laugardagur, 2. júní 2012

Kominn júní!

Nú er maí búinn og bara mánuður eftir í heimferð.  Við erum strax farin að hlakka til! Svo er eplamamma lika búin að setja allar myndir i maí albúmið  - þær voru ansi margar, enda var fallegt veður og gaman að mynda.
Júnímánuður er ekki að sýna sínar bestu hliðar hingað til - hér er sem stendur 10C og suddarigning, á meðan sólin skín á Ísland.  Úff!

Innidagur
Síðan síðast var bloggað fórum við í helgarfrí til Edinborgar að horfa á Diljá hlaupa.  Hún stóð sig ofsalega vel og nú er Iðunn farin að benda pabba sínum á að hann ætti kannski líka að fara að hlaupa eins og Örvar og Diljá...mig lætur hún sem betur fer enn í friði.  Við eyddum eftirmiðdegi hjá McCabe fjölskyldunni í steikjandi sumarhita - yndislegt að kynnast þeim.

Næsta dag fórum við í dýragarðinn sem var mjög skemmtilegt.  Alls kyns dýr og margir róluvellir.  Við vorum sammála um að þetta væri enn skemmtilegri garður en dýragarðurinn í London, enda umhverfið fallegt og næg tré til að varpa skugga á okkur í sumarveðrinu.  Reyndar er allt upp á móti, en þá kemur á móti að á leiðinni út var allt niðrámóti. Eftir fimm tíma voru þó allir orðnir lúnir...og báðar stelpur sváfu 2 klst á leiðinni heim.

Annars gengur lífið sinn vana gang.  Kieran vinur mömmu var að fara að flytja aftur til Minnisota eftir 10 mánaða dvöl í Durham.  Iðunn var svo heppin að dóttir hans gaf henni hjólið sitt, svo nú á hún fjólublátt hjól hér í Englandi.  Við fórum í fjölskyldugrillveislu til að kveðja þau.  Fullt af börnum og nægur ís!

Halakörtuer eru ansi spennandi

Á morgun fer svo Una til Basel og verður fram á fimmtudag.  Það verður í fyrsta sinn sem þær Gerður eru aðskildar...mömmuhjartanu þykir tilhugsunin ansi erfið.  Helgi hefur þó minni áhyggjur af þessu öllu saman.

Nóg í bili úr rigningunni í Barnard Castle.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir blogg og ótal skemmtilegar myndir. SAKNA YKKAR SVOOOO MIKIÐ.Hér er hitabylgja og
gaman að lifa.

Amma G