föstudagur, 26. mars 2010

Rólóferð


Hér er komið vor - í bili a.m.k. og við höfum nýtt tímann vel, og farið á róló með góðu fólki. Komnar eru inn myndir á myndasíðuna. Annars vegar myndir frá síðustu helgi þegar við skruppum á Tjarnarborgarróló með Tómasi, Ásdísi Maríu, Siggu og Ásu; hins vegar frá gærdeginum þegar við skruppum á Freyjugöturóló með ömmu Fanneyju, Huldu og Hafsteini. Mikið stuð í bæði skiptin!

þriðjudagur, 23. mars 2010

Afsakið hlé


Eplabloggið er í smá fríi, en nýjar myndir eru settar inn á myndasíðu Iðunnar reglulega. Blogg verður tekið upp á ný í april þegar við höldum til Sverige og þaðan til Barnard Castle....nema eitthvað bloggvert gerist í millitíðinni.

þriðjudagur, 9. mars 2010

Mamma í Ameríku



Það er ekki auðvelt að vera mamma og þurfa að dvelja fjarri Iðunninni sinni í 19 daga. Ekki var það skárra að Iðunnin var lasin alla fyrstu vikuna sem ég var í burtu. Ég veit að það er vel hugsað um hana, pabbi, ömmurnar, leikskólinn - allir leggjast á eitt...en það er samt erfitt að vita af stelpunni sinni svona langt í burtu.
Allt gengur vel í Ameríkunni, þó ég sé orðin svoldið leið á stúdentunum í svona miklu návigi svona lengi. Reyndar hefur mikið ræst úr hlutunum eftir að ég kom til New York - ég gisti hér hjá Grétu og Susan í ró og næði með kisunum tveimur - hef hitt Mary Ann vinkonu mína tvisvar um helgina, og fer í mat til skólasystur minnar, Ástu Sóllilju annað kvöld.
Heimferð á föstudag, og lendi heima á laugardag..hlakka svooooo mikið til.

mánudagur, 8. mars 2010

föstudagur, 5. mars 2010

Myndir

Kjúklingur.

Amma fanney kom með nýjar bækur.

Vettlingur á ísskáp.

Gulur, rauður, grænn.

þriðjudagur, 2. mars 2010

Labba bæinn

Iðunn er búin að vera lasin undanfarna daga en virðist nú vera að ná sér og fer líklega aftur á leikskólann í fyrramálið.
Við feðginin löbbuðum í bæinn í dag og skoðuðum endurnar.



Takið eftir náunganum í bakgrunninum sem heldur á dúfu meðan hann gefur henni brauð.
Mér fannst þetta merkilegt en var að reyna að vera ekki of áberandi þegar ég tók myndina.

jamm

þriðjudagur, 23. febrúar 2010

Fjarvera



Lítið hefur verið bloggað eftir heimkomuna, en þó örskeyti svona af og til. Nú er líklegt að lítið verður um blogg á næstunni því aðal bloggarinn verður fjarri góðu gamni. Ég fer til Durham í fyrramálið (vekjaraklukkan stillt á 04.00) og verð þar á endalausum fundum í tvo daga. Á laugardagsmorgun (enn fyrr!) fer ég frá Newcastle til London og þaðan til Chicago þar sem ég verð við svínabeinamælingar í viku ásamt doktorsnemum mínum og öðru samstarfsfólki. Þá fer ég til NY að eyða annari viku við mælingar á svínum. Stuð!! Flýg svo heim via Heathrow (ójá, ansi fáránleg leið) og kem loksins loksins til Keflavíkur upp úr hádegi laugardaginn 12.mars.
Ég ætla ekki einu sinni að minnast á hve mig verkjar í mömmuhjartað þó ég viti að Iðunn verði í góðum höndum.Úff!

Svo ber að minnast á að amma Gee, sem nú gengur undir heitinu amma Bogga (endurnefnd af heimasætunni í óþökk ömmunnar) á afmæli á morgun og viljum við senda henni kossa og knús í tilefni dagsins!!

sunnudagur, 21. febrúar 2010

Af konum og afmælum



Eplamamma átti afmæli og eplapabbi bakaði svo yndislega góða köku í tilefni dagsins. Iðunn var himinsæl - og þurrkaði sér sposk um hendurnar á peysunni sinni! (sjá klippivídjó ef ýtt er á play)

miðvikudagur, 17. febrúar 2010

Iðunnarspeki dagsins


"Mamma, Grænaborg er langt langt í buttu"

"Æ mamma ég er kúka baunir!"

þriðjudagur, 16. febrúar 2010

Fréttaleysa


Héðan er nú ekki mikið að frétta, en þó er alltaf skellt inn myndum á myndasíðuna sem vísað er á hér til hægri. Lífið gengur sinn vanagang. Helst er kannski fréttnæmt að afi og amma í Sævangi eru komin heim frá Indlandi og fórum við þangað í bollukaffi um helgina ásamt ömmu Gee. Það voru fagnaðarfundir, og ekki verra að heimasætan fór þaðan með nýja bleika skó og fallegt veski sem amma og afi höfðu verslað í úlöndum.


Annars var leiðinlegt veður alla síðustu helgi (það er helst að eitthvað fréttnæmt gerist um helgar), svo við vorum mest inni við leik og störf, og skruppum aðeins á bókasafn. Þar fór ekki betur en svo að Iðunn tók sig til og beit stelpu sem var eitthvað að grípa fram fyrir hendurnar á henni, og fékk náttúrulega skömm í hattinn. Bitvargurinn litli veit vel að svona má ekki gera, en því miður á hún þetta til, og þurfti þrisvar í skammarkrókinn á Dropadeild í gær vegna þessa....úff mömmunni líst ekki vel á þessa hegðun!