Hún Fanney föðuramma Iðunnar, prjónasnillingur og Iðunnaraðdáandi, á sextugsafmæli í dag. Við óskum henni innilega til hamingju með daginn og biðjumst um leið afsökunar á seinu bloggi vegna fjarveru eplamömmu - hún var í Bolton í dag að fræða almúgann um uppruna mannsins, og komst ekki í tölvu fyrr en seint í kvöld.
PS Ferðin til Englands gekk vel, en við finnum ekki hleðslutæki myndavélarinnar svo engar nýjar myndir fyrr en um helgi þegar við höfum tíma til að leita.
Kv. Una uppgefna
3 ummæli:
Til hamingju með afmælið amma Fanney.
Hin amman
Til hamingju með daginn Fanney!
kv,
Hildur
sætar nýju myndirnar í albúminu! :)
kv,
Hildur
Skrifa ummæli