laugardagur, 19. nóvember 2011
Systur í Svíaveldi
Nú eru systurnar komnar í heimsókn til afa Viðars, og Gerður í fyrsta sinn til útlanda.
Ferðin gekk ansi vel, Iðunn var dugleg að hjálpa mömmu og báðar stelpurnar voru mjög stilltar, fyrir utan þá litlu stund sem Gerður fékk í eyrun í lendingunni. En það leið hjá fljótt og allir voru hressir þegar afi sótti okkur út á Kastrup.
Fyrsta daginn vorum við einar hér með afa, en í gærkvöldi komu svo Jóhann og amma Titti aftur heim eftir ferðir sínar (í sitt hvoru lagi) til Stockhólms - það var gaman að fá loks að hitta þau, og amma Titti var voða ánægð með þær báðar (eins og reyndar afi lika).
Hér í Svedala ganga dagarnir heldur rólega fyrir sig. Við erum búnar að kanna matvöruverslunina, bókasafnið og rólóvöllinn, og það eru komnar inn einhverjar myndir á myndasíðu Gerðar. Við söknum pabba svoldið mikið, en vonum að hann nái að njóta þess að vera stelpulaus í nokkra daga - fær að forrita að vild, drekka bjór og gera aðra karlmannlega hluti.
Kær kveðja frá Sverige,
Iðunn, Gerður og ásynjumamman
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Duglegar stelpur!Sakna ykkar!
Skrifa ummæli