sunnudagur, 3. janúar 2010

Janúar




Árið 2010 byrjar vel. Veðrið hefur leikið við okkur - fallegur heiður himinn, frost, snjór yfir öllu til að lýsa upp skammdegið, það gerist vart betra í upphafi janúarmánaðar í Reykjavík! Við höfum notið þess að vera saman, og með fjölskyldu og vinum....notið þess að anda að okkur fersku lofti, og koma heim í hlýtt hús.
Ísland best í heimi!

föstudagur, 1. janúar 2010

Gleðilegt Nýtt Ár!


Eplafamilían óskar dyggum lesendum gleðilegs nýs árs!! Vonandi eigum við eftir að eiga margar skemmtilegar stundir saman 2010.

mánudagur, 28. desember 2009

Loksins loksins kom jólasnjórinn!




Mikil var gleðin á Grundarstígnum í morgun þegar við litum út um gluggann og sáum jólasnjóinn. Betra seint en aldrei, enda margir jóladagar eftir enn! Iðunn fór í fyrsta sinn á snjóþotu og fannst það rosalega mikið sport. Enn betra var svo þegar mamma og pabbi fóru með hana á Arnarhól og renndu sér þar niður brekkur - þvílíkt stuð! Meija njó meija njó söng heimasætan og hámaði í sig snjóinn!

föstudagur, 25. desember 2009

Gleðileg Íslandsjól!


Við óskum öllum lesendum Iðunnarbloggsins gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Mikið er yndislegt að vera komin heim til Íslands!

sunnudagur, 20. desember 2009

Bloggleysi


Hér hafa veikindi hamlað bloggskrifum. Eplamamma hefur verið lasin og lenti á spítala í fjóra daga, eftir ansi marga veikindadaga heimavið. Iðunn og pabbi hafa því þurft að bjarga sér sjálf síðasta hálfa mánuðinn - Helgi stóð sig auðvitað vel i heimilisstörfunum, en lýsti því yfir í dag hve hann er feginn að vera ekki einstæður faðir!
Á tímabili virtist sem við kæmumst ekki heim fyrir jól, en sem betur fer fór mamma gamla að skríða saman um helgina og er nú komin heim í Victoria Road, daginn fyrir heimferðina. Morgundagurinn verður eflaust strembinn, en mikið held ég að við verðum fegin þegar við lendum loks á Keflavík annað kvöld!

föstudagur, 11. desember 2009

Iðunn tveggja ára!



Elsku yndislega Iðunninn okkar á tveggja ára afmæli í dag. Fallega stelpan okkar sem veitir okkur svo ómælda gleði og kemur okkur stöðugt á óvart með skemmtilegheitum og endalausum gáfum (eins og hún á náttúrulega kyn til í báðar ættir). Dagurinn byrjaði á leikskólanum - pabbi hafði bakað fína súkkulaðiköku sem allir fengu að smakka, og það voru ansi margir súkkulaðiklístraðir munnar á Bangsadeildinni þegar við komum að sækja dömuna eftir hádegismatinn. Mamman er nefnilega lasin með mikinn hita og treysti sér ekki til að vinna lengur eftir að hún var búin með kennslu dagsins.
Þegar heim var komið voru opnaðir pakkar - Iðunn fékk fínan kjól og bangsa frá afa og ömmu í Sólskinsgötu, inniskó frá ömmu Fanneyju, og dúkku frá Donnu. Mamma og pabbi höfðu pantað gjöf á netinu en því miður tókst ekki betur til en svo að gjöfin kom ekki í tæka tíð. En kannski er bara meira gaman að dreifa pakkaopnuninni á fleiri daga!

Að neðan má sjá Iðunni þennan sama dag í fyrra, og í hitteðfyrra - aðeins minni, en alltaf jafn yndisleg!


mánudagur, 7. desember 2009

Komin frá Hanoi


Eplamamma er komin frá Hanoi eftir langa og strembna, en jafnframt skemmtilega ráðstefnu. Hanoi var skemmtileg borg og mannlífið ansi áhugavert. Sérstaklega var umferðarmenningin framandi - ég sá flest 5 manns á einni vespu, og eins sá ég mann með ca. 40 gullfiska, sinn í hverjum plastpokanum hangandi af grind á reiðhjólinu sínu. Framandi þjóðfélag, en fólkið yndislegt og maturinn góður - væri alveg til í að koma þangað aftur!


Iðunn var voða glöð að sjá mömmu sína, og er búin að vera mikil mömmustelpa í allan dag, þannig að það er eins gott að mamman gat tekið sér frí. Vinnudagur á morgun að venju. Í fjarveru minni hafði amma Fanney komið og létt undir, og jafnframt fært heimasætunni vettlinga og lambhúshettu sem ekki veitir af hér í Durham. Rigning og trekkur í dag.
Nóg í bili. Er ansi andlaus eftir 50 svefnlausar stundir...

sunnudagur, 6. desember 2009

mánudagur, 30. nóvember 2009

Amma FK komin



jamm

Iðunnarsakn

Mamman er nú ansi fjarri Iðunni, komin alla leið til Víetnam...búin að vera á ferðinni síðan á föstudag, og enn heil vika þar til hún kemur heim. Við erum samt búin að vera duglegar að skæpast....það er alveg yndislegt að eiga þó möguleika á að skrafa saman í gegnum netið. Annars gengur allt vel hér - skemmtilegt fólk, flott hótel, framandi mannlíf....góður matur. Frekari fréttir þegar ég kem heim.
Hanoieplið