miðvikudagur, 20. apríl 2011

Vinkonur



Í dag hittust loksins vinkonurnar Alice og Iðunn í fyrsta sinn síðan í fyrrasumar. Það var búið að tala mikið um að fara til Alice og heimsóknin sveik sko ekki - stelpurnar léku sér saman í yndislegu veðri á meðan mömmurnar unnu og pabbarnir sátu í garðinum og sötruðu bjór. Yndislega skemmtilegar saman, og Iðunn gleymdi alveg að vera feimin eins og sést á myndunum.




Eftir að hafa stríplast um allan eftirmiðdaginn, og prófað að kúka í grasið var haldið heim á leið....undir kvöldmat setti pabbi svo nýjan sand í sandkassann.
Fullkominn dagur fyrir litla stelpu!

þriðjudagur, 19. apríl 2011

Vordagar í yndislegu veðri í County Durham


Í garðinum hjá Donnu

Ferðin til Englands gekk vel, og allt samkvæmt áætlun, nema að foreldrarnir gleymdu að gera ráð fyrir áhuga erfingjans á að sjá leikföngin sín og þar af leiðandi var ekki sofnað fyrr en kl 00,30 og vaknað aftur kl 06.00 daginn eftir. Ansi framlágir foreldrar þann daginn.
Veðrið leikur við okkur, á meðan fólkið heima stríðir við snjó og slyddu á sumardekkjum hefur hér verið bongóblíða: 16C í gær, 19C í dag, spáð 22C á morgun, og góðu veðri fram á laugardag. Í gær tókum við því rólega, reyttum arfa, heimsóttum Donnu og Iðunn lék sér við stóru stelpurnar sem búa neðar í götunni. Í dag fórum við svo í afmæliskaffi hjá Ophélie, sem er doktorsnemi hjá eplamömmu og þaðan í strandferð til Saltburn. Bara yndislegt! Helgi ætlar varla að trúa því að veðrið geti verið svona gott hérna í Barnard Castle!


Afmæli Ophélie


Mokað á ströndinni í Saltburn


Íííískaldur sjórinn!

Öppdeit á síðustu dögunum í Svíþjóð




Síðustu dagarnir okkar í Svíþjóð voru yndislegir. Við tókum því rólega heima við og skruppum aðeins til Lundar og borðuðum ís. Eins skruppum við í Höganas og keyptum 3 nýja múminbolla í safnið. Hér eru nokkrar myndir.

fimmtudagur, 14. apríl 2011

ÓÞOLINMÓÐAR ÖMMUR ERU FARNAR AÐ KVARTA......SVO HÉR KEMUR NÝR PÓSTUR.

Vorveðrið hélst bæði sunnudag og mánudag. Á mánudaginn gerðum við heiðarlega tilraun til að fara á Picasso sýningu í Louisiana, en gleymdum að ekki er opið á mánudögum, svo enduðum á að fara í göngutúr um ströndina þar fyrir neðan í staðin og keyrðum svo til Köben og átum smurbrauð í Nyhavn og ís á Strikinu í hreint yndislegu veðri.



Á ströndinni

Pabbi og Iðunn heilsa hundi í Humlebæk

Á þriðjudag var úrhellisrigning, svo við lukum af verslunarferð i Lindex og keyptum fjólublá múmin náttföt á bæði stóru systur og litlu systur. Iðunn valdi svo eins skærbleika sokka á þær systurnar. Merkilegasti atburður dagsins var þó þegar Iðunn kastaði vatni (virtust vera margir lítrar!) inni á Polarn o Pyret og fyllti stígvélin sín sem er ansi slæmt þegar mikil rigning er úti og maður þarf á stígvélum að halda. Þessu var fljótbjargað. Mamma fann konu til að þurrka og skrapp svo á Hog M og verslaði nýjar nær- og sokkabuxur á stelpuna. Að lokum var farið á kaffihús með Jóhanni og borðaðir kanelsnúðar...ágætur rigningardagur. Mðvikudagurinn var líka kaldur og við héldum okkur i Svedala.



