miðvikudagur, 30. nóvember 2011

3 mánuðir!


Þessi litli spekingur er 3 mánaða í dag.  Í tilefni dagsins var hún stungin tvisvar í lærið og ældi yfir allan heilsugæslusófann.  Mældist 6.2kg og 61cm

þriðjudagur, 29. nóvember 2011

Borta bra men hemma bäst.


Það er ljúft að vera komin heim á Hagamelinn.  Stóra skvís skoppaði alsæl á Grænuborg í morgun og átti von um að snjóþoturnar yrðu teknar fram í útiverunni.  Litla skvís nýtur þess að hvíla sig í rólegheitunum heima eftir langan og strangan ferðadag.  Mamman kveikir á kertum og reynir að hnoða saman jólakortum.

mánudagur, 28. nóvember 2011

Stormasamar fréttir

Iðunn og Freyja litla að leik í afmælinu

Síðasti heili dagurinn okkar í Sverige rann upp ansi blautur og vindasamur.  Við héldum okkur innivið fram yfr hádegi en þá var haldið í eins árs afmæli hjá Freyju litlu.  Við komumst ekki öll í bílinn svo Una og amma Titti fóru með lest í þessu líka "dásemdarveðri".  Meðan við vorum í afmælinu stytti þó upp svo við ákváðum að láta þetta smá rok ekkert á okkur fá og lalla niður í bæ með stelpurnar að kíkja á jólaskreytingar og fá smá aðventustemmningu, og taka þaðan lestina heim

Una og Iðunn skoða jólaljósin

Allt var fallega skreytt í Malmö og allir nutu þess að skoða ljósin. Það var ansi hvasst en ekkert verra en í haustlægðunum heima. Þegar við komum á lestarstöðina var reyndar búið að aflýsa öllum lestarferðum til Gautaborgar, og eins var búið að loka brúnni til Kaupmannahafnar.  Við sáum svo í fréttunum þegar við komum í hús að þetta hafi verið versti stormur í 4 ár hér á Skáni - Fyrirsögn Sydsvenskan í dag er "Stormkaos".  Okkur þótti þetta bara hressandi! Gangan af Svedala lestarstöðinni heim til afa Viðars minnti þó eilítið á jóladagsgönguna 2007, en snjólaus og ekki eins miklar hviður, svo okkur þótti þetta lítið mál.

Ljósin í Malmö

sunnudagur, 27. nóvember 2011

Skemmtilegur dagur


Í gær, laugardag, fór Iðunn aftur til Kristu og þær léku sér saman úti allan eftirmiðdaginn á meðan mamma og pabbi  (og Gerður) gengu um bæinn og gerðu jólainnkaup.  Mömmu og pabba þótti reyndar nóg um mannmergðina, en náðum samt að ljúka ansi miklu.  Gerður eignaðist nýjan vin því þau Styrmir, litli bróðir Kristu, urðu miklir mátar. Á leiðinni heim misstum við  af lestinni, en það var allt í lagi því von var á annarra hálftíma síðar og við skoðuðum fólk og lestir á meðan við biðum.  Í dag sunnudag ætluðum við að hitta Höllu frænku en látum það bíða þangað til við komum næst því þakið hjá Höllu fór að leka í brjálæðisrigningu og hún neyðist til að hlaupa um og tæma fötur .  Þess í stað förum við í eins árs afmæli hjá Freyju litlu frænku.

föstudagur, 25. nóvember 2011

Pabbi kominn!!

Pabbi endurheimtur
Stelpurnar eru svo glaðar að fá pabba sinn, og sú eldri búin að vera á fleygiferð síðan hann kom við að leika við pabba og segja honum fréttir og sitja í fanginu á honum og sýna honum allt hérna heima hjá afa.  Hún sofnaði svo alveg útkeyrð tuttugu mínutum fyrir matinn og engin leið að vekja hana aftur.  Það er þreytandi að fá pabba sinn til sín.

Spennt!


Í dag kemur pabbi til okkar og Iðunn er orðin ansi spennt að sjá hann eftir rúma viku:
"Mamma veistu ég held ég finni pabbalykt úr flugvélinni og alveg hingað!"

