Þessi litli spekingur er 3 mánaða í dag. Í tilefni dagsins var hún stungin tvisvar í lærið og ældi yfir allan heilsugæslusófann. Mældist 6.2kg og 61cm
miðvikudagur, 30. nóvember 2011
3 mánuðir!
Þessi litli spekingur er 3 mánaða í dag. Í tilefni dagsins var hún stungin tvisvar í lærið og ældi yfir allan heilsugæslusófann. Mældist 6.2kg og 61cm
þriðjudagur, 29. nóvember 2011
Borta bra men hemma bäst.
Það er ljúft að vera komin heim á Hagamelinn. Stóra skvís skoppaði alsæl á Grænuborg í morgun og átti von um að snjóþoturnar yrðu teknar fram í útiverunni. Litla skvís nýtur þess að hvíla sig í rólegheitunum heima eftir langan og strangan ferðadag. Mamman kveikir á kertum og reynir að hnoða saman jólakortum.
mánudagur, 28. nóvember 2011
Stormasamar fréttir
| Iðunn og Freyja litla að leik í afmælinu |
Síðasti heili dagurinn okkar í Sverige rann upp ansi blautur og vindasamur. Við héldum okkur innivið fram yfr hádegi en þá var haldið í eins árs afmæli hjá Freyju litlu. Við komumst ekki öll í bílinn svo Una og amma Titti fóru með lest í þessu líka "dásemdarveðri". Meðan við vorum í afmælinu stytti þó upp svo við ákváðum að láta þetta smá rok ekkert á okkur fá og lalla niður í bæ með stelpurnar að kíkja á jólaskreytingar og fá smá aðventustemmningu, og taka þaðan lestina heim
| Una og Iðunn skoða jólaljósin |
Allt var fallega skreytt í Malmö og allir nutu þess að skoða ljósin. Það var ansi hvasst en ekkert verra en í haustlægðunum heima. Þegar við komum á lestarstöðina var reyndar búið að aflýsa öllum lestarferðum til Gautaborgar, og eins var búið að loka brúnni til Kaupmannahafnar. Við sáum svo í fréttunum þegar við komum í hús að þetta hafi verið versti stormur í 4 ár hér á Skáni - Fyrirsögn Sydsvenskan í dag er "Stormkaos". Okkur þótti þetta bara hressandi! Gangan af Svedala lestarstöðinni heim til afa Viðars minnti þó eilítið á jóladagsgönguna 2007, en snjólaus og ekki eins miklar hviður, svo okkur þótti þetta lítið mál.
| Ljósin í Malmö |
sunnudagur, 27. nóvember 2011
Skemmtilegur dagur
Í gær, laugardag, fór Iðunn aftur til Kristu og þær léku sér saman úti allan eftirmiðdaginn á meðan mamma og pabbi (og Gerður) gengu um bæinn og gerðu jólainnkaup. Mömmu og pabba þótti reyndar nóg um mannmergðina, en náðum samt að ljúka ansi miklu. Gerður eignaðist nýjan vin því þau Styrmir, litli bróðir Kristu, urðu miklir mátar. Á leiðinni heim misstum við af lestinni, en það var allt í lagi því von var á annarra hálftíma síðar og við skoðuðum fólk og lestir á meðan við biðum. Í dag sunnudag ætluðum við að hitta Höllu frænku en látum það bíða þangað til við komum næst því þakið hjá Höllu fór að leka í brjálæðisrigningu og hún neyðist til að hlaupa um og tæma fötur . Þess í stað förum við í eins árs afmæli hjá Freyju litlu frænku.
föstudagur, 25. nóvember 2011
Pabbi kominn!!
| Pabbi endurheimtur |
Spennt!
Í dag kemur pabbi til okkar og Iðunn er orðin ansi spennt að sjá hann eftir rúma viku:
"Mamma veistu ég held ég finni pabbalykt úr flugvélinni og alveg hingað!"
Viðbót frá því síðar um daginn er við mæðgur fórum í göngutúr:
Lyktin af pabba hún er sko miklu miklu góðari en ef þér og Gerði, mamma! En lyktin af mér er miklu miklu miklu miklu miklu góðari en af ykkur öllum. Hún er lang best!"
fimmtudagur, 24. nóvember 2011
miðvikudagur, 23. nóvember 2011
Hreinar stelpur
Í dag fór Gerður í baðkar í fyrsta sinn, og fyrsta sinn í fylgd stóru systur. Stóra systir var mjög ábyrgðarfull. Dugleg stelpa hún Iðunn okkar.
Rendar ýtti amma á vitlausan takka nokkrum sekúndum eftir að þessi mynd var tekin og sendi þar með ískalt vatn úr öllum áttum á þær systur - þeim brá svakalega og allir orguðu....en jöfnuðu sig þó brátt svo ég held að það sé óþarfi að kalla til áfallahjálparteymi. Sem betur fer eru engir svona takkar í baðinu okkar heima svo það ætti að vera óhætt að endurtaka baðferðina þar.
Rendar ýtti amma á vitlausan takka nokkrum sekúndum eftir að þessi mynd var tekin og sendi þar með ískalt vatn úr öllum áttum á þær systur - þeim brá svakalega og allir orguðu....en jöfnuðu sig þó brátt svo ég held að það sé óþarfi að kalla til áfallahjálparteymi. Sem betur fer eru engir svona takkar í baðinu okkar heima svo það ætti að vera óhætt að endurtaka baðferðina þar.
Enn meiri fréttir
Fyrstar ber að nefna þær merkisfréttir að Louise systir mín eignaðist dreng í gær eftir langa fæðingu sem endaði í keisaraskurði eftir marga klukkutíma með 10 í útvíkkun og hríðarstopp. Allir ofsa glaðir eftir mikið stress. Móður og barni heilsast vel. Nú er verst að komast ekki til Stockhólms að sjá hann.
Enn merkilegra þótti Iðunni að fara í heimsókn til Kristu vinkonu sinnar af Grænuborg sem dvelur nú í Malmö meðan foreldrarnir svipast um eftir húsnæði í Gautaborg. Það voru miklir fagnaðarfundir og þær léku sér á róló og við föndur heima í heila 6 tíma. Mamman náði meira að segja að skreppa aðeins í bæinn að versla hversdagsföt á Iðunni og forskoða jólagjafir. Iðunn fær svo vonandi að fara aftur í heimsókn áður en við förum heim - gaman gaman!
Mamman var eitthvað léleg að mynda í gær svo hér birtast myndir sem tengjast fréttunum ekki neitt.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)