Litli glanninn minnir stundum ansi mikið á pabba sinn í áhættusömum uppátækjum...
laugardagur, 31. janúar 2009
Listaverk
fimmtudagur, 29. janúar 2009
Fimmtudagsfréttir
Iðunn litla er ansi fyndin í dag.....svoldið kvefuð, sem hefur reyndar lítil áhrif á fjörið, en hefur hinsvegar gert hana ráma eins og hún hafi innbyrt hálfa viskí flösku á dag síðustu 10 árin! Þau feðginin voru heima í dag, sem var ágætt því veðrið var eins og það gerist verst á Bretlandi - baunasúpuþoka og nístings-raka-kuldi...brrrr..!! Mér stóð varla á sama á leiðinni í vinnuna þegar ég sá ekki nema ca. 3m fram fyrir bílinn, og var óskaplega fegin að hafa Iðunni ekki með mér. Spáð er snjó og miklum kuldum í næstu viku og erum við fegin að hafa fjárfest í nýjum Janusarullarpeysum á alla familíuna þegar við vorum heima um jólin. Lopapeysurnar hennar ömmu FK standa líka alltaf fyrir sínu.
þriðjudagur, 27. janúar 2009
Sjálfstætt fólk
Iðunn er sjálfstæð dama. Hún getur klætt sig í húfu. Hún getur klætt sig úr peysunni. Hún getur staðið upp sjálf. Hún getur klifrað yfir fólk frekar en að skríða í kringum það.....og...Hún "getur" borðað sjálf. Matartímar hér eru orðnir ansi subbulegir. Meiri tími fer í að þrífa gólfið en elda matinn, og mamman á erfitt með að sitja á sér á meðan hún lætur barnið æfa sig í sjálfstæðinu. Eflaust væri auðveldara að láta leikskólann um matarþjálfunina, en mér fyndist það halfgerð uppgjöf, svo í lok matartíma fær Iðunn aðeins að æfa sig. Látum nægja að segja að hún á enn ansi langt í land að geta séð sjálfri sér fyrir daglegum hitaeiningafjölda með þessari aðferð. En það er voða stuð að borða sjálf, og maturinn eflaust miklu betri þannig!
Annars er allt gott að frétta. Fórum öll til Manchester á mánudag á formfræðifund - 5 tíma ferðalag allt í allt sem reyndi á okkur öll en gekk samt furðu vel. Iðunn er að taka tennur (höldum við) og búin að vera Iðunn öfugsnúna í gær og í dag; og Helgi fór til Hull í dag og átti góðan fund með öllum hinum tölvusnillingunum.
Góða nótt!
sunnudagur, 25. janúar 2009
Örvar afmælisdrengur!

Það er nóg að gera í afmælum þessa helgi! Í dag á hann Örvar bróðir Unu og frændi Iðunnar afmæli. Reyndar er hann Örvar svo fit eftir öll langhlaupin síðustu mánuði að hann er frekar að yngjast með hverjum deginum, og ekki spilla sjóböðin - allt þetta kalda vatn er svo gott fyrir húðina! Til hamingju með daginn elsku Örvar okkar!!!!
laugardagur, 24. janúar 2009
Thomas og Jill
Hér gleymdist að geta þess að á föstudag fórum við öll í brúðkaup hjá Thómasi og Jill Cucchi. Fámennt en góðmennt og yndislega gaman hjá okkur öllum. Fyndnast var samt þegar brúðguminn varð svo hrærður að hann gleymdi nafninu sínu. Iðunn gerði mikla lukku á pöbbnum eftir vígsluna, en því miður var hún aðeins of lúin eftir leikskólann til að við kæmumst í matinn á eftir. Von er á baby Cucchi eftir 3 mánuði svo Thómas er búinn að æfa sig á Iðunni....henni finnst hann svoooo skemmtilegur! Óskum við Monsieur et Madame Cucchi til hamingju með daginn.
Langþráður laugardagur
Langþráður laugardagur loksins lentur. Náttföt fram að hádegi. Göngutúr í köldu og björtu veðri. Rólóferð og óteljandi hundar á leiðinni. Smartjakki keyptur á kostakjörum handa húsbóndanum. Kaffi á Costa í rólegheitum. Neðri hæðin tekin í gegn svo frúin hætti að stressa sig á óreiðunni. Reyktur fiskur í kvöldmat. Kertaljós og kósíheit hjá hjónakornunum eftir háttatíma heimasætunnar. Gaman núna!
Jóhannes afmælisbarn!
fimmtudagur, 22. janúar 2009
Búsáhöldin barin
miðvikudagur, 21. janúar 2009
Roðinn í austri
Hér í Victoria Road fylgjumst við með ástandinu á Íslandinu góða af miklum áhuga.....verðum að viðurkenna að sósíalistahjörtun slá hraðar þegar þjóðin rís loks upp í byltingarhug....
Minnsti sósíalistinn er samt svoldið lítil sér í dag.....breytingar síðustu daga farnar að hafa áhrif og hún á í erfiðleikum með að átta sig á hlutunum og því var ansi erfitt fyrir örmagna stelpu að sofna í kvöld. Í skyldum fréttum er von á smiðum hingað í vikulokin að klára stelpuherbergið svo það lítur út fyrir að við getum komið á stabílu umhverfi fyrir heimasætuna innan næstu tveggja vikna (eigið herbergi, engin ferðalög, engir húsgagnaflutningar)...þá mun taka við svefnþjálfunin mikla....
Við óskum byltingarsinnuðum Íslendingum góðrar nætur.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
