Enn er allt rólegt í Sverige og þokunni ekkert farið að létta. Gerður var böðuð í þvottahúsvaskinum á sunnudagskvöldið og þótti það heldur þröngt og hallærislegt og gargaði því allan tímann - því miður náðust ekki af því nokkrar myndir, enda mamman upptekin við að hafa stjórn á blautri stelpu.Annars hafa báðar stúlkur verið eins og hugur manns, yndislegar og duglegar eins og alltaf.
Fréttir berast frá Ísalandi að pabbinn hafi málað allt gestaherbergið og ganginn, en gangi heldur hægt með hitt. Undirbúningsvinnan var víst tímafrek. Við verðum þó fegin að geta tekið gestaherbergið í gagnið þegar við komum heim. Einnig stendur víst til að flísaleggja því flísarnar okkar eiga loksins að vera komnar til landsins þegar við erum komin frá Svíþjóð.
 |
| Í gönguferð með vagnana - röltum fram í myrkur og fórum á tvo rólóa! |
Á morgun, þriðjudag, fer Iðunn til Malmö að hitta vinkonu sína, hana Kristu af Grænuborg, og hlakkar mikið til!
1 ummæli:
Skemmtilegar myndir af ykkur og auðsjánlega heilmikil aksjón.
FK
Skrifa ummæli