Eplamamma og eplapabbi brunuðu í IKEA í dag á meðan daman var í leikskólanum og versluðu ýmislegt sem vantaði á heimilið, svo sem gardínur í hjónaherbergi og fatahengi. Eins var löngu kominn tími á að daman fengi sinn eigin stól, eins og Dagur frændi heima á Íslandi. Iðunni finnst stóllinn æðislegur, og hentar vel til séríosáts og sjónvarpsáhorfs. Frekari fréttir af innkaupum á næstu dögum
föstudagur, 2. október 2009
A personal chair
Eplamamma og eplapabbi brunuðu í IKEA í dag á meðan daman var í leikskólanum og versluðu ýmislegt sem vantaði á heimilið, svo sem gardínur í hjónaherbergi og fatahengi. Eins var löngu kominn tími á að daman fengi sinn eigin stól, eins og Dagur frændi heima á Íslandi. Iðunni finnst stóllinn æðislegur, og hentar vel til séríosáts og sjónvarpsáhorfs. Frekari fréttir af innkaupum á næstu dögum
laugardagur, 26. september 2009
Loksins helgi
Sjaldan hefur verið beðið jafn lengi eftir nokkurri helgi og þessari í Victoria Road. Öll fjölskyldan á sama stað. Erfið vika að baki - workshop eplapabba, ferðalag Iðunnar og mömmu, og fyrirlestrarferð mömmunnar til Bolton, svo ekki sé minnst á alla vinnuna sem varð að eiga sér stað fyrir bæði workshop og fyrirlestrahald. Kominn tími á afslöppunarhelgi og samverustundir. Sólarspáin rættist líka svo ekki var það verra. Við vorum reyndar vöknuð klukkan 6 því yngsta fjölskyldumeðlimnum fannst það tilvalinn tími til að klæða dúkkur og skrafa um heima og geima. Brauðgerðarvélin stóð fyrir sínu og var tilbúin með nýbakað heilhveiti, valhnetu og sólkjarnabrauð um 8, og Helgi og Iðunn hituðu kaffi og tóku með upp í svefnherbergi um svipað leyti. Yndislegt! Um ellefu fórum við út að vinna í garðinum, skárum niður runna sem voru að breyta garðinum okkar í hálfgerðan helli og náðum þannig haustsólinni góðu inni bakgarðinn. Að lokum var kíkt á tvo rólóa, heilsað uppá Barböru, eldað sjávarréttarisotto og skrafað í síma við Kötu vinkonu.
Góður dagur að kvöldi kominn - myndir á myndasíðunni...
fimmtudagur, 24. september 2009
Ammælisamma
Hún Fanney föðuramma Iðunnar, prjónasnillingur og Iðunnaraðdáandi, á sextugsafmæli í dag. Við óskum henni innilega til hamingju með daginn og biðjumst um leið afsökunar á seinu bloggi vegna fjarveru eplamömmu - hún var í Bolton í dag að fræða almúgann um uppruna mannsins, og komst ekki í tölvu fyrr en seint í kvöld.
PS Ferðin til Englands gekk vel, en við finnum ekki hleðslutæki myndavélarinnar svo engar nýjar myndir fyrr en um helgi þegar við höfum tíma til að leita.
Kv. Una uppgefna
laugardagur, 12. september 2009
Helgalausar á heimaslóð
Við Iðunn erum heima á landinu fagra en Helgalausar í þetta sinn. Ætli það sé manni ekki hollt af og til að taka sér svona "single-parent" móment - a.m.k. hef ég sjaldan verið þakklátari fyrir hann Helga minn en akkúrat núna. Iðunnin okkar er náttúrulega yndislega góð stelpa, sem vekur mömmu sína með kossum og "aaaaaaaaahhhh mamma kyssa kyssa" og er alltaf glöð og sæl, en ég sakna þess að eiga ekki stundum Iðunnarlausa stund inn á milli - og ég er sérlega meðvituð um hve ég er slæmur skemmtikraftur því barnið er aldrei sælla en þegar farið er á róló eða bókasafn eða aðra staði þar sem "kakka" er að finna.
