sunnudagur, 27. nóvember 2011

Skemmtilegur dagur


Í gær, laugardag, fór Iðunn aftur til Kristu og þær léku sér saman úti allan eftirmiðdaginn á meðan mamma og pabbi  (og Gerður) gengu um bæinn og gerðu jólainnkaup.  Mömmu og pabba þótti reyndar nóg um mannmergðina, en náðum samt að ljúka ansi miklu.  Gerður eignaðist nýjan vin því þau Styrmir, litli bróðir Kristu, urðu miklir mátar. Á leiðinni heim misstum við  af lestinni, en það var allt í lagi því von var á annarra hálftíma síðar og við skoðuðum fólk og lestir á meðan við biðum.  Í dag sunnudag ætluðum við að hitta Höllu frænku en látum það bíða þangað til við komum næst því þakið hjá Höllu fór að leka í brjálæðisrigningu og hún neyðist til að hlaupa um og tæma fötur .  Þess í stað förum við í eins árs afmæli hjá Freyju litlu frænku.

Engin ummæli: