laugardagur, 13. desember 2008

Fjarvera


Hér verður líklega lítið bloggað næstu daga - ég fer til Spánar eldsnemma á sunnudagsmorgun, og kem ekki aftur fyrr en eftir hádegi á miðvikudag. Á meðan munu feðginin hafa það náðugt heima. Svo rétt næ ég að skipta um í töskunum áður en við förum heim til Íslands á fimmtudagsmorgninum. Ég verð að játa að það er einkennileg hugsun að fara í fyrsta sinn frá stelpunni sinni yfir nótt þó ég viti að hún verði í góðu yfirlæti hjá pabbanum sínum. Mér finnst þetta líka helst til löng fjarvera, svona í fyrsta sinn.
Bless í bili....

Bragi samafmælisfrændi!


Ekki má gleyma að minnast hér á merkisdrenginn hann Braga Strand Jóhannesson, sem deilir afmælisdegi litlu frænku sinnar, en er fjórum árum eldri. Bragi varð fimm ára á fimmtudaginn, og í dag stendur til heljarinnar fjör í Þúfubarði þegar 10 aðrir fimm ára snillingar koma að hylla afmælisbarnið.
Til hamingju með afmælið elsku Bragi okkar!

fimmtudagur, 11. desember 2008

Afmælisdagur


Litla pæjan átti yndislegan dag. Fyrst var farið með köku í leikskólann, og þar var búið að hengja upp borða sem á var áletrað "1 today - Happy Birthday!" Hún kom sæl heim eftir yndislegan dag með gyllta glimmerlímda kórónu og kökumylsnu í sokkunum. Svo tók ekki verra við. Donna kom í heimsókn með tvo pakka og eplaköku í farteskinu, og svo kíktu Barbar og dóttir hennar við með afmæliskort.


Iðunn fékk Brio göngukerru frá foreldrum sínum, bók frá Pat í mömmuvinnu, og timbur-rúllu-snák og bleikt (!) körfuveski frá Donnu. Allt rosalega vinsælt hjá afmælibarninu. Hún reisti sig strax upp við vagninn og gekk á eftir honum eins og hún hafi aldrei gert annað (í fyrsta sinn sem hún gengur á eftir einhverju), keyrði snákinn um allt, og tíndi alls konar dót upp í veskið. Mikið fjör. Þar sem mamman hafði bakað leikskólakökuna (var á fótum kl. 5.30 að búa til krem!) tók Helgi að sér að baka "heima" kökuna, og tókst honum ljómandi vel til. Nammi namm! Gaman núna, eins og við mamma segjum stundum!
Lasna mamman er samt alveg búin eftir daginn og er farin að sofa.

Iðunn eins árs

Í dag er akkúrat ár síðan við litum stelpuna okkar í fyrsta sinn. Iðunn, stuttungurinn okkar, sem var löngu búin að fá nafnið sitt, og sem hefur staðið svo vel undir þessu fína nafni síðasta árið. Stelpan okkar sem hefur auðgað líf okkar og annarra á ómælanlegan hátt, og sem er yndislegur gleðigjafi - alltaf glöð, alltaf kát. Hér má líta örfáar af minningunum um besta árið í lífi okkar Helga.

þriðjudagur, 9. desember 2008

Lítill listamaður


Hér ber að líta Iðunni Helgadóttur með fyrsta meistaraverkið, þ.e. fyrstu teikninguna sína sem hún kom með heim úr leikskólanum í dag, ansi roggin. Þetta er abstraktverk, tveir punktar og tvö strik, og verður eflaust selt dýrum dómum eftir 100 ár. Þangað til ætlar mamma að geyma það á góðum stað.
Það er samt týpískt fyrir pennaóðu dömuna okkar að hún vildi alls ekki tjá sig með vax- eða trélitum sem henni voru boðnir, en beið þess í stað þar til henni gafst færi á bírópenna sem einhver var að nota til að fylla út eyðublöð, greip hann fastataki og teiknaði þetta fína listaverk með honum.

