| Tómas á bekknum er svalur í dag |
miðvikudagur, 4. janúar 2012
þriðjudagur, 3. janúar 2012
mánudagur, 2. janúar 2012
sunnudagur, 1. janúar 2012
Nýtt ár, nýtt verkefni!
Nú er hafið nýtt ár og upplagt að prófa eitthvað nýtt og skemmtilegt. Þar sem við sjáum fram á að eyða árinu að mestu saman ætla ég að reyna við verkefni sem ég hef spáð í lengi en ekki framkvæmt. Ég mun reyna að setja inn eina mynd á dag - af einhverju sem bar fyrir augu þann daginn. Sumar vonandi skemmtilegar, eflaust margar hversdagslegar, og kannski einhverjar hundómerkilegar, en mig grunar að geti verið gaman að skoða þær allar í lok árs. Undrist ekki ef margar verða af dætrunum, enda þær mjög myndarlegar. Myndirnar verða allar merktar með dagsetningu í titli og með ´label´sem "366 dagar" enda hlaupár í ár.
Aðrar myndir verða sem fyrr á myndasíðu Gerðar, og óskyldar bloggfærslur verða auðkenndar með öðruvísi titlum.
miðvikudagur, 30. nóvember 2011
3 mánuðir!
Þessi litli spekingur er 3 mánaða í dag. Í tilefni dagsins var hún stungin tvisvar í lærið og ældi yfir allan heilsugæslusófann. Mældist 6.2kg og 61cm
þriðjudagur, 29. nóvember 2011
Borta bra men hemma bäst.
Það er ljúft að vera komin heim á Hagamelinn. Stóra skvís skoppaði alsæl á Grænuborg í morgun og átti von um að snjóþoturnar yrðu teknar fram í útiverunni. Litla skvís nýtur þess að hvíla sig í rólegheitunum heima eftir langan og strangan ferðadag. Mamman kveikir á kertum og reynir að hnoða saman jólakortum.
mánudagur, 28. nóvember 2011
Stormasamar fréttir
| Iðunn og Freyja litla að leik í afmælinu |
Síðasti heili dagurinn okkar í Sverige rann upp ansi blautur og vindasamur. Við héldum okkur innivið fram yfr hádegi en þá var haldið í eins árs afmæli hjá Freyju litlu. Við komumst ekki öll í bílinn svo Una og amma Titti fóru með lest í þessu líka "dásemdarveðri". Meðan við vorum í afmælinu stytti þó upp svo við ákváðum að láta þetta smá rok ekkert á okkur fá og lalla niður í bæ með stelpurnar að kíkja á jólaskreytingar og fá smá aðventustemmningu, og taka þaðan lestina heim
| Una og Iðunn skoða jólaljósin |
Allt var fallega skreytt í Malmö og allir nutu þess að skoða ljósin. Það var ansi hvasst en ekkert verra en í haustlægðunum heima. Þegar við komum á lestarstöðina var reyndar búið að aflýsa öllum lestarferðum til Gautaborgar, og eins var búið að loka brúnni til Kaupmannahafnar. Við sáum svo í fréttunum þegar við komum í hús að þetta hafi verið versti stormur í 4 ár hér á Skáni - Fyrirsögn Sydsvenskan í dag er "Stormkaos". Okkur þótti þetta bara hressandi! Gangan af Svedala lestarstöðinni heim til afa Viðars minnti þó eilítið á jóladagsgönguna 2007, en snjólaus og ekki eins miklar hviður, svo okkur þótti þetta lítið mál.
| Ljósin í Malmö |
sunnudagur, 27. nóvember 2011
Skemmtilegur dagur
Í gær, laugardag, fór Iðunn aftur til Kristu og þær léku sér saman úti allan eftirmiðdaginn á meðan mamma og pabbi (og Gerður) gengu um bæinn og gerðu jólainnkaup. Mömmu og pabba þótti reyndar nóg um mannmergðina, en náðum samt að ljúka ansi miklu. Gerður eignaðist nýjan vin því þau Styrmir, litli bróðir Kristu, urðu miklir mátar. Á leiðinni heim misstum við af lestinni, en það var allt í lagi því von var á annarra hálftíma síðar og við skoðuðum fólk og lestir á meðan við biðum. Í dag sunnudag ætluðum við að hitta Höllu frænku en látum það bíða þangað til við komum næst því þakið hjá Höllu fór að leka í brjálæðisrigningu og hún neyðist til að hlaupa um og tæma fötur . Þess í stað förum við í eins árs afmæli hjá Freyju litlu frænku.
föstudagur, 25. nóvember 2011
Pabbi kominn!!
| Pabbi endurheimtur |
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)