mánudagur, 6. júlí 2009

Bómullardagur grasekkju og ekkills



Í dag halda eplahjónin upp á tveggja ára brúðkaupsafmæli! Tvö ár liðin síðan við giftum okkur Í Durham kastala, en samt er eins og það hafi gerst í gær - þó margt hafi reyndar á daga okkar drifið síðan.
Verra er að ég mun halda upp á daginn heima með Iðunni, en Helgi verður á fundum í allan dag, svo forritunarmatarboði í York og loks gistir hann á Bed and Breakfast aleinn og fjarri fjölskyldunni í nótt. Ófremdarástand!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn kæru hjón!

Gat eiginmaðurinn ekki fengið að taka konuna sína með sér á B&B?

kv,
Hildur

amma fk sagði...

Til hamingju með brúðkaupsafmælið, krakkar mínir!! Þið eruð mestu sæmdarhjón.