Iðunn vill vera með trefil eins og mamma. Hún stillir sér upp í Ingólfsstræti.
Iðunn gengur sjálf um allan bæ....borðar snjó sem féll í páskahretinu. Loks endar ferð á Skólavörðuholti.
Þar skoðum við Leif Eiríksson, og setjumst á stallinn hans.
Hlýðum á tónverk fyrir kirkjuklukkur og blástur úr turni séra Hallgríms. Eyrnanna vegna er þó hlustað úti. Tveir spila á flautur utan dyra.
Mamma og Iðunn tromma á stöllunum fyrir utan kirkjuna...svo er haldið á kaffihús með ömmu Gee og drukkið heitt kakó í fyrsta sinn.
Góður dagur.
1 ummæli:
Stór og dugleg stelpa og foreldrarnir ótrúlega duglegir að fara út að skoða heiminn með stelpunni.
Skrifa ummæli