Viðbót frá því síðar um daginn er við mæðgur fórum í göngutúr:
Lyktin af pabba hún er sko miklu miklu góðari en ef þér og Gerði, mamma! En lyktin af mér er miklu miklu miklu miklu miklu góðari en af ykkur öllum. Hún er lang best!"

fimmtudagur, 24. nóvember 2011

Góð lykt



Iðunni þykir lyktin góð af litlu systur - einu sinni sagði hún meira að segja að það væri piparkökulykt af kúkableyjunum....(mamman er ekki alveg eins viss um það).

miðvikudagur, 23. nóvember 2011

Hreinar stelpur

Í dag fór Gerður í baðkar í fyrsta sinn, og fyrsta sinn í fylgd stóru systur.  Stóra systir var mjög ábyrgðarfull. Dugleg stelpa hún Iðunn okkar.
Rendar ýtti amma á vitlausan takka nokkrum sekúndum eftir að þessi mynd var tekin og sendi þar með ískalt vatn úr öllum áttum á þær systur - þeim brá svakalega og allir orguðu....en jöfnuðu sig þó brátt svo ég held að það sé óþarfi að kalla til áfallahjálparteymi. Sem betur fer eru engir svona takkar í baðinu okkar heima svo það ætti að vera óhætt að endurtaka baðferðina þar.

Nýr nærbolur!


Ótrúlegt en satt þá keypti antibleika mamman þennan nærbol.  Hann gerði vægast sagt mikla lukku!

Enn meiri fréttir


Fyrstar ber að nefna þær merkisfréttir að Louise systir mín eignaðist dreng í gær eftir langa fæðingu sem endaði í keisaraskurði eftir marga klukkutíma með 10 í útvíkkun og hríðarstopp.  Allir ofsa glaðir eftir mikið stress.  Móður og barni heilsast vel.  Nú er verst að komast ekki til Stockhólms að sjá hann.
Enn merkilegra þótti Iðunni að fara í heimsókn til Kristu vinkonu sinnar af Grænuborg sem dvelur nú í Malmö meðan foreldrarnir svipast um eftir húsnæði í Gautaborg.  Það voru miklir fagnaðarfundir og þær léku sér á róló og við föndur heima í heila 6 tíma.  Mamman náði meira að segja að skreppa aðeins í bæinn að versla hversdagsföt á Iðunni og forskoða jólagjafir.  Iðunn fær svo vonandi að fara aftur í heimsókn áður en við förum heim - gaman gaman!


Mamman var eitthvað léleg að mynda í gær svo hér birtast myndir sem tengjast fréttunum ekki neitt.

mánudagur, 21. nóvember 2011

Miklar framfarir

Hér í Svíþjóð gerast undur og stórmerki á mánudagsmorgnum (Gerður er 11 vikna og 6 daga gömul):

Svona skildi ég við Gerði á meðan ég fór að klæða mig

....og svona kom ég að henni.

Fréttir úr þokulandi

Enn er allt rólegt í Sverige og þokunni ekkert farið að létta.  Gerður var böðuð í þvottahúsvaskinum á sunnudagskvöldið og þótti það heldur þröngt og hallærislegt og gargaði því allan tímann - því miður náðust ekki af því nokkrar myndir, enda mamman upptekin við að hafa stjórn á blautri stelpu.Annars hafa báðar stúlkur verið eins og hugur manns, yndislegar og duglegar eins og alltaf.
Fréttir berast frá Ísalandi að pabbinn hafi málað allt gestaherbergið og ganginn, en gangi heldur hægt með hitt.  Undirbúningsvinnan var víst tímafrek.  Við verðum þó fegin að geta tekið gestaherbergið í gagnið þegar við komum heim.  Einnig stendur víst til að flísaleggja því flísarnar okkar eiga loksins að vera komnar til landsins þegar við erum komin frá Svíþjóð.