Í dag var skemmtilegur dagur, því við vorum búin að mæla okkur mót við Ásdísi Maríu og Tómas Atlabörn á Tjarnarborgarróló klukkan 10.30 - þvílíkt stuð!! Það var mikið mokað og hlaupið og rennt og rólað, og eina fólkið sem skemmti sér ekki eins vel voru mömmurnar sem voru alveg að krókna úr kulda í haustsuddanum. Eftirá var farið heim til þeirra á Brávallagötu í kaffi, og þaðan í göngutúr á meðan Iðunn svaf, og dagurinn endaður á "Bóka, bóka" safninu, sem er búið að vera bjargvættur mömmunnar í slagviðrinu síðustu daga. Á morgun verður annar góður dagur því Iðunn fer í Sævanginn til ömmu og afa, og mamman ætlar að reyna að skrifa fyrirlestra mánudagsins.
þriðjudagur, 8. september 2009
Iceland in the morning...
*Lúin Iðunn hvílir sig eftir langan dag*
Eftir stutt stopp í UK erum við mæðgurnar á leið til Íslands í fyrramálið svo mamman geti lokið kennsluskyldunni í HÍ og Iðunnin hitt ömmurnar sínar og afa aðeins meira. Helgi verður eftir til að einbeita sér að forrituninni. Við þurfum að vakna klukkan 03.30 í fyrramálið til að komast út á völl, en samt er algjört kæruleysi í gangi hér á bæ - hvorki búið að pakka né finna passana klukkan að verða níu að kvöldi.
Annars er helst í fréttum að Iðunn varð fyrir lúalegri árás í dag - drengur beit hana í ennið svo stórsá á henni. Hún kippti sér nú reyndar ekki mikið upp við það - tár í nokkrar mínútur og svo "búbbúja" (allt búið). Mér fannst samt heldur hallærislegt þegar að leikskólakennarinn neitaði að segja mér hver hefði verið að verki þar sem það stríddi gegn einhverri nafnleyndarlöggjöf.....barnið er tveggja ára!
Nóg í bili - klakinn í fyrramálið...
laugardagur, 5. september 2009
Góður laugardagur
Loksins loksins var upprunninn dagur þar sem ekkert þurfti að gera og engar kvaðir lágu á familíunni. Iðunn hélt upp á daginn með að vakna eldhress klukkan 6. Jibbíjeiii!
Rétt fyrir átta var barið að dyrum og þar kominn pósturinn með pakka handa eplamömmu. Pakkinn reyndist reyndar við nánari athugun vera handa Iðunni, því hann innihélt barnabók og Iðunnarföt frá vinkonu minni henni Mary Ann í New Jersey. Iðunni leist strax vel á og dreif sig í nýju fötin og svo var bókin lesin mörgum sinnum!
Næst drifum við okkur á bændamarkaðinn og keyptum pylsur, ost og grænmeti, og ætluðum reyndar að ljúka bæjarferðinni á róló, en þá var heimasætan bara sofnuð í kerrunni sinni svo henni var frestað framn á kvöld.
Eftir hádegi skutluðumst við til Darlington og í TKMaxx þar sem Helgi græddi vetrarfrakka, mamman stæljakka og Iðunnin leikskólaskó - allt með miklum afslætti. Við spöruðum mun meira en við eyddum svo við komum bara út í plús! Reyndar höfðum við ekki áttað okkur á að þetta var síðasti verslunardagur fyrir skólasetningu hér í County Durham, svo bærinn var stútfullur af úrillum krökkum að kaupa skólaföt og töskur, svo við drifum okkur bara heim hið snarasta eftir TKMAxx.
Iðunn og pabbi drifu sig á róló á meðan mamma eldaðii Thai fiskisúpu sem allir (heimasætan meðtalin) hámuðu í sig af bestu lyst....mmmmmm.
