Núorðið er aðallega bloggað um helgar á Iðunnarblogginu. Hér er þó smá myndahlé sem stendur, því familían er farin til Sheffield í helgarferð og gleymdi að taka með sér myndavélasnúruna. Ferðin er til að eplapabbi geti farið að sjá Edie and Thea, a Very Long Engagement - myndina þeirra Grétu og Susan sem hefur farið sigurför um kvikmyndahátíðir heimsins að undanförnu. Vonandi náum við líka að hitta þær yfir kaffibolla eða matarbita. Við ákváðum að nýta ferðina og taka okkur bara afslappelsishelgi fjarri heimilinu. Við tókum því rólega í morgun og lögðum svo af stað um hálf ellefu. Ókum til Leeds og fórum þar á veitingastað sem við höfðum séð í matreiðslukeppni í sjónvarpinu (F-word með Gordon Ramsey) og sem unnið hafði til verðlauna sem besti Local Ítalski matsölustaðurinn í Bretlandi. Hann reyndist vægast sagt frábær. Barnvænn, með yndislegt starfsfólk og hreint dýrlegan mat. Iðunn hámaði í sig Calamari og bakaðan mozrella ásamt öðru góðgæti, og ekki spillti fyrir að fá smá ís í lokinn. Hún sat sæl og glöð í klukkutíma og þrjú korter yfir matnum, og geri aðrir betur tæplega tveggja ára. Að loknum málsverði héldum við til Sheffield og á hótelið okkar sem reyndist sambyggt Sheffield United leikvanginum. Að öðru leyti hið allta fínasta hótel - stutt í miðbæinn, stórt herbergi, smartar innréttingar og ekki of dýrt. Við spókuðum okkur aðeins í bænum og nú erum við komin upp á herbergi. Iðunnin er sofnuð og við eplapabbi fáum okkur rauðvínsglas og njótum lífsins.
Yndislegt!
2 ummæli:
Þetta er ljúfa lífið! Eins gott að hlaða batteríin áður en amma G og Diddú gera innrás sína.
Amman á leiðinni
Iðunn hefðardama kann sig auðvitað á fínum veitingastöðum.
Það er aldeilis þéttskrifaður gestalistinn hjá ykkur næstu vikurnar.
Skrifa ummæli