einni vespu, og eins sá ég mann með ca. 40 gullfiska, sinn í hverjum plastpokanum hangandi af grind á reiðhjólinu sínu. Framandi þjóðfélag, en fólkið yndislegt og maturinn góður - væri alveg til í að koma þangað aftur!


Iðunn var voða glöð að sjá mömmu sína, og er búin að vera mikil mömmustelpa í allan dag, þannig að það er eins gott að mamman gat tekið sér frí. Vinnudagur á morgun að venju. Í fjarveru minni hafði amma Fanney komið og létt undir, og jafnframt fært heimasætunni vettlinga og lambhúshettu sem ekki veitir af hér í Durham. Rigning og trekkur í dag.
Nóg í bili. Er ansi andlaus eftir 50 svefnlausar stundir...

sunnudagur, 6. desember 2009

mánudagur, 30. nóvember 2009

Amma FK komin



jamm

Iðunnarsakn

Mamman er nú ansi fjarri Iðunni, komin alla leið til Víetnam...búin að vera á ferðinni síðan á föstudag, og enn heil vika þar til hún kemur heim. Við erum samt búin að vera duglegar að skæpast....það er alveg yndislegt að eiga þó möguleika á að skrafa saman í gegnum netið. Annars gengur allt vel hér - skemmtilegt fólk, flott hótel, framandi mannlíf....góður matur. Frekari fréttir þegar ég kem heim.
Hanoieplið

miðvikudagur, 25. nóvember 2009

Stund milli stríða 2!


Við erum komin heim frá Vín eftir yndislega daga í óvenju hlýju veðri. Helgi var fyrst einn í heimsborginni við kynningu á forritinu sínu og tókst víst mjög vel upp. Allir ánægðir og mikið gaman. Við Iðunn vorum ekki alveg eins hressar, báðar með einhverja smá lumbru, en nutum nú samt ferðarinnar. Reyndar byrjaði ferðalagið ekki vel, því við fórum með lest til Gatwick og gistum þar áður en við fórum í flug. Lestin var vatnslaus og því búið að læsa öllum klósettum, og lestin of full til að hægt væri að finna laust sæti til að skipta á litlum dömum, ekki fór betur en svo að Iðunnin var orðin gengdrepa þegar við komumst loks á Gatwick. Þar tók ekki betra við, því þegar Iðunn loks var sofnuð upphófst mikill skarkali, og var þá maðurinn í næsta herbergi að lumbra ansi harkalega á eiginkonunni....eplamamma hringdi út allt tiltækt lið... sem kom á staðin og stillti til friðar...en eftir þetta allt saman var lítið sofið...sérstaklega þar sem vekjaraklukkan hringdi klukkan 4 til að koma okkur út á völl í flug.

En þegar til Vínar var komið var bara yndislegt. Fengum lánaða fína íbúð miðsvæðis hjá Katrínu vinkonu minni. Hittum Eyþór yndislega eitt kvöld á bar sem var skreyttur myndum eftir Dieter Roth, þó enginn vissi hvers vegna (ég spurði!). Fórum á jólamarkað með Katrínu og fjölskyldu. Röltum um bæinn og upplifðum stemmninguna. Settums á Ugluhreyðursvínbarinn og ræddum við eigandann sem er vinur Grétu og Susan. Fórum í dagsferð í sveitina að hitta Katrínu í nýjum heimkynnum og eiga góðar stundir með nýja vini okkar honum Vincent litla. Fórum í dýragarðinn að skoða skemmtilegar skeppnur með stelpunni okkar. Myndir af þessu öllu má sjá á myndasíðunni hér til hliðar.

Nú erum við komin heim. Eplamamma þarf að skipta skjótt um í töskunum, enda fer hún til Hanoi á föstudag, en sem betur fer kemur amma fanney á mánudaginn til að létta undir með Helga og skemmta Iðunni.
Nóg að gera á þessum bæ!!