Eplafjölskyldan


Eplafjölskyldan er sæl og glöð, jafnvel á krepputímum. Það er ekki verra að hafa Pollýönnueðli.

laugardagur, 6. desember 2008

Góður gestur


Í dag var aldeilis skemmtilegur dagur. Von var á Eszter frá Indlandi, sem hvatti okkur til að ganga frá öllum bókunum og öllu hinu draslinu svo eftir svoldið stressaðan morgun er orðið ansi fínt hjá okkur. Svo sóttum við Eszter og nutum dagsins með henni, sem var náttúrulega yndislegt, enda ansi langt síðan við sáum hana síðast. Eszter kom færandi hendi, með risaeðlu handa Iðunni sem gerði mikla lukku, og rúmteppi handa okkur sem tekur sig stórvel út inni í svefnherbergi. Um kvöldið skruppum við niður í bæ í leit að jólasöng sem þar átti að fara fram. Fundum reyndar aldrei neitt söngfólk, en þess í stað brjálaðan eldgleypi sem stóð ber að ofan við listir sínar þrátt fyrir kulda og trekk. Við vorum öll í lopapeysum og þótti alveg nógu kalt! Iðunn sofnaði í bakpokanum á leiðinni heim og reyndist engin leið að vekja hana í kvöldmatinn svo hún sefur nú alklædd inni í rúminu sínu - bara í innifötunum samt!
Skemmtilegur dagur og eflaust verður morgundagurinn enn betri.

fimmtudagur, 4. desember 2008

Þreytandi ferðadagur


Svona var umhorfs í Barnard Castle þegar við vöknuðum í morgun. Hvítt yfir öllu og um 10cm jafnfallinn snjór á götunum. Afskaplega fallegt, en ekki sniðugt þegar maður þarf að keyra 40 km á sveitavegum í vinnuna, ekki er búið að moka vegina, allir eru á sumardekkjum og Englendingar kunna engan vegin að aka í snjó. Þar sem ég varð að mæta í vinnu í dag ákváðum við að líklegast væri best að Helgi kæmi með okkur mæðgunum og að við mundum keyra til Darlington og taka lest þaðan, þannig sleppur maður við bröttustu brekkurnar og verstu sveitavegina. Við komumst hæglega til Darlington, tókum því bara rólega og lulluðumst þetta á svona 45km/klst. En þegar við vorum rétt að koma að Darlington lentum við í þvílíkri bílalest að eftir heilan klukkutíma í henni höfðum við ekki komist áfram nema um ca. 1km. Þá ákváðum við bara að leggja bílnum, ganga hálftíma leið á lestarstöðina og náðum þar lest, og komumst loks með barnið á leikskólann og þaðan í vinnuna eftir 3klst og 20 mín ferðalag. Úff! Iðunni fannst þetta samt bara voða gaman, enda er hún hrifin af lestum eins og pabbi sinn, og svaf af sér mest alla bílferðina. Ferðin heim gekk öllu betur, enda mestur snjórinn af götunum þá - vorum ekki nema 1 1/2 tíma á leiðinni.


Það var nú samt aldeilis þess virði að fara í vinnu því þar beið okkar pakki frá ömmu FK, með smá glaðningi handa afmælisstelpu næstu viku og aðrar gjafir sem fara eiga á heitari slóðir með helgargestinum okkar. Takk takk amma Fanney! Við pössuðum okkur líka að geyma frímerkin handa afa Gunna :-)
Hér að neðan er svo mynd til að sýna ömmunum nýju klippinguna hans Helga Péturs, svo þær geti dáðst að myndarleika (tengda)sonarins.


Að lokum er svo hér ein bjartsýnis auglýsing. Ef einhver býr svo vel að eiga bílstól sem hentað gæti dömu um 9,5kg og sem ekki er í notkun 18.des-18.jan erum við mjööög áhugasöm um að fá einn slíkan lánaðan. Iðunn er á þeim aldri að hún passar enn bæði í 0 og 1 flokks stóla.

miðvikudagur, 3. desember 2008


Stórfréttir frá Barnard Castle! Helgi fór í klippingu í fyrsta sinn síðan við fluttum til Englands! Þó ég sé kannski ekki alveg hlutlaus verð ég að segja að hann er ansi sætur svona nýklipptur. Í öðrum fréttum er það helst að önnur tönn Iðunnar í efri góm er komin í gegn. Hún ætlar aldeilis ekki að vera á eftir áætlun í tanntökunni þegar afmælisdagurinn gengur í garð.

þriðjudagur, 2. desember 2008

Komið gólf!!!


