þriðjudagur, 1. september 2009

Barnard Castle


Fjölskyldan er komin til Barnard Castle - við verðum hér í 10 daga í þetta sinn en þá förum við Iðunn aftur til Íslands í tæpan hálfan mánuð. Ferðin hingað gekk vel, þrátt fyrir "smá" stress á Glasgow þar sem við höfðum ekki ætlað okkur alveg nægan tíma í flugvélaskipti,sérstaklega í ljósi lengstu passasköðunarraðar sem ég hef á ævi minni séð.....hleypt var inn í hollum. En eftir hlaup eftir löngum löngum göngum, með Iðunni dinglandi í mömmu og pabba örmum, og "Would the final 3 remaining passengers to Newcastle please make their way IMMEDIATELY..." glymjandi í eyrunum náðum við vélinni!
Við vorum svo uppgefin eftir þetta allt að eplamamman var komin í rúmið fyrir klukkan átta og eplapabbi einungis klukkustundu síðar! Mamman fór svo í vinnu sína í morgun, en veslings pabbinn kom engu í verk því ógerlegt reyndist að vekja heimasætuna í morgun og var hún því heima hjá pabba sínum í dag, svona til að jafna sig. Leikskóli á morgun, og verður vonandi mikið fjör, enda stúlkan alltaf að biðja um "krakka krakka"
Nóg í bili, reyni að skrifa nokkuð reglulega næstu daga - ég veit að Fríða mín mamman hennar Maríu Dísar skoðar okkur alltaf af spítalanum og vonast eftir nýjum póstum - rétt eins og ömmurnar okkar yndislegu.
Toodiloo!

PS Við biðjum alla að hugsa fallega til Maríu Dísar sem fer aftur til Boston í fyrramálið - í þriðja sinn á stuttri ævi. Hún er hetjan okkar!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaman að fá aftur blogg sér til upplyftingar, en ennþá betra og skemmtilegra að hafa stelpuna sína í göngufæri. Flýttu þér aftur heim litla Iðunn!
Amman í turninum

Nafnlaus sagði...

Gaman að fá svona einkapóst inn í miðju innleggi :)

Já hér er alltaf skoðað og verður skoðað enn meira þegar maður er að eyða tímanum við spítalarúmið svo það er enn meiri pressa á nýjar færslur ;)

Gott að þið komust á leiðarenda heil og húfinn :D

Fríða og María Dís