fimmtudagur, 19. nóvember 2009

Stund milli stríða


Við mæðgurnar höfum það gott hér í Victoria Road, þrátt fyrir að pabbann vanti. Iðunn er reyndar búin að vera að spyrja hvar pabbi sé, og loks sættumst við á að pabbi væri í flugvélinni. Hún er búin að tala mikið um að Iðunn og mamma verði nú að fara í flugvélina líka, sem stendur reyndar til, en mamman hefur gefið lítið út á það hingað til, því allt sem maður lofar á þessum bæ verður helst að standast innan næstu tveggja mínútna!
Á morgun leggjum við svo af stað til fundar við Helga. Iðunn fer á leikskólann og svo sæki ég hana um 3 eh og þá keyrum við til Darlington og tökum lest til London, og þaðan til Gatwick. Gistum þar um nóttina og svo með flugi til Vínar einhverntíma um 6.30 fyrir hádegi á laugardag. Það er náttfatadagur í leikskólanum á morgun, svo það verður gaman að sjá svipinn á lestarfarþegum og hótelgestum þegar Iðunn birtist í kuldaskóm og náttfötum - en á móti kemur að þetta eru ábyggilega þægileg ferðaföt, og ekki þarf að taka sig til fyrir háttinn þegar við komum loks á hótelið, sem verður eftir venjulegan háttatíma hjá dömunni.
Vonandi getum við bloggað eitthvað frá Vín.
Toodiloo! Una og Iðunn ferðalangar

Hér má bæta við smá Iðunnarsögu: Aðfaranótt gærdagsins gerði hræðileg vatnsveður, og rigndi enn þegar við Iðunn keyrðum í vinnuna um morguninn. Undir birtingu sitjum við föst á ljósum og þá rekur Iðunn augu í hóp u.þ.b. 60-80 blauta stara sem sitja í hnipri á þakskeggjum nærliggjandi húsa. Hún vildi endilega benda mér á þetta: Mamma mamma, bíbíar gráta rigningunni! Snillingur hún Iðunn!!

þriðjudagur, 17. nóvember 2009

Tómt í kotinu



Hér erum við búin að eiga yndislega daga með Diljá og ömmu Gobbu. Diljá er búin að fræða okkur um lífið í Edinborg, og greinilegt að hún er að njóta sín þar. Amma Gobba var voða fegin að hitta Iðunnina sína, og saman höfum við átt margar góðar stundir og hlegið ansi mikið. Veðrið var reyndar ansi leiðinlegt síðustu daga, en við létum það ekki spilla skapinu.
Nú er aftur á móti orðið hljótt í kotinu. Diljá fór á sunnudagskvöld, amma Gee fór svo í morgun til að líta Edinborgarlífið eigin augum, og klukkutíma seinna hélt Helgi af stað til Vínarborgar. Nú erum við mæðgurnar orðnar einar eftir og ansi tómlegt eftir skemmtun síðustu daga. Erum samt bara ansi sáttar hérna í rólegheitunum - Iðunn lét pabbaleysið ekkert á sig fá, og fór sæl í rúmið á settum tíma eftir að hafa borðað allan kvöldmatinn sinn. Nú hlökkum við bara til að hitta pabba aftur í Vín á laugardaginn. Nóg að gera eins og alltaf í eplafamilíunni!

miðvikudagur, 11. nóvember 2009

Lasin en hress!


Iðunnin er lasin. Fékk háan hita í gærkvöldi og fékk að vera heima í dag. Samt er stelpan ansi vel hress. Mamma hefur aflýst kennslu á morgun til að vera heima hjá Iðunni, og svo pabbi nái að undirbúa fundinn í Vínarborg í næstu viku. Vonandi verður svo fullri heilsu náð á ný á föstudag, þegar von er á ömmu Gee og Diddú (Diljá) í helgarheimsókn. Nóg að gera!

Sheffield ferð


Eitthvað hefur tafist fréttaflutningurinn af ferðinni okkar til Sheffield. Myndir eru þó komnar inná myndasíðuna fyrir nokkru. Helgin var hin allra skemmtilegasta, og það var yndislegt að hitta þær Grétu og Susan, þó Iðunn hafi reyndar endurnefnt þá síðarnefndu Rúsínu - ég held að Susan hafi bara verið ánægð með nýja nafnið! Helgi fór að sjá "Edie and Thea", og hafði mjög gaman af - myndin fór sigurför um Sheffield eins og alls staðar annars staðar sem hún kemur, enda yndisleg og afskaplega góð fyrir sálina.

