miðvikudagur, 11. nóvember 2009

Lasin en hress!


Iðunnin er lasin. Fékk háan hita í gærkvöldi og fékk að vera heima í dag. Samt er stelpan ansi vel hress. Mamma hefur aflýst kennslu á morgun til að vera heima hjá Iðunni, og svo pabbi nái að undirbúa fundinn í Vínarborg í næstu viku. Vonandi verður svo fullri heilsu náð á ný á föstudag, þegar von er á ömmu Gee og Diddú (Diljá) í helgarheimsókn. Nóg að gera!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ekki beint lasleg að sjá litla skottið!Drífa sig að verða frísk áður en amma kemur.

amma fk sagði...

Maður verður að blogga þótt það séu gestir.