sunnudagur, 25. október 2009

Sunnudagurinn langi


Hér var klukkunum breytt aðfaranótt sunnudags, og vetrartími genginn í garð, þ.e. sami tími hér og er heima á Íslandi. Haustdagur með roki og rigningu, svo lítið annað hægt að gera enn að dunda sér innivið. Fórum þó aðeins til Darlington í bíltúr og matarinnkaup. Mamman bakaði brauð sem féll vel í kramið á öðrum fjölskyldumeðlimum, og svo kveiktum við á kertum og nutum kvöldrökkursins sem féll strax um fjögurleytið. Allir voru uppgefnir eftir að hafa þurft að vaka klukkutímanum lengur en venjulega, og Iðunn litla endaði á að standa upp úr sæti sínu rétt fyrir klukkan 19, grípa snudduna sína og lýsa yfir að "Ijunn lúlla núna (með) teppi", dró svo ullarteppi og bakpokann sinn með sér upp stigann í átt að herberginu sínu. Þar sofnaði hún svo alveg útkeyrð, aldrei þessu vant án þess að vera i í gúmmistígvelum.
Myndin var tekin við morgunverðarborðið, að neðan má sjá hana í sama stól fyrir ári. Minna hár og meiri kinnar í okt 2008, en að öðru leyti ansi lík sjálfri sér.

2 ummæli:

amma fk sagði...

Bull er þetta að vera að breyta klukkunni í tíma og ótíma. Gott að vita að nú eruð þið á réttu róli þ.e. sama róli og við hér á klakanum.

Nafnlaus sagði...

Það eru nú gott, þegar börnin hafa vit fyrir foreldrunum! Satt er það, hún hefur ekki mikið breyst þessi elska. Flott nýtt útlit á blogginu.

Amman á leiðinni