miðvikudagur, 1. júlí 2009

Strandfjölskyldan á ströndinni




Hér er enn alveg yndislegt veður, næstum of heitt! Hitinn í dag fór upp í tæp 30 stig, blankalogn og skínandi sól, og þá er bara eitt í stöðunni: að skella sér á ströndina! Þannig að í dag og í reyndar líka í gær eyddum við eftirmiðdeginum á ströndinni í Bjarret. Veslings Helgi var reyndar fastur heima í vinnu og á fundum báða dagana, en hann var kannski bara feginn að fá smá rólegheit. Bjarret varð fyrir valinu þar sem Tina stjúpsystir mín býr þar, og ströndin er barnvæn og afskaplega grunnt langt langt útí sjó. Iðunni þótti ströndin algjört æði! Risastórt bað með endalausu vatni, og þar að auki krakkar til að leika sig við.
Spáð góðu næstu daga og á morgun skreppum við til Höllu frænku.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er ekki langt frá því að öskra af öfund! Eins gott að þið komið með góða veðrið með ykkur. Það má samt alveg vera rigning til 17. júlí (svona fyrir gróðurinn) +

:)

kv,
Hildur

Nafnlaus sagði...

hjúkket....18°C og sól hér á höfuðborgarsvæðinu á morgun og ég er í fríi. Er ekki alveg jafn abbó núna yfir ströndinni :)

kv,
Hildur

Nafnlaus sagði...

Ég er grææææææææææææn af öfund, þó hér sé reyndar skikkanlegasta veður á íslenskan mælikvarða, en engin strönd. Get ekki beðið eftir að komast í frí á morgun.

Fagurgræna amman í turninum