Loksins loksins komin gólf í bæði stofu og borðstofu...og þröskuldar, og listar, og hurðirnar aftur á hjarirnar - jibbíjei!! Sjáið þið bara hvað Iðunn er glöð á myndinni hér að ofan. Hún var að hjálpa mömmu sinni að sortera óhreina þvottinn á svefnherbergisgólfinu innan um bækur og borðstofustóla. Bráðum bráðum, um leið og við getum ryksugað og sett öll stærri húsgögnin á sinn stað verður kominn frábær skriðvöllur fyrir dömuna sem hefur þurft að sitja í stól eða fangi í allt of marga daga og vikur.
Annars er Iðunn búin að læra að gnísta tönnum......þó ekki séu komnar nema ein í efri góm og tvær í neðri. Foreldrarnir vona að hún aflæri það aftur sem allra fyrst!
-------------------------------------------------------------------------
PS. Hér gleymdist aðal saga dagsins af dóttur okkar. Iðunn svipast um í stofunni - sér hauskúpu (ekki óalgengt á þessu heimili). Aldrei þessu vant uppveðrast hún öll við þetta- bendir á kúpuna og endurtekur í sífellu - tsss tssss (kisa á Iðunnarmáli, og aldrei notað um neitt nema kisur). Mikið rétt,kúpan sú arna er hauskúpa af ketti. Snillingur þetta barn, og greinilega dóttir móður sinnar höfuðskeljasérfræðingsins.

mánudagur, 1. desember 2008

Hrakfarir á fullveldisdaginn


1.desember 2008. 90 ára afmæli fullveldis Íslands.

Loksins, loksins er gólflögninni að ljúka - Philip smiður ætlar að klára á morgun svo við getum komið heimilinu í samt lag áður en Eszter kemur til okkar um helgina.
Annars er ástandið ekki alveg nógu gott. Við fórum með köttinn til dýralæknis til að hlúa að sárum hans. Læknirinn fann gríðarstóran absess á lendinni svo kisa er ansi óánægð núna eftir sprautu í hnakkadrambið og komin með fáránlegan kraga sem hún rekur í allt. Að launum kúkaði hún í mitt rúmið okkar á meðan við vorum í Durham - blautum, ógeðslegum kúk. Að auki mótmæli hinn kötturinn útgöngubanni, sem gekk jafnt yfir báða kettina á heimilinu eftir doktorsvísitið, með að skíta á eldhúsgólfið, og Helgi steig svo ofan í herlegheitin. Á meðan við vorum að reyna að þrífa allan þennan ófögnuð sló Iðunn til og losaði sig við þarmainnihaldið sitt líka, reyndar í bleyjuna, svo það þurfti að þrífa hana, eitt skópar, eldhúsgólf, sængurföt, rúmdýnu, osfrv allt á sömu 5-10 mínútunum. Ég hef upplifað skemmtilegri kvöldstundir.
Ég er enn óökufær, en einkabílstjórarnir mínir tveir (lítill aftursætisbílstjóri og annar stærri sem nær niður á bensíngjöfina) komu mér í vinnuna, og öxlin er hægt og sígandi að skríða saman. Þrátt fyrir allar hrakfarir síðustu daga verður að segjast að við erum bara ansi kát og bjartsýn hér í Victoria Road, og erum farin að hlakka til að koma heim um jólin og hitta alla vini og kunningja.
Desemberkveðja úr snjónum í Barnard Castle.

sunnudagur, 30. nóvember 2008

Góð kaup


Í dag fórum við til Darlington og gerðum ansi góð kaup.
Versluðum jólagjafir handa ýmsum, aðallega smáum vinum og ættingjum. Keyptum ECCO skó á Iðunni (2 nr of stórir, en ætlaðir til nota heima á Íslandi, yfir ullarsokka, en þó aðallega í vor þegar hún verður vonandi farin að ganga) á útsölu á 10 pund, bók handa henni á 2,99 pund; afmæliskjól á afmælisstelpu (allir muna náttúrulega laaaaaaangmerkilegasta dag desembermánaðar - 11.des - afmæli Iðunnar og Braga frænda!); ferðatösku til að koma jólagjöfum heim á Frón; og kerti til að lýsa upp vetrarmyrkrið.


Einnig sóttum við lestarmiðana hennar Eszterar sem við setjum í póst til London á morgun svo hún geti komið í heimsókn um næstu helgi. Við hlökkum öll mikið til enda orðið ansi langt síðan hún fór til Indlands í febrúar.
Húsfrúin er enn ómöguleg í öxlinni og getur hvorki lift dóttur sinni né ekið bíl, og Helgi hefur orðið að taka á sig öll heimilisstörf og alla barnaumönnun. Hann er samt drengur góður og kvartar ekki þó þetta sé náttúrulega ansi mikil vinna. Verra er að heimilið er enn undirlagt bókum og húsgögnum og Helgi einn getur ekki flutt stærstu húsgögnin. Ég vona bara að allt verði komið í lag áður en Eszter kemur eftir tæpa viku.
Annars er svo sem gott hljóð í okkur eins og alltaf - það þýðir ekki að láta svona smámuni á sig fá!