laugardagur, 7. nóvember 2009

Smá hlé

Núorðið er aðallega bloggað um helgar á Iðunnarblogginu. Hér er þó smá myndahlé sem stendur, því familían er farin til Sheffield í helgarferð og gleymdi að taka með sér myndavélasnúruna. Ferðin er til að eplapabbi geti farið að sjá Edie and Thea, a Very Long Engagement - myndina þeirra Grétu og Susan sem hefur farið sigurför um kvikmyndahátíðir heimsins að undanförnu. Vonandi náum við líka að hitta þær yfir kaffibolla eða matarbita. Við ákváðum að nýta ferðina og taka okkur bara afslappelsishelgi fjarri heimilinu. Við tókum því rólega í morgun og lögðum svo af stað um hálf ellefu. Ókum til Leeds og fórum þar á veitingastað sem við höfðum séð í matreiðslukeppni í sjónvarpinu (F-word með Gordon Ramsey) og sem unnið hafði til verðlauna sem besti Local Ítalski matsölustaðurinn í Bretlandi. Hann reyndist vægast sagt frábær. Barnvænn, með yndislegt starfsfólk og hreint dýrlegan mat. Iðunn hámaði í sig Calamari og bakaðan mozrella ásamt öðru góðgæti, og ekki spillti fyrir að fá smá ís í lokinn. Hún sat sæl og glöð í klukkutíma og þrjú korter yfir matnum, og geri aðrir betur tæplega tveggja ára. Að loknum málsverði héldum við til Sheffield og á hótelið okkar sem reyndist sambyggt Sheffield United leikvanginum. Að öðru leyti hið allta fínasta hótel - stutt í miðbæinn, stórt herbergi, smartar innréttingar og ekki of dýrt. Við spókuðum okkur aðeins í bænum og nú erum við komin upp á herbergi. Iðunnin er sofnuð og við eplapabbi fáum okkur rauðvínsglas og njótum lífsins.
Yndislegt!

þriðjudagur, 3. nóvember 2009

Nú er hún Una á nýju skónum


Fátt kætir eplamömmu meira en nýir skór - sérstaklega ef það eru rauðir skór!

Helgargaman



Það er fátt sem Iðunni þykir skemmtilegra en krakkar og róló, og á sunnudaginn fékk hún hvort tveggja! Við skruppum til Darlington að heimsækja Alice vinkonu Iðunnar, og jafnframt Alicarforeldrana, Ross og Bridie. Veðrið var leiðinlegt fram eftir degi, en eftir hádegi stytti loksins upp, og litlu dömurnar fengu að renna sér og róla í "kvöld"sólinni (kl 15,30). Við fórum í ofsalega fínan almenningsgarð í Darlington sem heitir South Park, og þar var bæði flottur róló, andapollur og fuglabúr....gaman gaman!

laugardagur, 31. október 2009

Októberlok


Síðasti dagur októbermánaðar rann upp yndisfagur. Við nýttum því daginn og fórum í langan göngutúr - fyrst á róló, svo meðfram ánni, og loks í garðinn á Bowes Museum, þar sem Iðunn vildi ólm fá sér sundsprett í gosbrunninum, en snarræði eplapabba bjargaði henni, þó henni hafi fundist hann helst til afskiptasamur. Einkennilegt hve það er miklu meira spennandi að baða sig í skítugum og ísköldum gosbrunni en í stóra og fína ljónslappakerinu heima.
Vikan er búin að vera annasöm, aðallega bara þetta hversdagsstrit, en Helgi náði þó að fara í klippingu (loksins!!) og Iðunn fór í hrekkjavökupartí á leikskólanum. Megastuð! Við ætlum að reyna að taka því rólega þessa helgi því þetta er síðasta helgin okkar þar sem ekkert er í gangi fram að jólum! Erum samt á leið í eina heimsókn á morgun, hjá Alice vinkonu Iðunnar í Darlington, ekki langt að fara. Helgarnar fram á jólum líta svona út: Sheffield að hitta Grétu og Susan á kvikmyndahátíð; amma Gee og Diljá í heimsókn; Familían í Vín; mamma í Hanoi; mamma í Hanoi og Amma FK í heimsókn; afi Viðar í heimsókn......svo einhver jólapartí og ef við verðum heppin náum við heim fyrir jól. Nóg að gera!
Látum þetta nægja í bili - ætlum að gæða okkur á nýbökuðu rúsínubrauði.....

mánudagur, 26. október 2009

Indíáni





Stríðsmálning indíánastelpunnar var sem betur fer auðfjarlægð með sápu og vatni.

