
Vasar eru sjaldgæfir á Iðunnarfötum og þar af leiðandi afar spennandi. Í vösum má geyma fjársjóði, eins og lopapeysuló, snuð og kreditkortið sem maður stal af pabba....eins má ganga um með hendur í vösum, eins og karlarnir á bryggjunni eða unglingarnir á Hallærisplaninu. Og ekki er verra ef maður má vera í stígvélum við vasakjólinn.
2 ummæli:
Bara sæt og ansi grallaraleg, stelpan mín.
Amma G
Greinilega svolítill grallaraspói, eftir svipnum að dæma.
Nöfnu hennar þykja vasar bráðnauðsynlegir, einmitt til þess að geyma ýmsa fjársjóði. Var þess vegna alsæl þegar hún fékk náttkjól með vösum. Foreldrunum var ekki eins skemmt þegar hún kom í kjólnum upp í þeirra rúm, með vasana fulla af könglum....
Skrifa ummæli