Hér hefur ekkert verið bloggað í 9 daga og mesta furða að ömmurnar séu ekki farnar að kvarta. Margar ástæður fyrir því - einna helst of mikil vinna eplamömmu og andleysi á kvöldin sem vinnunni fylgir. Eins vorum við í Cambourne fjóra af dögunum 9, í heimsókn hjá Þórði, Eyrúnu og börnum, sem við gistum hjá - og Söru, Davíð og strákum sem við áttum líka yndislegar stundir með. Sara var líka svo góð að gefa Iðunni tvær bækur, svo nú er til eitthvað nýtt að lesa fyrir svefninn. Svona erum við heppin að eiga vini sem eru með bókaútgáfu (Unga Ástin Mín).
Iðunni fannst svo gaman að vera innan um alla þessa krakka. Hún lék sér allan liðlangan daginn við Hrannar og Heiðar Þórðarsyni, og ekki spillti fyrir þegar Hávar og Alvar Davíðssynir bættust við. Hún skoppaði t.d. fram úr rúminu á þriðjudagsmorgun, hljóp fram á gang og kallaði hátt og snjallt "Halló krakkar!", og þá gall í litla gutta "Halló" innan úr sínu herbergi. Bara yndisleg, öll þessi börn. Hrannar, sá eldri var líka endalaust góður við Iðunni. Ég fékk hann með mér í að reyna að vinna á baðskelfingunni miklu sem hefur hrjáð Iðunni alveg síðan í sumar, og hann buslaði og hló af lífs og sálar kröftum og sýndi Iðunn hve gaman er að vera í baði. Það virðist hafa virkað, því eftir að hafa rætt mikið við mömmu um baðið og krakkana eftir heimkomuna á þriðjudag fékkst litla pæjan loks til að koma með mömmu sinni í bað, og eftir smá grát skemmti hún sér bara stórvel, og fór sæl uppúr eftir ansi langa stund, svo vonandi stendur þetta allt til bóta.
Á mánudaginn þurfti ég á fund í London, og þá nýttu Iðunn og Helgi tækifærið og skruppu í London Zoo, sem Iðunni þótti ansi merkilegur staður, þó hún hafi ekki kannast við alveg öll dýrin, enda hafa mamma og pabbi átt ansi erfitt með að finna út úr hvað sum dýrin segja - t.d. gíraffinn, og lamadýrið....
Myndir af heimsókninni suður í land má finna á myndasíðu Iðunnar sem linkað er á hér til hægri.
2 ummæli:
Ömmurnar eru einstakar geðprýðiskonur, sem þekkt er. Annars væru þær löngu farnar að kvarta. En nú tekur þessi amma gleði sína aftur.
Amman á leiðinni 13.11.
Satt er það að ömmurnar eru annálaðar gæðakonur.
En mikið var ég glöð að fá nýjar fréttir af Iðunninni minni í dag.
Skrifa ummæli