föstudagur, 25. nóvember 2011

Spennt!


Í dag kemur pabbi til okkar og Iðunn er orðin ansi spennt að sjá hann eftir rúma viku:
"Mamma veistu ég held ég finni pabbalykt úr flugvélinni og alveg hingað!"

Viðbót frá því síðar um daginn er við mæðgur fórum í göngutúr:
Lyktin af pabba hún er sko miklu miklu góðari en ef þér og Gerði, mamma! En lyktin af mér er miklu miklu miklu miklu miklu góðari en af ykkur öllum. Hún er lang best!"

fimmtudagur, 24. nóvember 2011

Góð lykt



Iðunni þykir lyktin góð af litlu systur - einu sinni sagði hún meira að segja að það væri piparkökulykt af kúkableyjunum....(mamman er ekki alveg eins viss um það).

miðvikudagur, 23. nóvember 2011

Hreinar stelpur

Í dag fór Gerður í baðkar í fyrsta sinn, og fyrsta sinn í fylgd stóru systur.  Stóra systir var mjög ábyrgðarfull. Dugleg stelpa hún Iðunn okkar.
Rendar ýtti amma á vitlausan takka nokkrum sekúndum eftir að þessi mynd var tekin og sendi þar með ískalt vatn úr öllum áttum á þær systur - þeim brá svakalega og allir orguðu....en jöfnuðu sig þó brátt svo ég held að það sé óþarfi að kalla til áfallahjálparteymi. Sem betur fer eru engir svona takkar í baðinu okkar heima svo það ætti að vera óhætt að endurtaka baðferðina þar.

Nýr nærbolur!


Ótrúlegt en satt þá keypti antibleika mamman þennan nærbol.  Hann gerði vægast sagt mikla lukku!

Enn meiri fréttir


Fyrstar ber að nefna þær merkisfréttir að Louise systir mín eignaðist dreng í gær eftir langa fæðingu sem endaði í keisaraskurði eftir marga klukkutíma með 10 í útvíkkun og hríðarstopp.  Allir ofsa glaðir eftir mikið stress.  Móður og barni heilsast vel.  Nú er verst að komast ekki til Stockhólms að sjá hann.
Enn merkilegra þótti Iðunni að fara í heimsókn til Kristu vinkonu sinnar af Grænuborg sem dvelur nú í Malmö meðan foreldrarnir svipast um eftir húsnæði í Gautaborg.  Það voru miklir fagnaðarfundir og þær léku sér á róló og við föndur heima í heila 6 tíma.  Mamman náði meira að segja að skreppa aðeins í bæinn að versla hversdagsföt á Iðunni og forskoða jólagjafir.  Iðunn fær svo vonandi að fara aftur í heimsókn áður en við förum heim - gaman gaman!


Mamman var eitthvað léleg að mynda í gær svo hér birtast myndir sem tengjast fréttunum ekki neitt.

mánudagur, 21. nóvember 2011

Miklar framfarir

Hér í Svíþjóð gerast undur og stórmerki á mánudagsmorgnum (Gerður er 11 vikna og 6 daga gömul):

Svona skildi ég við Gerði á meðan ég fór að klæða mig

....og svona kom ég að henni.

Fréttir úr þokulandi

Enn er allt rólegt í Sverige og þokunni ekkert farið að létta.  Gerður var böðuð í þvottahúsvaskinum á sunnudagskvöldið og þótti það heldur þröngt og hallærislegt og gargaði því allan tímann - því miður náðust ekki af því nokkrar myndir, enda mamman upptekin við að hafa stjórn á blautri stelpu.Annars hafa báðar stúlkur verið eins og hugur manns, yndislegar og duglegar eins og alltaf.
Fréttir berast frá Ísalandi að pabbinn hafi málað allt gestaherbergið og ganginn, en gangi heldur hægt með hitt.  Undirbúningsvinnan var víst tímafrek.  Við verðum þó fegin að geta tekið gestaherbergið í gagnið þegar við komum heim.  Einnig stendur víst til að flísaleggja því flísarnar okkar eiga loksins að vera komnar til landsins þegar við erum komin frá Svíþjóð.

Í gönguferð með vagnana - röltum fram í myrkur og fórum á tvo rólóa!
Á morgun, þriðjudag, fer Iðunn til Malmö að hitta vinkonu sína, hana Kristu af Grænuborg, og hlakkar mikið til!

sunnudagur, 20. nóvember 2011

Litla Lína og enn minni Lína


Litla Lína
Ennþá minni Lína
Það er eitthvað skrýtið við vatnið í Sverige.  Hárið vex og breytir um lit.  Allir að breytast í Línu Langsokk!

Crazy crazy!


Hér er svo sem ekki margt gert af viti, svo við höfum til dæmis dundað okkur við að taka hálf crazy myndir í speglinum inní afa og ömmu herbergi.  Þessi ofan er sú besta af okkur öllum þremur.  Iðunn vildi endilega fá mynd af bara sér í fanginu á mömmu.  Þegar ég skoðaði myndina kom hún mér kunnuglega fyrir sjónir....skrýtið hvernig maður getur tekið nánast sömu myndina tvisvar með margra ára millibili - meira að segja svipurinn á Iðunni er nákvæmlega eins.

laugardagur, 19. nóvember 2011

Systur í Svíaveldi


Nú eru systurnar komnar í heimsókn til afa Viðars, og Gerður í fyrsta sinn til útlanda.
Ferðin gekk ansi vel, Iðunn var dugleg að hjálpa mömmu og báðar stelpurnar voru mjög stilltar, fyrir utan þá litlu stund sem Gerður fékk í eyrun í lendingunni.  En það leið hjá fljótt og allir voru hressir þegar afi sótti okkur út á Kastrup.
Fyrsta daginn vorum við einar hér með afa, en í gærkvöldi komu svo Jóhann og amma Titti aftur heim eftir ferðir sínar (í sitt hvoru lagi) til Stockhólms - það var gaman að fá loks að hitta þau, og amma Titti var voða ánægð með þær báðar (eins og reyndar afi lika).
Hér í Svedala ganga dagarnir heldur rólega fyrir sig.  Við erum búnar að kanna matvöruverslunina, bókasafnið og rólóvöllinn, og það eru komnar inn einhverjar myndir á myndasíðu Gerðar. Við söknum pabba svoldið mikið, en vonum að hann nái að njóta þess að vera stelpulaus í nokkra daga - fær að forrita að vild, drekka bjór og gera aðra karlmannlega hluti.
Kær kveðja frá Sverige,
Iðunn, Gerður og ásynjumamman