Góður dagur - vonandi verður sunnudagurinn eins skemmtilegur!
fimmtudagur, 3. september 2009
miðvikudagur, 2. september 2009
Leikskólafréttir
Hér koma örfréttir af Iðunni leikskólastelpu.
Iðunn fór á skólann sinn í dag, í fyrsta sinn í sjö vikur. Hún var voða spennt á leiðinni - talaði endalaust um krakka og dót og róló og annað því um líkt. Þegar á hólminn var komið varð hún samt pínu feimin og fékk dúkkuna með ser, svona til halds og trausts. En hún knúsaði samt fóstruna og kyssti mömmu bless án þess að kvarta. Það var bara mamman sem táraðist þegar hún horfði á eftir stelpunni sinni svo svakalega duglegri en samt með dauðahald á dúkkunni sinni. Allt gekk vel í dag, hún lék sér víst með dúkkur og tilheyrandi í allan heila dag, alltaf glöð og sæl, og borðaði allan matinn sinn upp til agna. Leikskólavist er alltaf erfiðari fyrir mömmur en börn.
þriðjudagur, 1. september 2009
Barnard Castle
Fjölskyldan er komin til Barnard Castle - við verðum hér í 10 daga í þetta sinn en þá förum við Iðunn aftur til Íslands í tæpan hálfan mánuð. Ferðin hingað gekk vel, þrátt fyrir "smá" stress á Glasgow þar sem við höfðum ekki ætlað okkur alveg nægan tíma í flugvélaskipti,sérstaklega í ljósi lengstu passasköðunarraðar sem ég hef á ævi minni séð.....hleypt var inn í hollum. En eftir hlaup eftir löngum löngum göngum, með Iðunni dinglandi í mömmu og pabba örmum, og "Would the final 3 remaining passengers to Newcastle please make their way IMMEDIATELY..." glymjandi í eyrunum náðum við vélinni!
Við vorum svo uppgefin eftir þetta allt að eplamamman var komin í rúmið fyrir klukkan átta og eplapabbi einungis klukkustundu síðar! Mamman fór svo í vinnu sína í morgun, en veslings pabbinn kom engu í verk því ógerlegt reyndist að vekja heimasætuna í morgun og var hún því heima hjá pabba sínum í dag, svona til að jafna sig. Leikskóli á morgun, og verður vonandi mikið fjör, enda stúlkan alltaf að biðja um "krakka krakka"
Nóg í bili, reyni að skrifa nokkuð reglulega næstu daga - ég veit að Fríða mín mamman hennar Maríu Dísar skoðar okkur alltaf af spítalanum og vonast eftir nýjum póstum - rétt eins og ömmurnar okkar yndislegu.
Toodiloo!
PS Við biðjum alla að hugsa fallega til Maríu Dísar sem fer aftur til Boston í fyrramálið - í þriðja sinn á stuttri ævi. Hún er hetjan okkar!
sunnudagur, 23. ágúst 2009
Öppdeit
Fjölskyldan fór Norður í Ærlækjarsel um daginn, eins og sjá má á myndasíðunni hennar Iðunnar. Það var yndislegt eins og alltaf að koma norður í Sel, og svo fékk Helgi að fara sína fyrstu ferð á Sléttuna, og yfir Öxarfjarðarheiði. Annars höfum við lítið farið þar sem vinnuálag foreldranna í sumar býður ekki upp á marga frídaga.
Fram undan er brjáluð vinnuvika hjá Eplamömmu - 14 fyrirlestrar á einni viku, allir um efni sem hún kann ekki og hefur aldrei lært, og helmingurinn enn óskrifaður. En með hjálp Helga og góðra kvenna ætti það þó að takast. 31.ágúst förum við svo til Englands - Iðunn og Una koma svo aftur 10 dögum síðar til að eiga hálfan mánuð enn á landinu góða, en Helgi verður eftir í Englandinu.
Næsta blogg líklegast í Englandsferðinni....
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)