Mamma og Johan með dansatriði á kaffihúsinu



Áttum amk einn aðdáanda

Í dag (fimmtudag)fórum við svo að heimsækja Höllu stóru í Hvalsö. Þá var aftur komið vorveður svo við sátum úti allan eftirmiðdaginn og Iðunn hljóp um garðinn og sópaði stéttina. Alltaf gaman að skreppa til Höllu frænku.
Nóg í bili - toodiloo


sunnudagur, 10. apríl 2011

Vorið er komið til Svedala



Hérr er aldeilis vel tekið á móti okkur - vorið sjálf mætt í móttökunefnd. Hiti fór í 15 stig, sólin sken allan daginn. Við vorum úti frá morgni til kvölds. Litla daman fór úr skónum og hljóp um allt á tásunum, í fyrsta sinn á árinu. Ekki spillti fyrir að Emma og Erik komu að leika.
Yndislegur dagur!

PS Fleiri myndir á myndasíðunni



föstudagur, 8. apríl 2011

Litla systir og ferðalög



Hér er búin að vera ansi löng bloggpása, enda Iðunn og fjölskylda mest heima og hittum þar flest fólkið sem fylgdist með okkur hér í denn. Nú ætlum við hins vegar að leggja land undir fót og fara til Sverige og Englands, og þótti því rétt að endurvekja Iðunnarbloggið til að hægt væri að fylgjast með ferðum okkar. Við vonumst til að eldfjöllin haldi sig til friðs í þetta sinn, svo við komumst leiða okkar á áætlun.

Meðan á pásunni stóð voru þær fréttir helstar að við fluttum okkur úr Þingholtunum á Hagamelinn, og að von sé á litlu systur í ágústlok. Það fylgir því mikil spenna að verða stóra systir!

sunnudagur, 30. maí 2010

Viðburðarík helgi


Helgin hófst vel hjá Iðunni - sveitaferð með Grænuborg og Diljá uppáhaldsmóðursystur (að öllum öðrum ólöstuðum - hún var amk uppáhalds þann daginn). Mikið stuð, grillað í sól og sumarskapi og Iðunn sópaði hvolp. Myndir eru á myndasíðu. Svo á laugardag var farið á róló með pabba og blómadagur tekinn með trompi á Skólavörðustig. Einnig myndir af þeim herlegheitum. Að lokum fékk hún svo að gista í allra fyrsta sinn heima hjá ömmu Gobbu á meðan pabbi var í Júrópartíi með klikkaða liðinu (systkynum Unu mömmu og co.), og allt gekk ofsalega vel. Iðunn átti góða stund með ömmu, sofnaði tímanlega, svaf í bangsarúminu, vaknaði seinna en vejulega (ömmu til mikillar gleði), fékk að fara í stóra baðið, og talaði við mömmu sína í símann. Skemmtileg helgi sem endar svo með ferð í Sævang eftir hádegi í dag.
Kosningar og Júró voru víst líka á döfinni....
Mamman situr í Barnard Castle og fer yfir próf.

mánudagur, 24. maí 2010

Mamma ekki lengur vinnunni


Mamman var heima hjá Iðunni og Helga um helgina....áttum svo yndislega daga saman. Hittum ömmur, pössuðu kisu, fengum Kötu í heimsókn. Hápunkturinn var samt sumarbústaðaferð með Ásdísi Maríu og Tómasi, ásamt foreldrum, í alveg hreint yndislegu veðri. Hlýtt fyrri daginn, hlýtt og skínandi sól þann seinni. Myndir komnar inn á picasa síðuna. Kíktum svo við í Siggubústað á Þingvöllum á leið í bæinn og kíktum á framkvæmdir þar. Verst er að samveran var allt of stutt, og Iðunn talaði alla helgina um að "Nú mamma ekki lengur vinnunni, nú mamma heima hjá Iðunni". Mamman sem labbaði sér út á BSÍ klukkan 5 í morgun var með ansi mikið samviskubit að yfirgefa stelpuna sína enn og aftur.

sunnudagur, 16. maí 2010

Heimilislíf eplanna




Eplabloggið og myndasíðan eru í lægð þessa dagana, þar sem aðal bloggarinn og myndasmiðurinn er allt of mikið í burtu. Heimilislífið er einkennilegt - Helgi og Iðunn á Íslandi, eplamamma í Englandi, ferðalög til Íslands taka marga sólarhringa vegna öskuláta, og yfirleitt eru samskiptin eins og sést hér að ofan - í gegnum hökktandi myndavél á skypinu. Einkennilegt líf....

laugardagur, 8. maí 2010