Í gönguferð með vagnana - röltum fram í myrkur og fórum á tvo rólóa!
Á morgun, þriðjudag, fer Iðunn til Malmö að hitta vinkonu sína, hana Kristu af Grænuborg, og hlakkar mikið til!

sunnudagur, 20. nóvember 2011

Litla Lína og enn minni Lína


Litla Lína
Ennþá minni Lína
Það er eitthvað skrýtið við vatnið í Sverige.  Hárið vex og breytir um lit.  Allir að breytast í Línu Langsokk!

Crazy crazy!


Hér er svo sem ekki margt gert af viti, svo við höfum til dæmis dundað okkur við að taka hálf crazy myndir í speglinum inní afa og ömmu herbergi.  Þessi ofan er sú besta af okkur öllum þremur.  Iðunn vildi endilega fá mynd af bara sér í fanginu á mömmu.  Þegar ég skoðaði myndina kom hún mér kunnuglega fyrir sjónir....skrýtið hvernig maður getur tekið nánast sömu myndina tvisvar með margra ára millibili - meira að segja svipurinn á Iðunni er nákvæmlega eins.

laugardagur, 19. nóvember 2011

Systur í Svíaveldi


Nú eru systurnar komnar í heimsókn til afa Viðars, og Gerður í fyrsta sinn til útlanda.
Ferðin gekk ansi vel, Iðunn var dugleg að hjálpa mömmu og báðar stelpurnar voru mjög stilltar, fyrir utan þá litlu stund sem Gerður fékk í eyrun í lendingunni.  En það leið hjá fljótt og allir voru hressir þegar afi sótti okkur út á Kastrup.
Fyrsta daginn vorum við einar hér með afa, en í gærkvöldi komu svo Jóhann og amma Titti aftur heim eftir ferðir sínar (í sitt hvoru lagi) til Stockhólms - það var gaman að fá loks að hitta þau, og amma Titti var voða ánægð með þær báðar (eins og reyndar afi lika).
Hér í Svedala ganga dagarnir heldur rólega fyrir sig.  Við erum búnar að kanna matvöruverslunina, bókasafnið og rólóvöllinn, og það eru komnar inn einhverjar myndir á myndasíðu Gerðar. Við söknum pabba svoldið mikið, en vonum að hann nái að njóta þess að vera stelpulaus í nokkra daga - fær að forrita að vild, drekka bjór og gera aðra karlmannlega hluti.
Kær kveðja frá Sverige,
Iðunn, Gerður og ásynjumamman


miðvikudagur, 20. apríl 2011

Vinkonur



Í dag hittust loksins vinkonurnar Alice og Iðunn í fyrsta sinn síðan í fyrrasumar. Það var búið að tala mikið um að fara til Alice og heimsóknin sveik sko ekki - stelpurnar léku sér saman í yndislegu veðri á meðan mömmurnar unnu og pabbarnir sátu í garðinum og sötruðu bjór. Yndislega skemmtilegar saman, og Iðunn gleymdi alveg að vera feimin eins og sést á myndunum.




Eftir að hafa stríplast um allan eftirmiðdaginn, og prófað að kúka í grasið var haldið heim á leið....undir kvöldmat setti pabbi svo nýjan sand í sandkassann.
Fullkominn dagur fyrir litla stelpu!

þriðjudagur, 19. apríl 2011

Vordagar í yndislegu veðri í County Durham


Í garðinum hjá Donnu

Ferðin til Englands gekk vel, og allt samkvæmt áætlun, nema að foreldrarnir gleymdu að gera ráð fyrir áhuga erfingjans á að sjá leikföngin sín og þar af leiðandi var ekki sofnað fyrr en kl 00,30 og vaknað aftur kl 06.00 daginn eftir. Ansi framlágir foreldrar þann daginn.
Veðrið leikur við okkur, á meðan fólkið heima stríðir við snjó og slyddu á sumardekkjum hefur hér verið bongóblíða: 16C í gær, 19C í dag, spáð 22C á morgun, og góðu veðri fram á laugardag. Í gær tókum við því rólega, reyttum arfa, heimsóttum Donnu og Iðunn lék sér við stóru stelpurnar sem búa neðar í götunni. Í dag fórum við svo í afmæliskaffi hjá Ophélie, sem er doktorsnemi hjá eplamömmu og þaðan í strandferð til Saltburn. Bara yndislegt! Helgi ætlar varla að trúa því að veðrið geti verið svona gott hérna í Barnard Castle!


Afmæli Ophélie


Mokað á ströndinni í Saltburn


Íííískaldur sjórinn!

Öppdeit á síðustu dögunum í Svíþjóð




Síðustu dagarnir okkar í Svíþjóð voru yndislegir. Við tókum því rólega heima við og skruppum aðeins til Lundar og borðuðum ís. Eins skruppum við í Höganas og keyptum 3 nýja múminbolla í safnið. Hér eru nokkrar myndir.

fimmtudagur, 14. apríl 2011

ÓÞOLINMÓÐAR ÖMMUR ERU FARNAR AÐ KVARTA......SVO HÉR KEMUR NÝR PÓSTUR.

Vorveðrið hélst bæði sunnudag og mánudag. Á mánudaginn gerðum við heiðarlega tilraun til að fara á Picasso sýningu í Louisiana, en gleymdum að ekki er opið á mánudögum, svo enduðum á að fara í göngutúr um ströndina þar fyrir neðan í staðin og keyrðum svo til Köben og átum smurbrauð í Nyhavn og ís á Strikinu í hreint yndislegu veðri.



Á ströndinni

Pabbi og Iðunn heilsa hundi í Humlebæk

Á þriðjudag var úrhellisrigning, svo við lukum af verslunarferð i Lindex og keyptum fjólublá múmin náttföt á bæði stóru systur og litlu systur. Iðunn valdi svo eins skærbleika sokka á þær systurnar. Merkilegasti atburður dagsins var þó þegar Iðunn kastaði vatni (virtust vera margir lítrar!) inni á Polarn o Pyret og fyllti stígvélin sín sem er ansi slæmt þegar mikil rigning er úti og maður þarf á stígvélum að halda. Þessu var fljótbjargað. Mamma fann konu til að þurrka og skrapp svo á Hog M og verslaði nýjar nær- og sokkabuxur á stelpuna. Að lokum var farið á kaffihús með Jóhanni og borðaðir kanelsnúðar...ágætur rigningardagur. Mðvikudagurinn var líka kaldur og við héldum okkur i Svedala.



Mamma og Johan með dansatriði á kaffihúsinu



Áttum amk einn aðdáanda

Í dag (fimmtudag)fórum við svo að heimsækja Höllu stóru í Hvalsö. Þá var aftur komið vorveður svo við sátum úti allan eftirmiðdaginn og Iðunn hljóp um garðinn og sópaði stéttina. Alltaf gaman að skreppa til Höllu frænku.
Nóg í bili - toodiloo


sunnudagur, 10. apríl 2011

Vorið er komið til Svedala



Hérr er aldeilis vel tekið á móti okkur - vorið sjálf mætt í móttökunefnd. Hiti fór í 15 stig, sólin sken allan daginn. Við vorum úti frá morgni til kvölds. Litla daman fór úr skónum og hljóp um allt á tásunum, í fyrsta sinn á árinu. Ekki spillti fyrir að Emma og Erik komu að leika.
Yndislegur dagur!

PS Fleiri myndir á myndasíðunni



föstudagur, 8. apríl 2011

Litla systir og ferðalög



Hér er búin að vera ansi löng bloggpása, enda Iðunn og fjölskylda mest heima og hittum þar flest fólkið sem fylgdist með okkur hér í denn. Nú ætlum við hins vegar að leggja land undir fót og fara til Sverige og Englands, og þótti því rétt að endurvekja Iðunnarbloggið til að hægt væri að fylgjast með ferðum okkar. Við vonumst til að eldfjöllin haldi sig til friðs í þetta sinn, svo við komumst leiða okkar á áætlun.

Meðan á pásunni stóð voru þær fréttir helstar að við fluttum okkur úr Þingholtunum á Hagamelinn, og að von sé á litlu systur í ágústlok. Það fylgir því mikil spenna að verða stóra systir!