
Það er nóg að gera í afmælum þessa helgi! Í dag á hann Örvar bróðir Unu og frændi Iðunnar afmæli. Reyndar er hann Örvar svo fit eftir öll langhlaupin síðustu mánuði að hann er frekar að yngjast með hverjum deginum, og ekki spilla sjóböðin - allt þetta kalda vatn er svo gott fyrir húðina! Til hamingju með daginn elsku Örvar okkar!!!!
3 ummæli:
Mikið að gera í dag. Fyrst afmæliskaffi hjá Örvari og í beinu framhaldi afmælisbjóð hjá Jóhannesi, afmælisbarni gærdagsins. Gaman núna!Sakna þess að hafa ykkur ekki með.
Koss og knús frá ömmunni í turninum.
Takk fyrir forsíðuna, kv Örvar
ú, ég fékk líka að vera á forsíðunni. Heppin ég!
kv,
Hildur
Skrifa ummæli