Hér er svo sem ekki margt gert af viti, svo við höfum til dæmis dundað okkur við að taka hálf crazy myndir í speglinum inní afa og ömmu herbergi. Þessi ofan er sú besta af okkur öllum þremur. Iðunn vildi endilega fá mynd af bara sér í fanginu á mömmu. Þegar ég skoðaði myndina kom hún mér kunnuglega fyrir sjónir....skrýtið hvernig maður getur tekið nánast sömu myndina tvisvar með margra ára millibili - meira að segja svipurinn á Iðunni er nákvæmlega eins.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli