Hér er komið vor - í bili a.m.k. og við höfum nýtt tímann vel, og farið á róló með góðu fólki. Komnar eru inn myndir á myndasíðuna. Annars vegar myndir frá síðustu helgi þegar við skruppum á Tjarnarborgarróló með Tómasi, Ásdísi Maríu, Siggu og Ásu; hins vegar frá gærdeginum þegar við skruppum á Freyjugöturóló með ömmu Fanneyju, Huldu og Hafsteini. Mikið stuð í bæði skiptin!
8 ummæli:
Gaman að sjá að ALLIR eru í lopapeysum. Og þetta líka fínum lopapeysum líka.
Líka gaman að sjá myndir af Freyjugöturóló. Það minnir mig á þegar ég fór með Kamillu þangað þegar við bjuggum á Bragagötunni.
Já, það er svo gaman að sjá hve mikil uppvakning hefur orðið í prjónamálum á Íslandi síðustu ár. Mamma hans Helga er líka svo dugleg að sjá afkomendum og tengdafólki fyrir lopapeysum, og nú er hún byrjuð á sokkum og vettlingum líka!
Elska þessar lopapeysur ! Enda amma Fanney algjör snillingur í höndunum :D
Gaman að sjá allar þessar nýju færslur - var farin að spá hvort að mamman væri sest að í ameríkunni ;)
Kv,
Fríða

Takk Fríða mín. Gaman að lesa þessa athugasemd þrisvar sinnum :)
Það er bara svo gaman að gefa svona góðum krökkum fallegar peysur.
Haha ég er bara rosalegur aðdáandi :) María Dís kemst loksins í almennilega í vestið sitt og fer ekki núna úr því :)
Fríða
Frábært. Bið að heilsa Maríu Dís. Ég er vön að prjóna vel við vöxt.
Skrifa ummæli