sunnudagur, 28. júní 2009

Sumar i Svedala


Her i Svedala er sol og sumar og spad yndislegu vedri allan timann sem vid verdum her. Ferdalagid hingad gekk vel, en veslings Idunn nadi ser i einhverja magapest sem er buin ad gera okkur lifid leitt sidustu daga. Vid vonum bara ad hun se ad verda buin thvi mamman er ordin svoldid leid a ad skura og thvo thvott.




Annars er litla stelpan svo sem bara anaegd, og let sig ekki vanta i brudkaup gaerdagsins, tho hun hafi gubbad i bilnum a leidinni i kirkjuna (mamma var snör med poka og handklaedi, svo hvorki sulladist i sparifötin ne nyja bilinn hans afa Vidars). Brudkaupid var yndislegt: athofnin falleg, veislan skemmtileg og maturinn godur, og vedrid eins og thad gerist best a skandinavisku saelusumri.
Yndislegt!

miðvikudagur, 24. júní 2009

On the road again....


Eftir nokkra heimakæra mánuði er kominn tími til að leggja land undir fót á ný. Í fyrramálið förum við með flugi til Köben, og þaðan lest til afa Viðars og ömmu Titti í Svíþjóð. Tilefnið er ekkert slor: Louise systir eplamömmu og Henrik eru að fara að gifta sig á laugardaginn og okkur öllum boðið til veislu! Gaman gaman! Við mæðgurnar erum báðar búnar að splæsa í nýja partíkjóla og pabbinn gróf fram sumarskyrtuna sem við keyptum handa honum í fyrra en er nánast ónotuð vegna leiðindaveðurs í allt fyrra sumar. Spáin fyrir laugardaginn er góð - sól og 22C, það er annað en á brúðkaupsdaginn okkar! Við stefnum á að blogga eitthvað þessa 10 daga sem við erum í Sverige, og skella líka inn myndum af og til svo allir geti fylgst með.
Ta ra for now!

mánudagur, 22. júní 2009

Ekki að standa mig...


Þetta gengur ekki lengur - bloggletin alveg að drepa mömmuna og enginn til að hlaupa undir bagga með henni! En maður má ekki valda ömmunum (og öðrum Iðunnaráhangendum) vonbrigðum í heila viku, svo það er kominn tími á nýtt blogg.


Hér er sumarveðrið loks komið aftur - reyndar skýjað og lítil sól, en þó 22C og hægt að vera sokkabuxnalaus og í sumarpilsum. Iðunn á nýtt doppu-sumarpils sem kostaði heil 6 pund og hún er svo hrifin af að hún hrópaði upp yfir sig um leið og hún var komið í það - Vááááá mamma vááááá! Við mæðgurnar römbuðum niðrí bæ eftir vinnu í dag og lékum okkur á túninu niðri við ánna. Það var svo yndislegt eftir alla prófvinnuna að eyða nokkrum tímum ein með Iðunninni minni, skemmtilegu stelpunni sem ég hef þurft að vera frá alltof alltof mikið vegna vinnu. Hún er að ganga í gegnum svo miklar breytingar - hætt að vera smábarn og orðin lítil stelpa sem getur tjáð sig og er svo afskaplega spennt fyrir öllum sköpuðum hlutum, en þó sérstaklega grísum og bókum. Bókaáhuginn er reyndar alveg að drepa okkur foreldrana, því barnið á ekki nema svona 20 bækur, og þar sem lesnar eru svona 50 bækur á dag erum við orðin ansi leið á því sem til er...en auðvitað gaman að hún skuli hafa svona mikinn bókaáhuga - hann afi Bragi hefði verið ánægður með hana!
Nóg í bili - túdílú!
PS Að neðan má sjá stolta pabbann með feðradagskortið sem Iðunn föndraði í leikskólanum - engin kort eru jafn flott og Iðunnarkort!

miðvikudagur, 17. júní 2009

Þjóðhátíðarkveðjur úr Victoria Road!

Fjölskyldan í Victoria Road óskar öllum vinum og vandamönnum nær og fjær gleðilegrar þjóðhátíðar! Hvorki vinnufrí, skrúðganga né lúðrablástur í Barnard Castle, en aftur á móti ekta 17.júní veður - rok og rigning, svo við komumst í rétta gírinn!
Knús heim til Íslands!


