miðvikudagur, 31. mars 2010

Stórfréttir!


Nú er Iðunn kominn á þann aldur þar sem börn eru yfirleitt vanin af bleijum. Oft er þannig farið að að börn eru látin vera ber á botninum heima við og svo smellt á koppinn þegar þay gera sig líkleg til að geta framleitt eitthvað í hann. Hins vegar er Iðunnin okkar haldin hálfgerðri bleijuhysteríu sem upphófst út frá hægðavandamálum í fyrra sumar, og lýsir sér þannig að hún hefur verið hrædd við að vera bleijulaus, og grætur og skelfur við skipti þar til komin er ný bleija á botninn. Vegna þessa h0fum við ekkert verið að ýta á hana að emð bleijurnar, en hins vegar talað ansi mikið um koppa og piss og kúk, og fylgst grant með salernisferðum fjölskyldumeðlima og barnanna á leikskólanum.
Í dag gerðust þó þau undur og stórmerki að Iðunnin gleymdi sér við að púsla berbotna eftir baðið...eftir dágóða stund sýndist mömmu hún vera farin að vera svoldið pissuleg....og stakk upp á koppaferð, og benti á að vel væri hægt að púsla á koppnum. Okkur til mikillar furðu rauk hún af stað og sótti koppinn inn á bað, og settist á hann. Allt í einu kom á hana furðusvipur, hún rýkur á fætur og gónir ofaní koppinn, og viti menn, komnir heilir 3 dropar! Mikið hrós, mikið klapp, allir skoða, svo er sest niður og 5 dropar til viðbótar!! Aftur hrós, aftur klapp, aftur skoðað en í þetta sinn (enn meira spennandi) er koppurinn tæmdur og skolaður. Eftir þetta bendir mamman á að það megi alveg láta allt pissið koma í einu og viti menn - risa gusa og enn meira hrós og klapp!! Fyrsti koppasigurinn!!


Mamma og pabbi eru í sjöunda himni yfir stelpunni sinni sem sigraðist á hræðslunni....og Iðunnin er enn ánægðari með þetta nýja ritúal sem bæst hefur við heimilisvenjurar á Grundarstíg.

mánudagur, 29. mars 2010

Kalt úti, stuð inni


Hér hefur verið ansi kalt undanfarna daga og vesalings vorblómin vita eflaust ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Hins vegar er hlýtt og notalegt á Grundarstíg og hægt að glensast og grínast léttklæddur í morgunsárið.

föstudagur, 26. mars 2010

Rólóferð


Hér er komið vor - í bili a.m.k. og við höfum nýtt tímann vel, og farið á róló með góðu fólki. Komnar eru inn myndir á myndasíðuna. Annars vegar myndir frá síðustu helgi þegar við skruppum á Tjarnarborgarróló með Tómasi, Ásdísi Maríu, Siggu og Ásu; hins vegar frá gærdeginum þegar við skruppum á Freyjugöturóló með ömmu Fanneyju, Huldu og Hafsteini. Mikið stuð í bæði skiptin!

þriðjudagur, 23. mars 2010

Afsakið hlé


Eplabloggið er í smá fríi, en nýjar myndir eru settar inn á myndasíðu Iðunnar reglulega. Blogg verður tekið upp á ný í april þegar við höldum til Sverige og þaðan til Barnard Castle....nema eitthvað bloggvert gerist í millitíðinni.

þriðjudagur, 9. mars 2010

Mamma í Ameríku



Það er ekki auðvelt að vera mamma og þurfa að dvelja fjarri Iðunninni sinni í 19 daga. Ekki var það skárra að Iðunnin var lasin alla fyrstu vikuna sem ég var í burtu. Ég veit að það er vel hugsað um hana, pabbi, ömmurnar, leikskólinn - allir leggjast á eitt...en það er samt erfitt að vita af stelpunni sinni svona langt í burtu.
Allt gengur vel í Ameríkunni, þó ég sé orðin svoldið leið á stúdentunum í svona miklu návigi svona lengi. Reyndar hefur mikið ræst úr hlutunum eftir að ég kom til New York - ég gisti hér hjá Grétu og Susan í ró og næði með kisunum tveimur - hef hitt Mary Ann vinkonu mína tvisvar um helgina, og fer í mat til skólasystur minnar, Ástu Sóllilju annað kvöld.
Heimferð á föstudag, og lendi heima á laugardag..hlakka svooooo mikið til.

mánudagur, 8. mars 2010

föstudagur, 5. mars 2010

Myndir

Kjúklingur.

Amma fanney kom með nýjar bækur.

Vettlingur á ísskáp.

Gulur, rauður, grænn.

þriðjudagur, 2. mars 2010

Labba bæinn

Iðunn er búin að vera lasin undanfarna daga en virðist nú vera að ná sér og fer líklega aftur á leikskólann í fyrramálið.
Við feðginin löbbuðum í bæinn í dag og skoðuðum endurnar.



Takið eftir náunganum í bakgrunninum sem heldur á dúfu meðan hann gefur henni brauð.
Mér fannst þetta merkilegt en var að reyna að vera ekki of áberandi þegar ég tók myndina.

jamm

þriðjudagur, 23. febrúar 2010

Fjarvera



Lítið hefur verið bloggað eftir heimkomuna, en þó örskeyti svona af og til. Nú er líklegt að lítið verður um blogg á næstunni því aðal bloggarinn verður fjarri góðu gamni. Ég fer til Durham í fyrramálið (vekjaraklukkan stillt á 04.00) og verð þar á endalausum fundum í tvo daga. Á laugardagsmorgun (enn fyrr!) fer ég frá Newcastle til London og þaðan til Chicago þar sem ég verð við svínabeinamælingar í viku ásamt doktorsnemum mínum og öðru samstarfsfólki. Þá fer ég til NY að eyða annari viku við mælingar á svínum. Stuð!! Flýg svo heim via Heathrow (ójá, ansi fáránleg leið) og kem loksins loksins til Keflavíkur upp úr hádegi laugardaginn 12.mars.
Ég ætla ekki einu sinni að minnast á hve mig verkjar í mömmuhjartað þó ég viti að Iðunn verði í góðum höndum.Úff!

Svo ber að minnast á að amma Gee, sem nú gengur undir heitinu amma Bogga (endurnefnd af heimasætunni í óþökk ömmunnar) á afmæli á morgun og viljum við senda henni kossa og knús í tilefni dagsins!!

sunnudagur, 21. febrúar 2010

Af konum og afmælum



Eplamamma átti afmæli og eplapabbi bakaði svo yndislega góða köku í tilefni dagsins. Iðunn var himinsæl - og þurrkaði sér sposk um hendurnar á peysunni sinni! (sjá klippivídjó ef ýtt er á play)