sunnudagur, 25. október 2009

Sunnudagurinn langi


Hér var klukkunum breytt aðfaranótt sunnudags, og vetrartími genginn í garð, þ.e. sami tími hér og er heima á Íslandi. Haustdagur með roki og rigningu, svo lítið annað hægt að gera enn að dunda sér innivið. Fórum þó aðeins til Darlington í bíltúr og matarinnkaup. Mamman bakaði brauð sem féll vel í kramið á öðrum fjölskyldumeðlimum, og svo kveiktum við á kertum og nutum kvöldrökkursins sem féll strax um fjögurleytið. Allir voru uppgefnir eftir að hafa þurft að vaka klukkutímanum lengur en venjulega, og Iðunn litla endaði á að standa upp úr sæti sínu rétt fyrir klukkan 19, grípa snudduna sína og lýsa yfir að "Ijunn lúlla núna (með) teppi", dró svo ullarteppi og bakpokann sinn með sér upp stigann í átt að herberginu sínu. Þar sofnaði hún svo alveg útkeyrð, aldrei þessu vant án þess að vera i í gúmmistígvelum.
Myndin var tekin við morgunverðarborðið, að neðan má sjá hana í sama stól fyrir ári. Minna hár og meiri kinnar í okt 2008, en að öðru leyti ansi lík sjálfri sér.

laugardagur, 24. október 2009

Rigningardagur

24. október - (lang)afi Karl hefði orðið 98 ára í dag.


Rigningardagur í dag, en samt er öllum nauðsynlegt að fara út að fá sér ferskt loft - líka bangsa.


Fórum á rólóvöll og svo stillti Iðunn sér upp í haustlitadýrðinni, enn nóg af fallegum haustlaufum í Barnard Castle þó langt sé liðið á októbermánuð.


Svo var farið heim og litli listamaðurinn dundaði sér við listaverkagerð fram að kvöldmat - sem sagt tíðindalítill en ágætur dagur.

Í fréttum er þetta helst...


Hér hefur ekkert verið bloggað í 9 daga og mesta furða að ömmurnar séu ekki farnar að kvarta. Margar ástæður fyrir því - einna helst of mikil vinna eplamömmu og andleysi á kvöldin sem vinnunni fylgir. Eins vorum við í Cambourne fjóra af dögunum 9, í heimsókn hjá Þórði, Eyrúnu og börnum, sem við gistum hjá - og Söru, Davíð og strákum sem við áttum líka yndislegar stundir með. Sara var líka svo góð að gefa Iðunni tvær bækur, svo nú er til eitthvað nýtt að lesa fyrir svefninn. Svona erum við heppin að eiga vini sem eru með bókaútgáfu (Unga Ástin Mín).
Iðunni fannst svo gaman að vera innan um alla þessa krakka. Hún lék sér allan liðlangan daginn við Hrannar og Heiðar Þórðarsyni, og ekki spillti fyrir þegar Hávar og Alvar Davíðssynir bættust við. Hún skoppaði t.d. fram úr rúminu á þriðjudagsmorgun, hljóp fram á gang og kallaði hátt og snjallt "Halló krakkar!", og þá gall í litla gutta "Halló" innan úr sínu herbergi. Bara yndisleg, öll þessi börn. Hrannar, sá eldri var líka endalaust góður við Iðunni. Ég fékk hann með mér í að reyna að vinna á baðskelfingunni miklu sem hefur hrjáð Iðunni alveg síðan í sumar, og hann buslaði og hló af lífs og sálar kröftum og sýndi Iðunn hve gaman er að vera í baði. Það virðist hafa virkað, því eftir að hafa rætt mikið við mömmu um baðið og krakkana eftir heimkomuna á þriðjudag fékkst litla pæjan loks til að koma með mömmu sinni í bað, og eftir smá grát skemmti hún sér bara stórvel, og fór sæl uppúr eftir ansi langa stund, svo vonandi stendur þetta allt til bóta.


Á mánudaginn þurfti ég á fund í London, og þá nýttu Iðunn og Helgi tækifærið og skruppu í London Zoo, sem Iðunni þótti ansi merkilegur staður, þó hún hafi ekki kannast við alveg öll dýrin, enda hafa mamma og pabbi átt ansi erfitt með að finna út úr hvað sum dýrin segja - t.d. gíraffinn, og lamadýrið....
Myndir af heimsókninni suður í land má finna á myndasíðu Iðunnar sem linkað er á hér til hægri.

fimmtudagur, 15. október 2009

Af hundum og haustferðum...


