laugardagur, 31. janúar 2009

Listaverk


Iðunn kom heim með ný listaverk úr leikskólanum fyrir helgi. Undurfögur og vel þess virði að setja upp á vegg. Hún vildi náttúrulega endilega koma þeim á bloggið svo aðrir geti líka dáðst að þeim. Nú þurfa foreldrarnir bara að koma sér upp listaverkavegg svo þau geti notið sín sem best.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er alveg sammála Iðunni að þetta eru snilldar listaverk.
FK amman

Nafnlaus sagði...

Litla skræpan sver sig í móðurættina í litagleðinni. Þetta er bara byrjunin á endalausum straumi listaverka, sem stoltir foreldrar þurfa að halda til haga. Ég á ennþá svipuð verk sköpuð af mömmunni hennar.
Amman í turninum