Rigningardagur í dag, en samt er öllum nauðsynlegt að fara út að fá sér ferskt loft - líka bangsa.
Fórum á rólóvöll og svo stillti Iðunn sér upp í haustlitadýrðinni, enn nóg af fallegum haustlaufum í Barnard Castle þó langt sé liðið á októbermánuð.
Svo var farið heim og litli listamaðurinn dundaði sér við listaverkagerð fram að kvöldmat - sem sagt tíðindalítill en ágætur dagur.
2 ummæli:
Búraleg með bangsann sinn, glaðbeitt í bleytunni og einbeitt við litabókina. Sætasta stelpan í sínum aldursflokki. Farin að telja niður.
Amman á leiðinni
Frábært hve lífið er einfalt á þessum aldri, bara að komast út á róló og engar áhyggjur.
Skrifa ummæli