þriðjudagur, 16. júní 2009

Fín dama


Iðunn er farin að hafa mikinn áhuga á að klæða sig sjálf, og eins og allar fataskvísur hefur hún sinn eigin stíl. Skór eru vinsælir, sérstaklega skór foreldranna, og húfur og yfirhafnir eru enn betri. Þessi fína daman mætti mér þegar ég kom heim úr vinnunni í gær - með ullarhúfu og veski og svakalega ánægð með sig!

sunnudagur, 14. júní 2009

Helgarblogg



Það rættist nú heldur betur úr helginni hérna í Barnard Castle. Spáð hafði verið rigningu alla helgina, en svo rann upp fagur laugardagur, sólríkur og fínn, svo við nýttum tækifærið og fórum í smá bíltúr uppí sveit. Ferðinni var heitið til Blanchland, sem er lítið þorp í um 40km fjarlægð frá Barnard Castle. Þar er lítil umferð, skemmtilegur róluvöllur, og pöbb með stórum garði þar sem litlar stelpur geta hlaupið um á meðan pabbi sötrar bjór og mamma appelsínusafa. Iðunn fékk ís úr vél í fyrsta sinn og líkaði MJÖÖÖG vel!

Á leiðinni heim kíktum við við hjá Daníel vini okkar, og vörðum svo síðasta vökutíma Iðunnar í garðinum í Victoria Road sem nú er orðinn svo fínn.
Dagurinn í dag var ekki síðri. Fréttir bárust af úrhellisrigningu allt í kringum okkur, allt á floti í Durham, og Sunderland og jafnvel Staindrop sem er bara í 5km fjarlægð, en rigningin kom aldrei til Barnard Castle. Núna, rétt fyrir kl. 20 er enn sól og rúmlega 20C. Yndislegt. Við erum búin að vera mikið úti við og Iðunn var orðin ansi lúin, en náði nú samt að stinga af útí garð berfætt í náttfötunum eftir kvöldbaðið - hún er frá á fæti þó leggirnir séu stuttir!


Annars er það helst í fréttum að við höfum keypt miða til Svíþjóðar í brúðkaup Louise og Henrik, og förum við þangað 25.júni - gaman gaman!

föstudagur, 12. júní 2009

Afi Gunni sextugur!


Í dag á hann afi Gunni sextugsafmæli og eins og sjá má á myndinni hér að ofan hefur hann lítið breyst á síðustu 30 árum (Einar Jón er hins vegar aðeins meira breyttur)! Óskum við honum innilega til hamingju með daginn og vonum að hann njóti hans vel. Það er synd að við skulum ekki vera heima til að syngja fyrir hann, en sem betur fer er ekki langt í okkur núna!
Til hamingju með afmælið elsku afi Gunni!!! Iðunn afastelpa sendir þér kossa og knús!

miðvikudagur, 10. júní 2009

Alltaf jafn gaman í baði!

Afsakið hlé....


Heil vika síðan bloggað var síðast enda húsmóðirin búin að fara yfir hundruðir prófa síðustu daga. Þá var nú gott að hafa ömmu Gobbu hér til að létta undir og skemmta Iðunni og foreldrunum. Aldrei þessu vant var lítið farið í búðir enda gengi krónunnar ekki beint björgulegt, en þess í stað farið á marga rólóa og kaffihús. Við vorum líka svo heppin að veðrið lék við okkur fyrstu 5 dagana sem bætti upp rigninguna næstu fimm!

Iðunn og eplafamilían voru leið að skilja við ömmu á lestarstöðinni - Iðunn starði furðu lostin á lestina sem hrifsaði ömmu á brott og veifaði á eftir henni - ekki alveg að skilja af hverju amma var étin af þessum járndreka!
Annars erum við að fara að undirbúa Svíaríkisferð í brúðkaup Louise og Henrik 27.júní, og svo er planið að fara heim til Íslands aðra vikuna í júlí - gaman gaman!!

miðvikudagur, 3. júní 2009

Donnuboð


Síðasta hitabylgjukvöldið skruppum við í garðboð hjá Donnu. Við sátum úti með osta, salat, hvítvín, brauð og ný ensk jarðarber, og Iðunn lék á alls oddi þó komið væri fram á kvöld. Hún fór með fína Siver Crossinn svo hún gæti sofnað á leiðinni heim, og sat eins og drottning á leið sinni í gegnum bæinn, með dúkku uppá arminn, og fínu sængina og sængurverið frá ömmu FK yfir sér, alveg í stíl við vagninn.
Yndislegt kvöld!