Hér koma örfréttir af Iðunni leikskólastelpu.
Iðunn fór á skólann sinn í dag, í fyrsta sinn í sjö vikur. Hún var voða spennt á leiðinni - talaði endalaust um krakka og dót og róló og annað því um líkt. Þegar á hólminn var komið varð hún samt pínu feimin og fékk dúkkuna með ser, svona til halds og trausts. En hún knúsaði samt fóstruna og kyssti mömmu bless án þess að kvarta. Það var bara mamman sem táraðist þegar hún horfði á eftir stelpunni sinni svo svakalega duglegri en samt með dauðahald á dúkkunni sinni. Allt gekk vel í dag, hún lék sér víst með dúkkur og tilheyrandi í allan heila dag, alltaf glöð og sæl, og borðaði allan matinn sinn upp til agna. Leikskólavist er alltaf erfiðari fyrir mömmur en börn.
4 ummæli:
Duglega, duglega stelpa! :)
kv,
Hildur
Elsku litla stelpan, endalaust að aðlagast nýjum og nýjum aðstæðum. Þá er gott að vita að hún hefur það sem öllu máli skiptir, öryggi og festu hjá góðu foreldrunum sínum. Þá er hún fær í flestan sjó.
Amma G, sem saknar hennar óskaplega.
Iðunn er veraldarvön dama. Betra væri samt að geta verið hjá ömmunum þegar foreldrarnir eru að vinna. Við hlökkum til að fá að passa í Hafnarfirðinum, þótt rólóarnir þar standist ekki gæðakröfur Iðunnar.
Dugleg stelpa... mér finnst svolítið lík Hafsteini á þessari mynd... ja eða hann henni ;)
Kveðja
Gunna
Skrifa ummæli