Myndirnar með póstinum eru honum algjörlega ótengdar, bara myndir af Sunnudagsmorgni í Victoria Road...nema myndin af mér og Iðunni að lesa nýju bókina...

laugardagur, 29. nóvember 2008

Lammet og skrammet


Við fórum í yndislegan göngutúr í dag til Egglestone Abbey, sem sumir muna kannski eftir að hafa heimsótt þegar við giftum okkur. Dagurinn í dag var yndisfagur. Kalt og frost yfir öllu, en algjört logn og því unaðslegt að komast út í góða göngu. Við gengum meðfram ánni, heimsóttum hesta og skoðuðum endurnar, sérstaklega eina sem var búin að koma sér makindalega fyrir á miðri göngubrúnni yfir ánna Tees. Leiðin tilbaka gekk ekki eins vel. Í fyrsta lagi var Iðunn orðin lúin og farin að vola, svo við tókum hana úr bakpokanum og héldum á henni til skiptis í fanginu. Svo fór ekki betur en svo að ég rann í hálku og beint á rassinn í einni brekkunni (var samt að halda mér í handriðið mamma ef þú lest þetta!), með Iðunni í fanginu. Iðunn kom ekkert harkalega niður enda verndaði mamman hennar hana eins og móðureðlið segir til um, en henni brá ansi mikið og fékk hálfgert hysteríiskast. Verr fór fyrir mömmunni sem gat ekki borið fyrir sig hendurnar vegna barnsins og hélt svo fast í handriðið að tognaði á öllum axlarliðböndum í fallinu og handleggurinn því lítils nýtur sem stendur. Að auki er ég líklega með ansi ljota marbletti á rassinum og kom hnykkur á bakið sem gerir mig enn meira farlama. En Pollýannan í mér segir að þetta hefði allt getað farið verr, allir óbrotnir, göngutúrinn bara fínn þrátt fyrir þetta og gott að hafa fengið að njóta útiverunnar. Hitt er verra að enn er eftir að koma húsgögnunum á sinn stað - kannski við verðum að kalla út Daníel til hjálpar?
Fleiri eru illa leiknir í 11 Victoria Road - Tala kisa hefur lent í slag og er með ljótt sár á lendinni sem mér sýnist vera að koma sýking í. Líklegt að hún verði því að fara í sprautu á næstu dögum.
Þar með er lokið hrakfarafréttum úr Victoria Road.

föstudagur, 28. nóvember 2008

Durhamdagur


Föstudagur og familían fór að venju öll saman til Durham.
Helgi ætti nú eiginlega að fá hraustleikaverðlaun fyrir að hafa leikið knattspyrnu í dag í nístingskulda og myrkri - vinir hans heima á Íslandi eru eflaust löngu búnir að skipta yfir í innibolta. Samkvæmt eigin frásögn var hann langbestur og skoraði langflest mörk!
Annars fór dagurinn okkar í Durham mest megnis í að setja upp og prófa ný tæki á labbanum mínum. Iðunn aðstoðaði. Allt komst í lag að lokum og labbinn er að fara að taka á sig endanlega mynd. Í öðrum fréttum er það helst að þegar við komum heim í kvöld var loks búið að klára gólflögnina í stofunni, svo við getum flutt aftur inní hana á morgun. Vonandi er ekki langt í að borðstofan verði tilbúin líka.
Góða nótt, og gleðilega helgi!

miðvikudagur, 26. nóvember 2008

Stuttfréttir


Hér er enn ekki komið gólf en lítur út fyrir að verkefninu ljúki á föstudag. Þá er bara eftir að setja allt aftur á sinn stað. Úff!
Nýjustu fréttir eru að þriðja tönn Iðunnar er loks að koma. Hægri framtönn í efri góm. Mamman er samt svo vonlaus mamma að hún tók ekki eftir því fyrr en tönnin var komin í gegn og vel það.
Myndin að ofan sýnir það sem Iðunn hefur lengi vitað: ungar stúlkur eiga aldrei of margar duddur!

mánudagur, 24. nóvember 2008

Hamagangur á Hóli

Lengi getur vont versnað, og nú er ástand heimilisins orðið slíkt að hér er varla líft. Eldhúsið er fullt af kommóðum, kistum hægindastól og skrifborði svo ekki er hægt að elda.


