sunnudagur, 22. apríl 2012

Að vera algjörlega búin á því


Helgi fór til York á föstudags morguninn - við skutluðum honum á stöðina og eyddum svo deginum í að fara á tvo rólóa og skoða bakgarðinn og bakgötuna og ýmislegt annað dútl.  Iðunn var með orkumesta móti enda er augljóst að hún er ekki alveg að fóta sig hérna í Englandinu.  Hana langar bara aftur á Grænuborg og til vina og ættingja.  Kl 15 var mamman orðin svoldið lúin , hlóð börnum og dóti í bílinn og lagði af stað til York - stelpurnar sváfu nær alla leiðina svo eyrun fengu smá hvíld.
Í York heimsóttum við Paul O´Higgins, konu hans Louise og Izzy (12 ára) og Maddy  (9 ára).  Iðunn er alltaf glöð að koma þangað enda til trampólín og stórar stelpur að leika við.  Hún var þó ansi feimin í þetta sinn og lengi að ná áttum, en hresstist öll við þegar hún komst á trampólínið.  Sólin lét meira að segja sjá sig í smá stund til að við gætum verið úti á svölum.



Svo var borðað og drukkið hvítvín og spjallað og stelpurnar sváfu vært, og vakað aðeins of lengi...því þær vöknuðu hressar um kl 6 að venju og mamma og pabbi voru ekki alveg eins hress.
Við dóluðum okkur heima hjá O´Higgins fjölskyldunni um morguninn en héldum svo til Durham.  Fórum í bókabúð og keyptum afmælisgjöf, keyptum okkur snarl, borðuðum á bekk fyrir framan dómkirkjuna.


Héldum svo í afmæli til Eframs, sem er fjögurra ára og er sonur hjóna sem vinna með Unu.  Ésús minn þvílíkt afmæli - fullt af börnum, hoppukastali og svo töframaður sem var svoooooooooooo lélegur og leiðinlegur og talaði allt of lengi svo að börnin voru alveg að gefast upp....svo var engin kaka...allt mjög skrýtið - en hoppukastalinn var skemmtilegur.
Við vorum algjörlega búin eftir þetta, og nú á sunnudagsmorgun erum við enn að jafna okkur.  Ætlum að taka því rólega í dag - fyrsti vinnudagur á morgun.  Það er uggur í eplamömmu.

Engin ummæli: