sunnudagur, 23. ágúst 2009

Öppdeit


Fjölskyldan fór Norður í Ærlækjarsel um daginn, eins og sjá má á myndasíðunni hennar Iðunnar. Það var yndislegt eins og alltaf að koma norður í Sel, og svo fékk Helgi að fara sína fyrstu ferð á Sléttuna, og yfir Öxarfjarðarheiði. Annars höfum við lítið farið þar sem vinnuálag foreldranna í sumar býður ekki upp á marga frídaga.
Fram undan er brjáluð vinnuvika hjá Eplamömmu - 14 fyrirlestrar á einni viku, allir um efni sem hún kann ekki og hefur aldrei lært, og helmingurinn enn óskrifaður. En með hjálp Helga og góðra kvenna ætti það þó að takast. 31.ágúst förum við svo til Englands - Iðunn og Una koma svo aftur 10 dögum síðar til að eiga hálfan mánuð enn á landinu góða, en Helgi verður eftir í Englandinu.
Næsta blogg líklegast í Englandsferðinni....

miðvikudagur, 22. júlí 2009

Íslandssumar


Hér hefur lítið verið bloggað, og líklegt að fátt verði um færslur næstu vikur þar sem eplin eru öll komin til eikarinnar - allir heima á Íslandi og lífið bara yndislegt. Við setjum samt alltaf inn myndir á myndasíðuna sem linkað er á hér til hliðar. Fyrstu helgina okkar heima var mikið prógram - fyrst ættarútilega Bótarættar á laugardag (við lágum ekki úti en fórum heim eftir kvöldgrillið), og svo tiltekt í Siggubústað við Þingvallavatn á sunnudegi, ásamt skemmtilegu fólki. Lítið er til frásagnar í þessari viku - við Iðunn höfum hitt ansi marga, og suma, eins og Friðrík Ólaf Guðmundsson Briem, í fyrsta sinn. Svo fór Iðunn í 18 mánaða skoðun í gær (aðeins of sein) og mældist 10,1kg og 80cm 19 1/2 mánaða gömul. Skoðunninni fylgdi sprauta, en sprautunni fylgdi enginn grátur, og bara eintóm gleði - svona er Iðunnin mikið hörkutól!

laugardagur, 11. júlí 2009

Lasin Iðunn...


...á leiðinni heim!
Iðunn er lasin. Með smá nefrennsli en aðallega háann hita sem enginn veit hvað veldur. Vonandi verður hann horfinn á morgun þegar við hefjum ferðalagið heim. Daníel skutlar okkur á lestarstöðina - þaðan lest til Kings Cross, neðanjarðarlest til Victoriu stöðvarinnar og lest þaðan á Gatwick. Þar munum við gista á Premier Inn og halda svo áfram til Íslands um hádegið á mánudag. Við getum ekki beðið eftir að komast heim!...en kvíðum svoldið ferðalaginu...
Hittumst heima!

miðvikudagur, 8. júlí 2009

Loksins loksins

...loksins erum við á leiðinni heim. Áætluð lending mánudaginn 13/7 rétt fyrir tvö eftir hádegi.....og verðum meira og minna heima í 11 vikur. Lífið gerist ekki betra!

mánudagur, 6. júlí 2009

Bómullardagur grasekkju og ekkills



Í dag halda eplahjónin upp á tveggja ára brúðkaupsafmæli! Tvö ár liðin síðan við giftum okkur Í Durham kastala, en samt er eins og það hafi gerst í gær - þó margt hafi reyndar á daga okkar drifið síðan.
Verra er að ég mun halda upp á daginn heima með Iðunni, en Helgi verður á fundum í allan dag, svo forritunarmatarboði í York og loks gistir hann á Bed and Breakfast aleinn og fjarri fjölskyldunni í nótt. Ófremdarástand!

sunnudagur, 5. júlí 2009

Borta bra men hemma bäst


Eplafamilían er komin heim í Victoria Road, eftir skemmtilega heimsókn til Skandinavíu. Litla daman var ekki lengi að koma réttri mynd á stofuna - kubbar útum allt gólf og allt á hvolfi!

