| Samvinna |
fimmtudagur, 26. apríl 2012
Fréttir úr rigningunni
Ekki leikur veðrið við okkur og Bretana frekar en oft áður. Hér rignir og rignir og rignir....Iðunn hefur ekki notað aðra skó en stígvélin sín síðan við komum, og við erum öll orðin hálf gegnsósa, og enn sannfærðari um að allt sé best á Íslandi. Í dag rigndi svo mikið að vegum var lokað og við vorum heila eilífð að feta okkur heim eftir bakstigum Durham sýslu.
Mamman er enn hálf ósátt við að vera farin að vinna, og sér það alltaf betur og betur hve samfélagið á Íslandi er betra fyrir fjölskyldulífið. Þrátt fyrir þetta fer þó ágætlega um okkur og Helgi er að standa sig vel í barnauppeldinu á meðan frúin er í vinnu.
Gerður er glöð og góð að venju en alltaf óskup fegin að sjá mömmuna sína eftur eftir vinnudaginn. Spónamatur er aldrei jafn góður og mömmumjólk!
| Iðunn fyrir utan leikskólann sinn |
Annað er helst í fréttum að Iðunn er að fara að byrja á Yellow Wellies, gamla leikskólanum sínum sem hún hætti á í desember 2009. Við fórum í heimsókn á þriðjudaginn, og þó hún hefði verið smeyk í fyrstu glaðnaði yfir henni þegar hún sá dótið og eftir klukkutíma heimsókn með mömmu og pabba fékkst hún vart til að fara. Í dag fór hún svo og var ein í tvo tima og allt gekk vel; á morgun eru það þrír tímar, og svo er hún alveg byrjuð. Hún mun vera þarna 3 daga í viku, miðvikudag-föstudag, sömu daga og Alice vinkona sem hún er einmitt búin að fá að hitta og leika sér við í vikunni. Ég held að það muni vera gott fyrir hana að hafa börn til að leika sér við, þó það verði eflaust erfitt í fyrstu að vera hálf mállaus í skólanum - sérstaklega fyrir Iðunni mína sem er svo áköf að tjá sig.
| Iðunn og Alice |
| Stelpur í mömmuvinnu |
miðvikudagur, 25. apríl 2012
mánudagur, 23. apríl 2012
Fyrsti vinnudagurinn
Nú er fyrsti vinnudagurinn liðinn. Allt gekk vel heima - Gerður borðaði og drakk; Iðunn á enn svoldið erfitt en hafði samt frá mörgu að segja þegar ég kom heim. Þau höfðu farið á róló og kaffihús. Ég náði að vinna vel þrátt fyrir vöðvabólgu og hausverk og var komin heim upp úr kl 16 (var mætt 07,40). Nú eru allir algjörlega búnir eftir langan og erfiðan dag - stelpurnar voru sofnaðar kl 19 og mig grunar að Helgi sé sofnaður líka. Á morgun er heimsókn á nýja leikskólann.....
| Helgi var sofnaður! |
sunnudagur, 22. apríl 2012
Að vera algjörlega búin á því
Helgi fór til York á föstudags morguninn - við skutluðum honum á stöðina og eyddum svo deginum í að fara á tvo rólóa og skoða bakgarðinn og bakgötuna og ýmislegt annað dútl. Iðunn var með orkumesta móti enda er augljóst að hún er ekki alveg að fóta sig hérna í Englandinu. Hana langar bara aftur á Grænuborg og til vina og ættingja. Kl 15 var mamman orðin svoldið lúin , hlóð börnum og dóti í bílinn og lagði af stað til York - stelpurnar sváfu nær alla leiðina svo eyrun fengu smá hvíld.
Í York heimsóttum við Paul O´Higgins, konu hans Louise og Izzy (12 ára) og Maddy (9 ára). Iðunn er alltaf glöð að koma þangað enda til trampólín og stórar stelpur að leika við. Hún var þó ansi feimin í þetta sinn og lengi að ná áttum, en hresstist öll við þegar hún komst á trampólínið. Sólin lét meira að segja sjá sig í smá stund til að við gætum verið úti á svölum.
Svo var borðað og drukkið hvítvín og spjallað og stelpurnar sváfu vært, og vakað aðeins of lengi...því þær vöknuðu hressar um kl 6 að venju og mamma og pabbi voru ekki alveg eins hress.
Við dóluðum okkur heima hjá O´Higgins fjölskyldunni um morguninn en héldum svo til Durham. Fórum í bókabúð og keyptum afmælisgjöf, keyptum okkur snarl, borðuðum á bekk fyrir framan dómkirkjuna.
Héldum svo í afmæli til Eframs, sem er fjögurra ára og er sonur hjóna sem vinna með Unu. Ésús minn þvílíkt afmæli - fullt af börnum, hoppukastali og svo töframaður sem var svoooooooooooo lélegur og leiðinlegur og talaði allt of lengi svo að börnin voru alveg að gefast upp....svo var engin kaka...allt mjög skrýtið - en hoppukastalinn var skemmtilegur.
Við vorum algjörlega búin eftir þetta, og nú á sunnudagsmorgun erum við enn að jafna okkur. Ætlum að taka því rólega í dag - fyrsti vinnudagur á morgun. Það er uggur í eplamömmu.
laugardagur, 21. apríl 2012
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)