Það er erfitt að vera hundaeigandi - maður þarf út í öll veður og passa að hann hreyfi sig nóg.


Hér er haustlegt sem stendur - suddarigning og birti varla einu sinni yfir miðjan daginn. Mamma, Iðunn og Briohundurinn eru þó vel viðruð, og ekki spillir fyrir að komið var við á róló.
Förum svo til Cambourne um helgina að heimsækja Þórð og Eyrúnu, Unni Söru, Hrannar og Heiðar. Grannar þeirra eru svo Davíð og Sara, Alvar og Hávar, sem einnig eru vinir okkar svo þetta ætti að verða skemmtileg helgi. Frá Cambourne förum við svo til London og gistum eina nótt því mamman er þar á ráðstefnu í Royal Society á mánudag og þriðjudag.
Nóg að gera!

sunnudagur, 11. október 2009

Akksjon sjot!


Heimsókn til Donnu - mamma masar, Iðunn fékk djús


Rólóferð á Demesnes....


Gangurinn orðinn fínni.

Að auki klipptum við niður runna fyrir framan hús og undirbjuggum þannig veturinn - ekki seinna vænna, enda hætt að sjá út og litla daman hætt að geta kíkt eftir mömmu þegar von er á henni heim úr vinnunni.

Laugardagur í Darlington


Í gær skruppum við til Darlington að kaupa peysu handa Helga Pétri, sem er vart til frásögu færandi. Á leiðinni þangað keyrðum við fram hjá gamla vatnsveituhúsinu, og þar var þá opið hús, búið að koma öllum griðarstóru hundrað ára gömlu gufuvélunum af stað, og eins voru minni gufulestir og bílar til sýnis í garðinum. Verkfræðingurinn og fjölskylda hans gátu nú ekki látið þetta fram hjá sér fara, skelltu sér inn, og áttu saman góða stund á sýningunni í yndislegu haustveðri. Myndir á myndasíðunni. Þaðan var farið í stutta bæjarferð og pabbinn fékk peysu, og Iðunn nýja bók - stóru bókina hans Richard Scarry sem foreldrarnir áttu báðir í æsku. Vart þarf að taka fram að þetta er nú nýja uppáhaldsbókin á heimilinu.

föstudagur, 9. október 2009

Aftur komin helgi


Hér ríkir greinilega bloggleti.....voða lítið bloggað milli helga, aðallega vegna þess að mamman er alltaf uppgefin eftir vinnudaginn og lítið er tekið af myndum í haustmyrkrinu á kvöldin. Náði þó þessari af Iðunni að lesa umferðarreglurnar í vikunni.
Hið helsta í Iðunnarfréttum....bílferðir eru orðnar ABBA ferðir, meiji múshik mamma, meiji múshik.... Iðunn er líka hætt að vera hrædd við Mikka ref í Hálsaskógi og biður nú bara um meiji afi meiji músin gáta (vísar í vesalings Martein mús hræddan eftir ásókn rebba gamla og Iðunn heldur fram að hann sé að gráta). Iðunn er á fullu í "gera sjálf" skeiðinu svo allar athafnir á heimilinu taka nú helmingi lengri tíma en áður. Hún fær hrós í skólanum fyrir að vera duglegust að borða sjálf, og er með ákveðnar skoðanir á öllum hlutum. Yndislegust hún Iðunn okkar!

sunnudagur, 4. október 2009

Nýjasta nýtt frá ömmuprjóni...


Hún Fanney prjónaamma er voða dugleg þessa dagana...hér má sjá eitt það nýjasta - fallega peysu á eplamömmu sem eflaust á eftir að gagnast vel í vetrarkuldum Barnard Castle (utan- jafnt sem innanhúss!). Amman ber samt ekki ábyrgð á fáráðasvip mömmunnar á myndinni hér að ofan. Takk takk takk amma Fanney!

Haust


Hér skall fyrsta haustlægð ársins á með stæl í gær - hífandi rok og rigning þegar við vöknuðum, en stytti sem betur fer upp um eftirmiðdaginn. Við tókum okkur smá skurk í endurskipulagningu innan dyra fyrripartinn, en fórum svo á bændamarkaðs- og rólórölt með Iðunni í guðveithvemörgum vindstigum. Nautasteik og kartöflugratín í kvöldmatinn og svo horft á Menn sem hata konur.....mjööög vel lukkaður dagur.