föstudagur, 11. desember 2009

Iðunn tveggja ára!



Elsku yndislega Iðunninn okkar á tveggja ára afmæli í dag. Fallega stelpan okkar sem veitir okkur svo ómælda gleði og kemur okkur stöðugt á óvart með skemmtilegheitum og endalausum gáfum (eins og hún á náttúrulega kyn til í báðar ættir). Dagurinn byrjaði á leikskólanum - pabbi hafði bakað fína súkkulaðiköku sem allir fengu að smakka, og það voru ansi margir súkkulaðiklístraðir munnar á Bangsadeildinni þegar við komum að sækja dömuna eftir hádegismatinn. Mamman er nefnilega lasin með mikinn hita og treysti sér ekki til að vinna lengur eftir að hún var búin með kennslu dagsins.
Þegar heim var komið voru opnaðir pakkar - Iðunn fékk fínan kjól og bangsa frá afa og ömmu í Sólskinsgötu, inniskó frá ömmu Fanneyju, og dúkku frá Donnu. Mamma og pabbi höfðu pantað gjöf á netinu en því miður tókst ekki betur til en svo að gjöfin kom ekki í tæka tíð. En kannski er bara meira gaman að dreifa pakkaopnuninni á fleiri daga!

Að neðan má sjá Iðunni þennan sama dag í fyrra, og í hitteðfyrra - aðeins minni, en alltaf jafn yndisleg!


3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með skvísuna :D

Kveðja frá okkur öllum í Hólmasundinu :D

amma fk sagði...

Iðunn var ótrúlega flott stelpa þegar hún fæddist fyrir tveimur árum og hún verður flottari og flottari með hverju árinu.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið litla Iðunn mín þó seint sé.
Amman komin frá Ameríku