Flestir stólar eru inni á baði og Iðunn borðaði bæði hádegis- og kvöldmat við baðkerið, ansi sposk!


Bækur eru í stöflum um öll gólf, upp allan stigann, uppá borðum, undir borðum og svo framvegis, og við gerum ekki annað en elta Iðunni og forða verðmætum bókum. Lausn vandans var samt auðfundinn, hún fékk að hafa einu bókina sem aldrei er lesin og engum er annt um: Nýja Testamenti Gídeonfélagsins, og las hana af miklum ákafa - einkennilegt samt að þrátt fyrir næfurþunnan pappír hvorki beyglaði hún né reif eina einustu síðu. Kannski við séum að vanmeta þessa bók....



Helgi hefur orðið að vinna á stól úti í horni, en hann er þó svo heppinn að lítil aðstoðarkona hjálpar honum að halda við tölvuna á meðan.
Góðu fréttirnar eru þó þær að nú verður þetta líklegast klárað á morgun, og þá getum við byrjað að raða öllu aftur, og hver veit nema maður hendi ekki einhverju líka, svo heimilið verði snyrtilegra, smartara og örlítið mínimaliskara en það var fyrir viku.

sunnudagur, 23. nóvember 2008

Sunnudagur til sælu



McMaggi og Cristina eru búin að vera hjá okkur yfir helgina og búið að vera svo gaman að fá þau. Í gærkvöldi tóku þau því rólega með Helga og Iðunni á meðan ég söng á tónleikum, og svo skröfuðum við öll langt fram eftir kvöldi. Í dag tókum við svo daginn seint, fórum ekki út fyrr en um hádegi, eftir rólegan morgunmat og 2 könnur af kaffi. Röltum svo um bæinn okkar og sýndum þeim allt það markverðasta, Bowes Museum, miðbæinn, rólóinn, hænurnar og hestana, og enduðum loks á Old Well, áður en við fórum heim og bökuðum eplaköku. Yndislegur dagur. Nú tekur samt erfiðið við, því við Helgi verðum að tæma borðstofuna áður en gólfgaurarnir mæta í fyrramálið.

laugardagur, 22. nóvember 2008

Laugardagsamstur


Stutt blogg í þetta sinn þar sem ég er svo voða bissí. Það er búið að leggja stofugólfið en borðstofan er enn eftir. Hins vegar er ekki enn hægt að ganga frá húsgögnunum eða taka myndir af kláruðu verki, þar sem eftir er að setja lista meðfram köntunum...smá misskilningur milli mín og smiðsins um hver mundi kaupa listana. Þetta varð allt til þess að við urðum að koma bráðabirgðastofu í gagnið og tæma dót úr gestaherbeginu í dag fyrir komu McMagga og Cristínar. Við þeyttumst þvi um allt sem hvítir stormsveiðit í dag. Verst er að það náðist ekki mynd af mér að þurrka af með Iðunni í bakpoka á bakinu. Ég fór á kóræfingu milli tvö og fimm, og á meðan verslaði Helgi í matinn og ryksaug. Nú er maturinn kominn í ofninn, von á gestum hvað á hverju, og klukkutími þar til ég þarf að fara út aftur að syngja á tónleikum.
Rólegri dagur á morgun, sem betur fer!

fimmtudagur, 20. nóvember 2008

Hálfnað er verk þá hafið er.


Loksins loksins loksins er byrjað að leggja gólf í stofunni! Þeir sem ekki hafa komið hingað vita etv ekki hvað þetta er stórt skref. Þegar ég flutti í húsið fyrir 9 árum síðan hafði það verið í útleigu síðan 1975 og var í raun óíbúðarhæft. Fyrsta veturinn fór hitinn aldrei upp fyrir 13 stig innan dyra og ég sat öll kvöld í einu herbergi, undir sæng, í úlpu. Síðan þá er búið að skipta um alla glugga, miðstöð, baðherbergi og útidyrahurð, einangra loftið, mála öll herbergi, físaleggja eldhús, skipta um rafmagn, setja nýtt þak og rennur osfrv. Allt eftir því sem peningar söfnuðust í viðgerðasjóðinn. Eitt það fyrsta sem ég gerði eftir að ég flutti inn var að rífa upp öll illalyktandi pöbbateppi (lesist græn með bleikum rósum og óskilgreindum blettum...blearghh!!), og síðan þá hafa verið hér ber gólf, of léleg til að pússa upp, þakin málningarslettum og öðrum blettum, og vindurinn gnauðandi upp um fúgurnar. Ég sá alltaf fyrir mér nýju gólfin í hyllingum, en einhvernvegin þurfti alltaf að nýta þá peninga sem til voru í meira aðkallandi verkefni. En nú loks er kominn tími nýju gólfanna. Philip og Melvin mættu í morgun og lögðu hálft stofugólfið og ætla að klára á morgun. Á mánudag koma þeir svo aftur og taka borðstofuna. Jibbííjeiiiiii!!!! Hingað til gengur allt vel, eins og sjá má að ofan. Myndin að neðan sýnir hins vegar hvernig borðstofan lítur út þessa stundina - minnir svoldið á sambland af fornsölu og Little Shop of Horrors!


Iðunn tekur þessu öllu með stakri ró, og lætur sig hafa það þó hún þurfi að borða kvöldmatinn umkringd beinagrindum og bókastöflum.
Við viljum þakka kærlega fyrir kommentin við síðustu færslu, það er svo gaman að sjá hverjir kíkja hingað, jafnvel stutt komment eru skemmtileg! Stundum finnst mér eins og ég sé bara að blaðra eitthvað útí tómið, og það er traustvekjandi að sjá að einhverjir séu að lesa þetta blaður.
Góða nótt!

miðvikudagur, 19. nóvember 2008

Kvitteríkvitt


Þetta er eitthundraðogfimmtugasti pósturinn á Iðunnarblogginu, og viljum við nota hann til að hvetja alla sem hingað koma til að kommenta og láta vita af sér, þó ekki væri nema í þetta eina sinn. Mér sýnist á teljaranum að hingað komi múgur og margmenni, en samt er það svo að oft líða margar margar færslur þar sem enginn kvittar nema ömmurnar. Þær eiga nú samt heiður skilið fyrir samviskusemi!
Annars er það helst að frétta að við Helgi erum búin að tæma stofuna fyrir gólflögnina á morgunog hlökkum mikið til að búa í húsi með almennilegum gólfum! Hvort við náum að koma öllu á sinn stað áður en Maggi og Cristina koma á laugardag er önnur saga.
Við erum öll farin að hlakka til að koma heim eftir tæpan mánuð. Getum ekki beðið eftir að hitta vini og kunningja og ekki spillir jólahátíðin fyrir, jafnvel á krepputímum. Það er spáð snjókomu hér um helgina svo vonandi kemur það okkur í rétta Íslandsgírinn.
Góða nótt - komum aftur með framkvæmdafréttir á morgun!

þriðjudagur, 18. nóvember 2008

Gulrótarakurinn hennar ömmu Gee


Amma Gee er mikill gulrótabóndi og er endalaust að sá (Akursels)gulrótum í tilhlökkunarakurinn sinn. Nú getum við sáð í nýja spildu fyrir hana og aðra sem vilja hitta okkur því búið er að panta farið heim til Íslands í jólafrí. Við komum 18.des, og förum aftur 18. janúar svo þetta verður löng og skemmtileg dvöl á Íslandinu okkar. Verst er að ég er víst búin að lofa mér í sjósund með Örvari bróður....í desember/janúar...brrrrrrrrrrrrrrr!
A bientôt!

Vídjó

Ömmurnar voru að biðja um vídjó, og hér kemur það. Reyndar, eins og oft vill verða, lék daman ekki alveg listir sínar samkvæmt pöntun, en það er gaman að því samt, a.m.k. fyrir eitilharða Iðunnaraðdáendur. Við biðjum um að ekki sé hlustað allt of mikið á söng húsmóðurinnar sem er etv ekki upp á sitt besta!

mánudagur, 17. nóvember 2008

Den der venter på noget godt, venter aldrig for længe


Fyrir um það bil tveimur mánuðum pöntuðum við burðarpoka fyrir Iðunni, svo við gætum nú komist í góða haustgöngutúra um sveitina. Ekki fór nú betur en svo að pokinn var uppseldur, og 6 vikum seinna var pöntunin endurgreidd þar sem ekkert gekk að fá vöruna frá framleiðanda. Við gáfumst samt ekki upp, og pöntuðum sama poka annars staðar frá, og loksins, loksins er hann kominn. Þetta er engin slorgræja - þægileg fyrir burðarkláfa jafnt sem reiðmanninn, og fínustu þýsku gæði á þessu öllu saman. Við Iðunn skruppum aðeins út að prófa pokann góða eftir vinnu, en hann reyndist þá næstum því of þægilegur, því ég var varla komin lengra en út á horn þá var daman sofnuð á baki, svo gangan varð ekki löng í þetta sinn. Til stendur að prófa græjuna frekar um helgina.

