Eplamamma er komin frá Hanoi eftir langa og strembna, en jafnframt skemmtilega ráðstefnu. Hanoi var skemmtileg borg og mannlífið ansi áhugavert. Sérstaklega var umferðarmenningin framandi - ég sá flest 5 manns á einni vespu, og eins sá ég mann með ca. 40 gullfiska, sinn í hverjum plastpokanum hangandi af grind á reiðhjólinu sínu. Framandi þjóðfélag, en fólkið yndislegt og maturinn góður - væri alveg til í að koma þangað aftur!
Iðunn var voða glöð að sjá mömmu sína, og er búin að vera mikil mömmustelpa í allan dag, þannig að það er eins gott að mamman gat tekið sér frí. Vinnudagur á morgun að venju. Í fjarveru minni hafði amma Fanney komið og létt undir, og jafnframt fært heimasætunni vettlinga og lambhúshettu sem ekki veitir af hér í Durham. Rigning og trekkur í dag.
Nóg í bili. Er ansi andlaus eftir 50 svefnlausar stundir...
6 ummæli:
Falleg mynd af ykkur mæðgum. Litla Iðunn fegin að vera komin í mömmufang.
Amman sem saknar ykkar
Alltaf er nú best að vera hjá mömmu sinni, þótt pabbinn og amman hafi reynt sitt besta.
Til hamingju með afmælið Iðunn mín! :)
æ þetta var sko Hildur frænka :)
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ,
elsku Iðunnin okkar
afinn og amman í Hafnarfirði
Til hamingju með afmælið þitt Iðunn mín!
kv. Eygló frænka
Skrifa ummæli