Við breikkuðum aðeins sjóndeildarhringinn síðustu daga og héldum til Danaveldis. Í gær fórum við til Höllu frænku í Hvalsö þar sem vel var tekið á móti okkur að vanda - Iðunni fannst ofsalega gaman að hitta Höllu, og ekki spillti fyrir að fara þaðan með fiðrildakjól og lítinn Lubbahund.
Við Helgi vorum reyndar að undrast hve margir voru á leið í ferðalag með bakpoka fulla af bjór og skildum ekkert í þessum þorsta lestarferðalanga fyrr en loks rann upp fyrir okkur ljós að þessa helgi er víst einhver pínulítil tónlistarhátíð í Hróarskeldu, rétt hjá Höllu.....
Í dag vörðum við deginum í Köben, hittum þar Binna og systur hans, og sátum í sólinni og drukkum Tuborg og hvítvín. Helgi var svo heppinn að komast á ofurútsölu í Illum þar sem biðu hans Paul Smith ullarjakkaföt á 70% afslætti sem alveg smellpössuðu á eplapabba. Á sömu útsölu náði Iðunn sér í Okker Gokker pollagalla fyrir næsta vetur - þau verða klárlega best klædda fólkið í Barnard Castle í haust.
Góður dagur, en allir lúnir!
2 ummæli:
Sæta sumarfellinga-stelpa...núna ertu alveg að koma heim! :)
kv,
Hildur
Glaðleg og sæt mynd af frænkunum skellihlæjandi. Halla frænka kann lagið á svona sætum stelpum.
Skrifa ummæli