sunnudagur, 16. nóvember 2008

Sælar dömur - vansæll Helgi


Í dag var yndislegt haustveður svo við tókum nokkrar myndir af vestinu hennar mömmu til að amma geti skellt þeim á handavinnusíðuna sína. Svo fórum við á enn einn rólóinn og róluðum hátt hátt upp í loft - megastuð!! Við Iðunn skruppum til Donnu í smá heimsókn á meðan pabbinn fór heim að leggja sig, því hann er nú kominn með 12 tíma magapestina sem við Iðunn fengum í síðustu viku - vonandi fer þessari veikindaþrautagöngu brátt að ljúka, við erum orðin ansi leið á henni!
Iðunn er voðalega ánægð með skóna sína og er alltaf að dást að þeim. Henni finnst samt ennþá svoldið erfitt að standa upp í þeim, líklegast vegna þess að þeir eru ansi mikið of stórir, en það hlýtur að venjast. Þegar hún er einu sinni staðin á fætur gengur henni þó voða vel að standa og ganga með hlutum, nema þegar hún gleymir sér við að dást að fótunum á sjálfri sér!
Rólegheitahelgi næstum búin og nú tekur við mikil verkefnavika - tæma þarf herbergi og flytja húsgögn fyrir gólflögnina í vikulokin.
Toodiloo!

laugardagur, 15. nóvember 2008

Nú er Iðunn á nýju skónum.......


Merkisdagur í dag. Iðunn fékk sína fyrstu skó! Okkur reyndist reyndar erfitt að finna skó sem uppfylltu kröfur foreldranna - sem sagt mjúkir, fallegir í sniðinu, vel saumaðir, og fótlaga (ekkert mál enda barnaskóbúðir mjög góðar í UK), ekki of strákalegir og ALLS EKKI bleikir. Það var síðasta atriðið sem reyndist okkur erfiðast. Hér er bókstaflega ekkert til á stelpur, hvorki skófatnaður né annar klæðnaður, sem ekki er bleikt. Eins er mjög erfitt að finna skó á dömur sem nota nr 17. En þetta hafðist allt að lokum, þó við höfum endað með þá aðeins við vöxt (nr 18). Þessi kaup boða upphaf ævilangra fjárútláta ef hún sver sig í móðurættina (eða amk ömmu Gee). Daman er voða ánægð með skóna, og vingsaði fótunum hátt hátt upp í loft í kerruferðinni milli búða eftir að skórnir voru komnir á fæturna - augljóslega miklu meira stuð að sveifla fótunum með svona fína skó, og eins varð alltaf að virða fyrir sér herlegheitin í hverri sveiflu.

föstudagur, 14. nóvember 2008

Föstudagsromsa


Ég er að hugsa um að hætta að segja af okkur heilsufarsfréttir því þær eru svo niðurdrepandi...skulum bara láta okkur nægja að segja að ég varð að vera heima í dag vegna þess að ég var of lasin til að fara til vinnu, og þarf nú ansi mikið til til að ég játi mig sigraða.
Iðunn pæja er aftur á móti eitilhress. Starfsfólkið á leikskólanum var að segja okkur hvað hún er alltaf góð og meðfærileg, og segja að þó hún sé svona lítil ennþá er hún eitt af best aðlöguðu börnunum á skólanum öllum. Reyndar er gott að vera svona medfærileg, því að launum fær Iðunn oft að fara með í útréttingar, t.d. með stóru krökkunum á bókasafnið, eða sækja skólakrakkana í eftirskólaklúbbinn og annað sem henni þykir skemmtilegt. Hún fær líka mikla athygli frá starfsfólki og krökkum sem finnst gaman að vera með henni. Annar vinsæll fjölskyldumeðlimur er Helgi, sem fær mikið hrós fyrir vinnuna sína í Hull, enda er að renna upp fyrir þeim það sem amma Fanney hefur alltaf haldið fram, að hann er mikill snillingur!
Nú standa til stórframkvæmdir í næstu viku - Philip smiður ætlar að koma og leggja gólfin í stofu og borðstofu á fimmtudag og föstudag, og til að það sé hægt verður að færa öll húsgögnin, og mörg þúsund bækur. En kannski verður það til þess að maður losi sig við eitthvað óþarfa dót. Allt verður svo að vera tilbúið eftir hádegi á laugardag því þá koma Maggi vinur hans Helga og Kristina konan hans í helgarheimsókn frá Glasgow - það verður gaman að hitta þau aftur!

miðvikudagur, 12. nóvember 2008

Hulda Sóley þriggja ára!!!!!!


