Í dag hittust loksins vinkonurnar Alice og Iðunn í fyrsta sinn síðan í fyrrasumar. Það var búið að tala mikið um að fara til Alice og heimsóknin sveik sko ekki - stelpurnar léku sér saman í yndislegu veðri á meðan mömmurnar unnu og pabbarnir sátu í garðinum og sötruðu bjór. Yndislega skemmtilegar saman, og Iðunn gleymdi alveg að vera feimin eins og sést á myndunum.
Eftir að hafa stríplast um allan eftirmiðdaginn, og prófað að kúka í grasið var haldið heim á leið....undir kvöldmat setti pabbi svo nýjan sand í sandkassann.
Fullkominn dagur fyrir litla stelpu!
3 ummæli:
Æ hvað það er gott að fá sól í kroppinn
Bleik stígvél? Hvar endar þetta, Una mín?
Alice á reyndar þessi bleiku stigvél.....það er meira að segja glimmer á þeim - ekki séns að ég hefði keypt þau. En hún Iðunn á bleika múmininniskó....
Skrifa ummæli