Mikil var gleðin á Grundarstígnum í morgun þegar við litum út um gluggann og sáum jólasnjóinn. Betra seint en aldrei, enda margir jóladagar eftir enn! Iðunn fór í fyrsta sinn á snjóþotu og fannst það rosalega mikið sport. Enn betra var svo þegar mamma og pabbi fóru með hana á Arnarhól og renndu sér þar niður brekkur - þvílíkt stuð! Meija njó meija njó söng heimasætan og hámaði í sig snjóinn!
1 ummæli:
Hún Iðunn á aldeilis fína húfu sem fer henni svona líka ljómandi vel ! ;) kv. Eygló
Skrifa ummæli