föstudagur, 3. júlí 2009

Danmerkurferðir


Við breikkuðum aðeins sjóndeildarhringinn síðustu daga og héldum til Danaveldis. Í gær fórum við til Höllu frænku í Hvalsö þar sem vel var tekið á móti okkur að vanda - Iðunni fannst ofsalega gaman að hitta Höllu, og ekki spillti fyrir að fara þaðan með fiðrildakjól og lítinn Lubbahund.
Við Helgi vorum reyndar að undrast hve margir voru á leið í ferðalag með bakpoka fulla af bjór og skildum ekkert í þessum þorsta lestarferðalanga fyrr en loks rann upp fyrir okkur ljós að þessa helgi er víst einhver pínulítil tónlistarhátíð í Hróarskeldu, rétt hjá Höllu.....


Í dag vörðum við deginum í Köben, hittum þar Binna og systur hans, og sátum í sólinni og drukkum Tuborg og hvítvín. Helgi var svo heppinn að komast á ofurútsölu í Illum þar sem biðu hans Paul Smith ullarjakkaföt á 70% afslætti sem alveg smellpössuðu á eplapabba. Á sömu útsölu náði Iðunn sér í Okker Gokker pollagalla fyrir næsta vetur - þau verða klárlega best klædda fólkið í Barnard Castle í haust.

Góður dagur, en allir lúnir!

miðvikudagur, 1. júlí 2009

Strandfjölskyldan á ströndinni




Hér er enn alveg yndislegt veður, næstum of heitt! Hitinn í dag fór upp í tæp 30 stig, blankalogn og skínandi sól, og þá er bara eitt í stöðunni: að skella sér á ströndina! Þannig að í dag og í reyndar líka í gær eyddum við eftirmiðdeginum á ströndinni í Bjarret. Veslings Helgi var reyndar fastur heima í vinnu og á fundum báða dagana, en hann var kannski bara feginn að fá smá rólegheit. Bjarret varð fyrir valinu þar sem Tina stjúpsystir mín býr þar, og ströndin er barnvæn og afskaplega grunnt langt langt útí sjó. Iðunni þótti ströndin algjört æði! Risastórt bað með endalausu vatni, og þar að auki krakkar til að leika sig við.
Spáð góðu næstu daga og á morgun skreppum við til Höllu frænku.

sunnudagur, 28. júní 2009

Sumar i Svedala


Her i Svedala er sol og sumar og spad yndislegu vedri allan timann sem vid verdum her. Ferdalagid hingad gekk vel, en veslings Idunn nadi ser i einhverja magapest sem er buin ad gera okkur lifid leitt sidustu daga. Vid vonum bara ad hun se ad verda buin thvi mamman er ordin svoldid leid a ad skura og thvo thvott.




Annars er litla stelpan svo sem bara anaegd, og let sig ekki vanta i brudkaup gaerdagsins, tho hun hafi gubbad i bilnum a leidinni i kirkjuna (mamma var snör med poka og handklaedi, svo hvorki sulladist i sparifötin ne nyja bilinn hans afa Vidars). Brudkaupid var yndislegt: athofnin falleg, veislan skemmtileg og maturinn godur, og vedrid eins og thad gerist best a skandinavisku saelusumri.
Yndislegt!

miðvikudagur, 24. júní 2009

On the road again....


Eftir nokkra heimakæra mánuði er kominn tími til að leggja land undir fót á ný. Í fyrramálið förum við með flugi til Köben, og þaðan lest til afa Viðars og ömmu Titti í Svíþjóð. Tilefnið er ekkert slor: Louise systir eplamömmu og Henrik eru að fara að gifta sig á laugardaginn og okkur öllum boðið til veislu! Gaman gaman! Við mæðgurnar erum báðar búnar að splæsa í nýja partíkjóla og pabbinn gróf fram sumarskyrtuna sem við keyptum handa honum í fyrra en er nánast ónotuð vegna leiðindaveðurs í allt fyrra sumar. Spáin fyrir laugardaginn er góð - sól og 22C, það er annað en á brúðkaupsdaginn okkar! Við stefnum á að blogga eitthvað þessa 10 daga sem við erum í Sverige, og skella líka inn myndum af og til svo allir geti fylgst með.
Ta ra for now!