Í dag á Hulda Sóley frænka Iðunnar og nýorðin stóra systir þriggja ára afmæli. Hulda er dugleg að hugsa um lítil börn (þó þau hagi sér ekki kannski alltaf eins og hún vildi helst!), og óskum við henni því til hamingju bæði með daginn og litla bróður. Við vitum að hún á eftir að spjara sig vel sem stóra systir og fyrirmynd....ef hann bara getur vanist á að vilja bæði teppi og kodda ;-) Til hamingju með afmælið, elsku Hulda Sóley!

þriðjudagur, 11. nóvember 2008


Helgi endurheimti loks 5. útliminn í dag. Eftir að hafa verið tölvulaus síðan hann fór frá Marel, leyfði fjárhagurinn loks kaup á vinnutölvu fyrir heimilisföðurinn, og hann er heill á ný. Gripurinn heitir HP6930p og er alls ekkert ómyndarlegur. Hér hafa farið fram forritainnsetningar og aðrir gjörningar í allan dag, og nú er sælubros að færast yfir andlit Helga eftir því sem hann finnur sig betur og betur í veröldinni, sem er öll önnur og betri eftir tölvukaupin.

Iðunn átti líka góðan dag á leikskólanum. Eftir veikindi síðustu viku sagði Hayley mér að Iðunn hefði verið algjörlega fullkomin í dag (just perfect!). Fannst mér sætast hvernig hún hefur víst verið að ferja leikföng í litla dömu sem einungis er 5 mánaða og getur enn ekki setið eða náð í sitt eigið dót - alltaf þegar hún var aðgerðarlaus kom Iðunn og rétti henni eitthvað nýtt til að leika við. Æ, þetta er yndisleg stúlka sem við eigum og við erum svo stolt af henni!

mánudagur, 10. nóvember 2008

Iðunn stóra frænka!


Í heila ellefu mánuði hefur Iðunn verið minnsta barnið í fjölskyldunni, og okkur finnst hún ennþá svoldið peð, þó hún sér náttúrulega ansi kná og dugleg stelpa. Hins vegar hefur henni nú verið steypt af stallinum því í dag fæddist lítill drengur Kristbjarnarson, frændi Iðunnar, og Iðunn því ekki lengur minnsta barnið, heldur stóra frænkan! Við óskum Bjössa, Gunnu og Huldu Sóleyju til hamingju með strákinn sinn og hlökkum mikið til að sjá hann um jólin.
Ömmurnar voru víst orðnar leiðar á rólumyndum og því höfum við breytt um leiktæki á Iðunnarmynd dagsins, sem sýnir heimasætuna í einhvers konar nethring. Við fórum á stúfana í dag og leituðum uppi nýjan róló sem við höfum aldrei komið á, og eru nokkrar myndir þaðan á myndasíðunni líka. Annars var hráslagalegt, hvasst og nístandi kalt í dag svo við vorum ekkert sérstaklega lengi úti. Það er eins gott að búið er að kaupa vetrarflíkur á barnið!

sunnudagur, 9. nóvember 2008

Enn meiri afslöppun


Í dag hefur verið suddarigning í eiginlega allan dag, kuldi, vindur og hráslagalegt veður. Því var aldrei þessu vant ekki farið á einn einasta róló. Hins vegar borðuðum við matarmikla kjötsúpuafganga í hádeginu, kíktum svo við hjá Donnu og drukkum kaffi með henni, og svo bökuðum við eplaköku (með eplum úr garði Donnu) þegar heim var komið og borðuðum hana volga eftir hádegi. Nú sitjum við hér við kertaljós, með kökuilm í húsinu, gölluð í lopapeysur og lopavesti og njótum haustsins. Það getur bara verið ansi kósí að taka haustið með trompi af og til.

laugardagur, 8. nóvember 2008

Rólegheit


Það er yndislegt að geta átt rólegann dag. Kósíheit í náttfötum fram undir hádegi, rölt svo út í gönguferð um safngarðinn við Bowes Museum, kaffisopi á Costa, (róló!,) og svo íslensk kjötsúpa í kvöldmatinn. Iðunn sofnuð sæl og glöð, foreldrarnir afslappaðir með smá rauðvín, og efni til í eplaköku á morgun. Unaðslegt líf!

Stuð!


Svona er gaman að skoða sjálfa sig á skjánum! Iðunn og mamma í vefmyndavélinni.